Fotbolti.net
26.05.24 - 21:38
Elvar Geir Magnússon

Newcastle missti af Evrópusæti vegna bikarsigurs Man Utd

Svekkjandi fyrir Eddie Howe.

Svekkjandi fyrir Eddie Howe.

Canon

Mynd: EPA

Sigur Manchester United gegn Manchester City í úrslitaleik FA-bikarsins í gær gerði það að verkum að Newcastle United missti af Evrópusæti.

Manchester United tryggði sér Evrópudeildarsæti með því að vinna City 2-1 og mun Tottenham, sem endaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, verða hitt enska liðið í þeirri keppni.
Chelsea sem endaði í sjötta sæti mun fara í Sambandsdeildina.

Newcastle hafnaði í sjöunda sæti og hefði farið í Sambandsdeildina ef Manchester City hefði unnið FA-bikarinn. Þá hefði Chelsea farið í Evrópudeildina.

Það er áfall fyrir Newcastle að taka ekki þátt í Evrópukeppni á næsta tímabili en liðið lék í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

Ensku Evrópuliðin á næsta tímabili:

Meistaradeildin: Manchester City, Arsenal, Liverpool, og Aston Villa.

Evrópudeildin: Tottenham og Manchester United.

Sambandsdeildin: Chelsea.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.