Fram tekur á móti Breiðabliki á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í Bestu deildinni í kvöld. Um er að ræða liðin sem eru í 3. og 4. sæti deildarinnar.
Leikurinn sjálfur hefst 19:15 en fyrir leik verður efnt til upphitunar í glæsilegum veislusal Fram.
Leikurinn sjálfur hefst 19:15 en fyrir leik verður efnt til upphitunar í glæsilegum veislusal Fram.
Ágúst Gylfason, Kristófer Sigurgeirsson og Kristján Óli Sigurðsson hita upp fyrir leikinn í pallborðsumræðum sem Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson stýrir.
Samhliða því verður hægt verður að gæða sér á nauti með bernaise sósu. Þá mun Hreimur jafnframt koma og mun hann taka nokkur lög skömmu fyrir leik. Húsið opnar 17:30.
Besta karla
19:15 FH-ÍA (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)



