Fotbolti.net
29.05.26 - 12:21
Elvar Geir Magnússon

Minni fiðringur í Bödda en hann bjóst við - Andleysi FH komið á óvart

Böðvar Böðvarsson.

Böðvar Böðvarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég bjóst kannski ekki við því að þeir væru án sigurs komandi inn í leik kvöldsins. FH er með hörkulið þegar að allir eru heilir. Það hefur komið mér á óvart hversu mikið andleysi hefur verið oft á tíðum. Það eru sterkir karakterar í þessu liði og bara tímaspursmál rífa sig úr þessu. Vonandi ekki í kvöld," segir Böðvar Böðvarsson, leikmaður ÍA, í viðtali við Vísi.

FH og ÍA mætast í Bestu deildinni í kvöld. Mikið fjölmiðlafár varð þegar Böddi yfirgaf FH, uppeldisfélag sitt, fyrir tímabilið en Hafnarfjarðarfélagið ákvað að losa hann. Skagamenn kræktu í hann.
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
TENGT EFNI

Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi

„Þegar að ég skrifaði undir hjá ÍA á sínum tíma þá bjóst ég við því að yrði mikill fiðringur og spenna fyrir þessum leik. Hún er aðeins minni en ég bjóst við. Maður er ekkert að fara á límingunum en að sjálfsögðu verður þetta að einhverju leiti skrítin tilfinning. Að mæta gömlum vinum og uppeldisfélaginu. Maður er drulluspenntur fyrir kvöldinu."

Þetta verður í fyrsta skipti sem Böðvar mætir í Kaplakrika sem leikmaður gestaliðs. FH hefur aðeins tvö stig en byrjun ÍA hefur einnig verið vonbrigði, liðið er með níu stig í áttunda sæti.

„Sigur hjá okkur kemur okkur á þá braut að við erum ekki langt frá hlutum í efri hlutanum. Gífurlega mikilvægur leikur fyrir okkur. Þó frammistaðan hafi oft á tíðum verið mjög góð , og við sáttir með hana stóran hluta tímabilsins, þá hefur stigasöfnunin ekki verið nógu öflug," segir Böðvar í viðtali við Aron Guðmundsson hjá Vísi.

föstudagur 29. maí
19:15 FH-ÍA (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)

Heimild: Vísir

Minni fiðringur í Bödda en hann bjóst við - Andleysi FH komið á óvart
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.