Stjarnan 1 - 4 Breiðablik
1-0 Benedikt V. Warén ('8)
1-1 Kristófer Ingi Kristinsson ('70)
1-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('76)
1-3 Kristófer Ingi Kristinsson ('84)
1-4 Aron Bjarnason ('94)
1-0 Benedikt V. Warén ('8)
1-1 Kristófer Ingi Kristinsson ('70)
1-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('76)
1-3 Kristófer Ingi Kristinsson ('84)
1-4 Aron Bjarnason ('94)
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 4 Breiðablik
Stjarnan og Breiðablik áttust við í stórslag í Bestu deild karla í kvöld og tóku heimamenn forystuna snemma leiks þegar Benedikt Warén skoraði glæsilegt mark eftir skyndisókn.
Kristinn Steindórsson var hársbreidd frá því að taka forystuna fyrir Blika þegar Garðbæingar unnu boltann og geystust upp völlinn. Benedikt fékk boltann úti á vinstri kanti, kom inn á völlinn og lét vaða á markið. Úr varð glæsilegt þrumuskot sem reyndist óverjandi fyrir Anton Ara Einarsson á milli stanga gestanna.
Blikar pressuðu stíft á Stjörnuna og komust nokkrum sinnum nálægt því að skora stuttu eftir opnunarmarkið, en tókst ekki að koma boltanum framhjá Árna Snæ Ólafssyni.
Staðan var því 1-0 í hálfleik þrátt fyrir mikla yfirburði Blika. Stjarnan átti skot í slá snemma í síðari hálfleik en Blikar tóku aftur öll völd á vellinum í kjölfarið og sóttu stíft að marki Stjörnumanna.
Blikum tókst þó ekki að skora fyrr en eftir þrefalda skiptingu á 66. mínútu, þar sem Kristófer Ingi Kristinsson kom meðal annars inn af bekknum. Hann átti eftir að gera gæfumuninn í kvöld og byrjaði á því að setja boltann í netið aðeins nokkrum mínútum eftir innkomuna, þegar hann fylgdi skoti frá Viktori Karli Einarssyni eftir með marki. Kristófer Ingi var snöggur að bregðast við og gerði mjög vel að renna sér á boltann til að skora úr þröngu færi.
Kristófer var aftur á ferðinni skömmu síðar og aftur átti Viktor Karl stóran þátt í markinu. Í þetta sinn skoraði Kristófer glæsilegt mark eftir laglegt einstaklingsframtak frá vængnum, eftir að hafa fengið góða sendingu frá Viktori.
Kristófer fullkomnaði svo magnaða þrennu á 84. mínútu leiksins. Í þetta sinn fékk hann sendingu frá Ágústi Orra Þorsteinssyni áður en hann færði sig inn á völlinn frá vængnum og negldi boltanum í slána og inn.
Ótrúleg innkoma hjá Kristófer Inga sem skoraði þrennu á innan við 20 mínútum frá því að vera skipt inn á völlinn. Síðasta mark leiksins kom svo á 94. mínútu þegar Aron Bjarnason, sem hafði einnig komið inn af bekknum, skoraði þægilegt mark.
Kristófer gerði gæfumuninn í dag þar sem lokatölur urðu 1-4 fyrir Breiðablik. Verðskuldaður sigur fyrir Íslandsmeistarana.
Breiðablik jafnar Víking R. á toppi deildarinnar með sigri. Liðin eiga því bæði 26 stig en Víkingur er með leik til góða.
Stjarnan situr eftir í fjórða sæti með 20 stig, sex stigum frá toppliðunum.
Athugasemdir