Fotbolti.net
28.09.26 - 19:39
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

Með tilboð frá Brasilíu

Renato Sanches gæti farið til Brasilíu

Renato Sanches gæti farið til Brasilíu

Canon

Mynd: EPA

Portúgalski miðjumaðurinn Renato Sanches er með tilboð frá brasilíska félaginu Corinthians og er sagður færast nær því að samþykkja það, en frá þessu greinir Foot Mercato.
Sanches rifti samningi sínum við Paris Saint-Germain í sumar eftir afar dapran tíma hjá félaginu.

Hann varð franskur meistari með Lille árið 2021 og gekk ári síðar til liðs við PSG. Þar lék hann aðeins eitt tímabil áður en hann fór á lán til Roma, Benfica og Panathinaikos, en náði aldrei að finna sitt gamla form.

Í sumar komst hann síðan að samkomulagi við PSG um að rifta samningnum og hefur verið í leit að nýju félagi síðan.

Foot Mercato segir hann nú líklega á leið til Brasilíu, en Corinthians hefur gert honum veglegt tilboð.

Sanches, sem er 29 ára gamall, var talinn einn efnilegasti miðjumaður heims árið 2016. Hann var valinn besti ungi leikmaðurinn þegar Portúgal varð Evrópumeistari það ár og var í kjölfarið seldur frá Benfica til Bayern München, en ferillinn hefur hins vegar ekki þróast eins og vonir stóðu til.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.