Fotbolti.net
28.01.25 - 12:45
Elvar Geir Magnússon

Þetta þurfa ensku liðin í lokaumferð Meistaradeildarinnar

Manchester City fer í úrslitaleik gegn Club Brugge.

Manchester City fer í úrslitaleik gegn Club Brugge.

Canon

Mynd: EPA

Lokaumferðin í vel heppnaðri deildarkeppni Meistaradeildarinnar fer fram annað kvöld. Átta efstu liðin fara beint í 16-liða úrslit en liðin í sætum 9-24 í umspil. Liðin þar fyrir neðan ljúka þátttöku sinni í Evrópukeppnum.
Liverpool hefur þegar tryggt sér sæti í topp átta.

Aston Villa mun að minnsta kosti fara í umspilið. Ef liðið vinnur Celtic á heimavelli eru góðar líkur á að liðið endi í topp átta en þá þarf eitt af fimm liðum fyrir ofan að misstíga sig.

Arsenal er svo gott sem öruggt með sæti í 16-liða úrslitum en liðið er þremur stigum fyrir ofan umspilssæti og með miklu betri markatölu en liðin sem hafa 13 stig.

Manchester City fer í umspilið ef liðið vinnur Club Brugge á heimavelli. Ef City vinnur ekki þá er liðið úr leik. City á ekki möguleika á að enda í topp átta.

miðvikudagur 29. janúar
20:00 Aston Villa - Celtic
20:00 Barcelona - Atalanta
20:00 Leverkusen - Sparta Prag
20:00 Dortmund - Shakhtar D
20:00 Brest - Real Madrid
20:00 Dinamo Zagreb - Milan
20:00 Bayern - Slovan
20:00 Salzburg - Atletico Madrid
20:00 Girona - Arsenal
20:00 Inter - Mónakó
20:00 Juventus - Benfica
20:00 Lille - Feyenoord
20:00 Man City - Club Brugge
20:00 PSV - Liverpool
20:00 Sturm - RB Leipzig
20:00 Sporting - Bologna
20:00 Stuttgart - PSG
20:00 Young Boys - Rauða stjarnan
Þetta þurfa ensku liðin í lokaumferð Meistaradeildarinnar
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG4+1512
2Real Madrid4+612
3Arsenal4+510
4Como4+139
5Barcelona4+89
6Aston Villa4+69
7Man City4+59
8Liverpool4+49
9Club Brugge4+49
10Sporting4+49
11Betis4+29
12Dortmund4+29
13Bayern4+78
14Stuttgart4+37
15Inter4+26
16LASK Linz4+16
17Man Utd406
18Galatasaray4-16
19Fenerbahce4-55
20Roma4+24
21Shakhtar D404
22Viking FK4-14
23Atletico Madrid4-14
24PSV4-14
25Bodö/Glimt4-54
26Porto4-13
27Napoli4-53
28Villarreal4-63
29AEK4-63
30RB Leipzig4-63
31Sabah FK4-63
32Feyenoord4-73
33Lens4-123
34Slavia Prag4-41
35Lille4-61
36Slovan4-160
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.