Fotbolti.net
28.09.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Estevao orðaður við Barcelona - Stórlið girnast Haaland

Estevao Willian.

Estevao Willian.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Börsungar eru með augastað á Estevao, Felix gæti snúið aftur til Evrópu og stórlið girnast Haaland í kjölfarið á stöðu Manchester City. Þetta og fleira í slúðrinu.
Brasilíski kantmaðurinn Estevao Willian er farinn að pirra sig á því hversu lítinn spiltíma hann fær hjá Chelsea og Barcelona fylgist grannt með stöðu mála. (Sport)

Portúgalski sóknarmaðurinn Joao Felix (26), sem er hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu, hefur áhuga á að snúa aftur í evrópskan fótbolta en nefnir ekki hvaða félag gæti komið til greina. (AS)

Áhugi er fyrir hendi hjá Arsenal og Real Madrid á norska sóknarmanninum Erling Haaland (26) í ljósi óvissunnar hjá Manchester City. (Football Insider)

Newcastle United fylgist með varnarmanninum Abdelhamid Ait Boudlal (20) sem leikur með Rennes og landsliði Marokkó. Félagið þarf að keppa við Everton, Brentford og Hull um hann. (Teamtalk)

Arsenal og Tottenham fylgjast með alsírska miðjumanninum Ibrahim Maza (20) ára hjá Bayer Leverkusen. (Teamtalk)

Chelsea fylgist með enska vinstri bakverðinum Tyrick Mitchell (27) hjá Crystal Palace en félagið gæti fengið samkeppni frá Manchester United og Liverpool um hann. (Caught Offside)

Leeds United hefur engin áform um að selja velska varnarmanninn Ethan Ampadu (26) en hann er orðaður við endurkomu til Chelsea. (Football Insider)
Joao Felix.

Joao Felix.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.