Hinn fjórtán ára gamli Arnar Breki Björnsson lék sinn fyrsta leik í efstu deild á þriðjudag þegar hann kom inn á fyrir Stjörnuna í 1-3 tapi gegn Víkingi.
Arnar, sem er fæddur árið 2011, varð þar með þriðji yngsti leikmaður sögunnar til að spila í efstu deild, 14 ára og 320 daga gamall.
Arnar, sem er fæddur árið 2011, varð þar með þriðji yngsti leikmaður sögunnar til að spila í efstu deild, 14 ára og 320 daga gamall.
Alexander Rafn Pálmason er sá yngsti en hann kom inn á í 4-2 sigri KR á ÍA sumarið 2024, þá 14 ára og 147 daga gamall.
Þar á eftir er Gils Gíslason en hann kom inn á fyrir FH árið 2022, 14 ára og 318 daga gamall þegar hann spilaði fyrir FH 2022.

