Þorlákur Árnason er að taka við Lengjudeildarliði Þórs samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Þór hefur verið í þjálfaraleit eftir að Orri Freyr Hjaltalín var látinn fara þegar nokkrar umferðir voru eftir af deildinni.
Þór hafnaði í níunda sæti deildarinnara á liðnu tímabili.
Þór hefur verið í þjálfaraleit eftir að Orri Freyr Hjaltalín var látinn fara þegar nokkrar umferðir voru eftir af deildinni.
Þór hafnaði í níunda sæti deildarinnara á liðnu tímabili.
Þorlákur var yfirmaður fótboltamála fótboltasambandi Hong Kong þar sem hann tók við í janúar 2019 en lét af störfum í sumar.
Þorlákur þjálfaði áður yngri landslið Íslands en hann hefur einnig stýrt meistaraflokki karla hjá Val og Fylki sem og meistaraflokki kvenna hjá Stjörnunni á þjálfaraferli sínum.
Athugasemdir