Fotbolti.net
28.07.26 - 20:28
Ívan Guðjón Baldursson

Þór að fá leikmann sem á 68 leiki í La Liga

Þór að fá leikmann sem á 68 leiki í La Liga
Canon

Mynd: EPA

Þór er að krækja í gríðarlega öflugan bakvörð sem á 68 leiki að baki í La Liga, efstu deild spænska boltans.
Þór fær leikmann frá Kerala Blasters (Staðfest)
TENGT EFNI

Þór fær leikmann frá Kerala Blasters (Staðfest)

Sá heitir Kevin Vázquez og er 33 ára gamall. Hann er hægri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað vinstra megin, sem miðvörður og á báðum köntum.

Kevin lék síðast með Sporting Gijon í næstefstu deild á Spáni á síðustu leiktíð og var fyrirliði félagsins. Hann var þó ekki með sæti í byrjunarliðinu og lék í heildina 16 deildarleiki er Gijon endaði um miðja deild með 61 stig úr 42 leikjum.

Kevin lék lengst af með uppeldisfélaginu Celta Vigo og er annar Spánverjinn sem gengur til liðs við Þór í sumar, eftir að Víctor Bertomeu flutti á Akureyri fyrir helgi. Víctor gekk til liðs við Þór úr röðum indverska félagsins Kerala Blasters.

Kevin býr yfir rosalegri reynslu og lét skemmtileg ummæli falla eftir 2-0 tap Celta gegn Real Madrid í apríl 2023.

„Við vildum meiða þá með skyndisóknum en það vantaði uppá gæðin í lokasendingunum á vallarþriðjungi andstæðinganna. Við vitum hversu erfiðir andstæðingar þetta eru. Real Madrid sækja ekki, þeir skora bara mörk," sagði Kevin eftir að hafa dekkað Vinícius Júnior allan leikinn.

„Vinícius er leikmaður sem maður þarf alltaf að fylgjast með. Hann geymir mestu kraftana sína fyrir sóknarleikinn og það þarf að hafa góðar gætur á honum útaf því að hann býr yfir rosalegum gæðum."

Þórsarar hafa verið að styrkja hópinn umtalsvert í sumar enda sitja þeir í neðsta sæti Bestu deildarinnar með 12 stig eftir 16 umferðir.
Þór að fá leikmann sem á 68 leiki í La Liga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.