Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 26. október 2020 19:24
Ívan Guðjón Baldursson
England: Jafnt í Brighton - Karlan Grant hetjan
Brighton 1 - 1 West Brom
1-0 Jake Livermore ('40, sjálfsmark)
1-1 Karlan Ahearne-Grant ('83)

Brighton tók á móti nýliðum West Bromwich Albion í fyrri leik kvöldsins í enska boltanum.

Jafnræði ríkti með liðunum í byrjun en heimamenn tóku völdin á vellinum er tók að líða á fyrri hálfleik og tóku forystuna á 40. mínútu þegar Jake Livermore var afar óheppinn að skora sjálfsmark. Branislav Ivanovic var að hreinsa hættulegan bolta frá markinu en dúndraði í Livermore og þaðan skaust boltinn inn í markið, ansi klaufalegt hjá tveimur af reynslumestu leikmönnum vallarins.

Gestirnir tóku völdin í síðari hálfleik og komust í nokkur fín færi áður en Karlan Grant gerði jöfnunarmark á 83. mínútu. Grant gerði frábærlega að ná stjórn á knettinum og skjóta honum í netið. Þetta var annar leikur Grant frá komu sinni til West Brom. Hann skoraði 19 mörk fyrir Huddersfield á síðustu leiktíð.

West Brom hélt áfram að sækja eftir jöfnunarmarkið og var ekki alltof langt frá því að gera sigurmark, en lokatölur urðu 1-1.

Brighton er því með fimm stig eftir sex umferðir og West Brom þrjú stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner