Fotbolti.net
28.06.26 - 12:25
Brynjar Ingi Erluson

Jason Daði í KR (Staðfest)

Jason Daði í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: KR

Mosfellingurinn Jason Daði Svanþórsson er genginn í raðir KR frá Grimsby Town. Hann skrifaði undir samning út 2027.
Jason, sem er 26 ára gamall, hefur leikið með Grimsby síðustu tvö tímabil.

Hann gekk í raðir félagsins frá Breiðabliki, þar sem hann hafði náð frábærum árangri og meðal annars leikið í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

Á sínu fyrsta tímabili hjá Grimsby spilaði hann 47 leiki og kom að átta mörkum í ensku D-deildinni. Síðasta tímabil var hins vegar litað af erfiðum meiðslum og kom hann aðeins við sögu í níu leikjum.

Jason er nú genginn í raðir KR en félagið tilkynnti félagaskiptin rétt í þessu.

Hann er uppalinn hjá Aftureldingu og á að baki fimm A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.