Fotbolti.net
28.08.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mætir tveimur mjög kunnuglegum á morgun - „Verið öldugangur, bæði hjá mér og liðinu"

Mætir tveimur mjög kunnuglegum á morgun - „Verið öldugangur, bæði hjá mér og liðinu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV tekur á morgun á móti Þór í botnbaráttuslag Bestu deildarinnar. Tvö stig skilja liðin að, ÍBV er með 17 stig og Þór er með 15 stig. Leikurinn er liður í næstsíðustu umferð fyrir skiptingu.

Fótbolti.net ræddi við Arnór Inga Kristinsson, leikmann ÍBV, fyrir leikinn sem byrjar klukkan 17:00.
„Leikurinn leggst bara nokkuð vel í okkur, búnir taka góða æfingaviku og mikil tilhlökkun í hópnum. Þór er með flott lið og góð einstaklings gæði, við þurfum að hafa stjórn á leiknum og mæta klárir frá fyrstu mínútu sem hefur ekki verið raunin hjá okkur síðustu 1-2 leikjum," segir Arnór.

Gæti reimt á sig Calafiori skóna
Í leikmannahópi Þórs er Birgir Ómar Hlynsson sem lék á láni með ÍBV á síðasta tímabili. Veit hann einhver leyndarmál sem gætu hjálpað Þórsurum?

„Biggi er algjör snillingur og topp eintak, það verður bara helvíti skemmtilegt að mæta honum. Nei nei, það ætti nú ekkert að koma á óvart, nema kannski ég reimi á mig Calafiori skóna og hendi inn einu marki!" segir Arnór léttur.

Unnu fyrri leikinn sannfærandi
Hvaða minningar áttu af leikjum gegn Þór?

„Minningarnar frá síðustu viðureign eru mjög góðar, alltaf gaman að koma til Akureyrar í sunshine og við vorum á góðu mómentumi á þessum tíma og gott að taka þrjá punkta."

ÍBV vann mjög sannfærandi 1-4 útisigur á Þór í júní.

Þurfa að líta í eigin barm
Varðandi undirbúninginn, þið eruð án sigurs frá því snemma í júlí. Hvað þarf að laga og hvernig er andinn?

;,Eins og ég segi hefur undirbúningurinn fyrir leikinn verið góður þrátt fyrir erfitt gengi undanfarið. Það er alltaf erfitt að vera án sigurs í langan tíma en það var líka þannig í byrjun tímabils áður en við duttum á gott skrið."

„Við þurfum kannski aðeins að líta í eigin barm sem leikmenn hvað hver og einn getur gert betur, það er kannski vöntun á sjálfstrausti sem spilar inn í, en við erum þrusugott lið á okkar degi eins og hefur sést. Við þurfum að vera sterkari á báðum teigunum, það hefur verið svolítið vandamál okkar síðustu leiki eins og tölfræðin sýnir, þurfum bara að laga þessa grunn hluti þá er ég mjög vongóður fyrir framhaldinu."


Hjálpaði Arnóri að taka skrefið upp á við
Arnór Ingi þekkir vel til þjálfara Þórsara, Sigga Höskulds. Arnór lék undir hans stjórn í Leikni og var með hann í yngri flokkum Stjörnunnar líka. Hvernig verður að hitta hann?

„Alltaf gaman að hitta Sigga, við förum langt aftur og höfum unnið saman í mörg ár, alveg frá því að ég var lítill peyi. Hann gaf mér fyrst sénsinn í meistaraflokki á sínum tíma og hjálpaði mér mikið að taka skrefið upp á við."

Fullmikil tilraunastarfsemi í byrjun móts
Arnór Ingi var fastamaður í liði ÍBV á síðasta tímabili og hefur verið fastamaður í liðinu í ár frá því í lok maí.

Hvernig metur þú tímabilið í heild, bæði hjá þér og liðinu? Ertu sáttur með þitt hlutverk?

„Það hefur verið svolítill öldugangur á tímabilinu hingað til bæði hjá mér persónulega og liðinu. Ég vil alltaf spila og standa mig sem best en það sem hefur vantað kannski í sumar er stöðugleiki á frammistöðunni minni. Þetta var fullmikil tilraunastarfsemi í byrjun móts en svo eftir nokkrar umferðir fór þetta að smella betur saman og við sem lið ætlum okkur klárlega að klára mótið með stæl," segir Arnór að lokum.
Birgir Ómar lék með ÍBV í fyrra.

Birgir Ómar lék með ÍBV í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Riccardo Calafiori er marksækinn bakvörður Arsenal.

Riccardo Calafiori er marksækinn bakvörður Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Siggi Höskulds.

Siggi Höskulds.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr leiknum á Akureyri.

Úr leiknum á Akureyri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.