Fotbolti.net
27.09.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Líklegast að undrabarn Man Utd fari utan Englands

JJ Gabriel.

JJ Gabriel.

Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Manchester United hefur enn ekki gefist upp á því að halda í hinn 15 ára JJ Gabriel en lítið hefur miðað í viðræðum við leikmanninn samkvæmt TEAMtalk.

Gabriel verður 16 ára þann 6. október og getur þá skrifað undir samning við United. Enn hefur þó ekkert bent til þess að hann ætli að gera það, og það þykir mjög ólíklegt á þessum tímapunkti.
Gabriel er talinn einn allra efnilegasti leikmaður Manchester United. Hann hefur óskað eftir því að yfirgefa félagið en hann er sagður ósáttur við það hversu lítið hann hefur fengið að spreyta sig með aðalliðinu. Það er þrátt fyrir að hann sé aðeins 15 ára.

Mikill áhugi er á Gabriel víða um Evrópu. Real Madrid og Barcelona hafa rætt við fulltrúa hans en einnig hafa Bayern München, Borussia Dortmund, RB Leipzig og Paris Saint-Germain haft samband.

Talið er líklegast að Gabriel færi sig utan Englands. Hann er með írskt vegabréf og getur því, að uppfylltum skilyrðum FIFA, flutt utan Englands þegar hann verður 16 ára.

Chelsea er einnig meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á enska undrabarninu, en eins og áður segir er líklegast að hann fari til félags utan Englands.

Staðan gæti skýrst verulega þegar Gabriel verður 16 ára í byrjun október, en þá getur hann formlega ráðið sér umboðsmann.
Líklegast að undrabarn Man Utd fari utan Englands
Canon

Mynd: Man Utd

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.