Fotbolti.net
27.01.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Leeds fær framherja á láni frá Leipzig (Staðfest)

Jean-Kevin Augustin

Jean-Kevin Augustin

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fengið framherjann Jean-Kevin Augustin á láni frá þýska félaginu RB Leipzig.

Augustin er uppalinn hjá PSG en hann fór til Leipzig á þrettán milljónir evra árið 2017.
Á þessu tímabili hefur Augustin verið á láni hjá Mónakó en hann er nú genginn í raðir Leeds.

Þessi 22 ára gamli leikmaður á að hjálpa Leeds í baráttunni um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Leeds hefur hikstað undanfarið en liðið er ennþá í 2. sætinu og vonast til að Augustin hjálpi til við að koma sóknarleiknum í gang.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.