Fotbolti.net
26.11.19 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Potter tók við í maí en fær nú samning til 2025

Graham Potter, stjóri Brighton.

Graham Potter, stjóri Brighton.

Canon

Mynd: Getty Images

Graham Potter, knattspyrnustjóri Brighton, hefur skrifað undir samning við félagið til 2025.

Potter tók við Brighton síðasta sumar og það er greinilega mikil ánægja með hans störf því hann er strax búinn að skrifa undir framlengingu á samningi sínum.
Potter var ráðinn til starfa í maí eftir að Chris Hughton var rekinn. Brighton hafnaði í 17. sæti á síðasta tímabili.

Hann var við stjórnvölinn hjá Swansea á síðustu leiktíð, en þar áður var hann hjá Östersund í Svíþjóð. Hann náði þar frábærum árangri og kom liðinu meðal annars í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Potter var í átta ár með Östersund.

Brighton er í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.