Formaður Vals: Ákvörðunin var tekin fyrir leikinn í gær

Hemmi látinn fara eftir 34 vikur í starfi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell stýrir Val út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason verður þjálfari Vals eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Styrmir er formaður fótboltadeildar Vals.

Mynd: Valur

Valur er með nítja? stig eftir þrettán leiki í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gareth Owen aðstoðar þjálfarateymið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leikinn í gær hafði Valur fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hemmi látinn fara eftir 34 vikur í starfi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Styrmi Þór Bragason sem er formaður fótboltadeildar Vals.

Hemmi rekinn frá Val (Staðfest) - Dóri Árna tekur við eftir tímabilið
Er eitthvað sem þú vilt nefna sérstaklega í þessum mælikvörðum? Er það fjöldi stiga?
„Nei, það er ekki fjöldi stiga. Auðvitað hefðum við viljað einhver fleiri stig, en það er ekki það sem ræður ferðinni í þessari ákvörðun. Það er bara sú leið sem liðið hefur verið á, við erum ekki að sjá það þróast í rétta átt og það er raunverulega það sem við erum að horfa til, en ekki akkúrat stigasöfnunin. Enda er þetta miklu stærri ákvörðun en það."
Of varnarsinnaður fótbolti?
„Nei, bara þeir mælikvarðar sem við lögðum fram og lögðum upp með. Þeir hafa ekki skilað sér og það getur verið bæði varnar- og sóknarlega, og bæði í leikskipulaginu og öðru. Það er ákveðinn kúltúr sem við hefðum viljað sjá komast lengra með."
Hefur ekkert með aldur hópsins að gera
Formaðurinn var spurður hvort ákvörðunin tengdist því að stjórnin væri á því að liðið sem hefði spilað leikina væri of gamalt.
„Nei, það hefur ekkert með það að gera. Þú ert væntanlega að vísa eitthvað í GoalUnit verkefnið, þetta tengist því ekkert. Við erum í ákveðinni vegferð, með ákveðna tölfræðilega mælikvarða sem við horfum í; ákefð inn í teig, snertingar inn í teig, snertingar andstæðinga inn í okkar teig og tempóið í leiknum og svo framvegis. Margir mælikvarðar. Þetta hefur ekkert með leikmannahópinn sem slíkan að segja, við erum held ég með alveg nógu góðan leikmannahóp til að skila fáránlega góðum árangri."
„Þetta hefur ekkert með aldurssamsetninguna að gera. Ég held að meðaldurinn hafi verið 31-32 ár í fyrra og er 28 ára núna, að myndu einhverjir segja að það væri þokkaleg bæting."
Ætla að fara ákveðna leið
Er stemningin í klefanum ekki nógu góð?
„Jú, það er 'drive' í klefanum, þetta er ekki ákvörðun sem klefinn eða þjálfarateymið tekur. Þetta er stjórnarákvörðun sem er tekin með langtímahagsmuni félagsins í huga. Þetta er 115 ára gamalt félag, erum á ákveðinni vegferð og ætlum okkur að fara ákveðna leið. Allar ákvarðanir miðast af því að komast þangað."
Ákvörðunin tekin fyrir leikinn gegn Þór
Var ákvörðunin tekin fyrir leikinn í gær?
„Já, það var búið að taka þessa ákvörðun fyrir þennan leik."
Og vissi Hemmi að leikurinn gegn Þór yrði hans síðasti í starfi?
„Ég veit það ekki, get ekki svarað því hvort hann hafi vitað það. Það var að minnsta kosti ekki komið neitt út frá okkur varðandi það og það var enginn leki um að við hefðum verið í viðræðum við Dóra."
Horfa til lengri tíma
Þið metið best að Dóri komi eftir tímabilið, var enginn möguleiki að fá hann strax?
„Við töldum að þetta væri rétt ákvörðun að gera ekki meira rót á verkefninu núna og fá hann góðan og ferskan inn í nýtt tímabil. Við viljum ekki alltaf vera í skammtíma reddingum, heldur viljum við horfa til lengri tíma og taka og taka ákvarðanir byggðar á því."
Hemmi stjórnaði algjörlega leikskipulaginu
Utan frá virtist Chris hafa haft mjög mikið að segja varðandi hvernig leikur Vals væri og stjórnun innan leiksins. Er það rétt metið?
„Nei, Hemmi var aðalþjálfari og stjórnaði algjörlega leikskipulaginu."
Gareth Owen aðstoðar teymið
Kemur einhver inn í teymið til að aðstoða Chris?
„Teymið er tiltölulega stórt, við erum með mannskap í það. Gareth (Owen, tæknilegur ráðgjafi Vals) kemur síðan aðeins inn til að bakka þá upp sem eru núna."
Er ljóst að Chris verður aðstoðarþjálfari Dóra þegar þar að kemur?
„Það var ekkert rætt í þessu tilfelli. Það var fyrst og fremst rætt um það að Chris leiðir hópinn og þjálfarateymið út tímabilið og svo tekur Dóri við. Það hefur ekki verið rætt neitt um aðstoðarmenn eða aðra. Það er seinni tíma ákvörðun."
Skoða tækifærin í glugganum
Það styttist í félagaskiptagluggann, ætla Valsarar að gera eitthvað í glugganum?
„Við erum alveg vakandi fyrir einhverjum tækifærum í glugganum. Það verður að vera mannskapur sem passar inn í það sem við erum að gera," segir Styrmir.

Chris Brazell stýrir Val út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason verður þjálfari Vals eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Styrmir er formaður fótboltadeildar Vals.

Mynd: Valur

Valur er með nítja? stig eftir þrettán leiki í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gareth Owen aðstoðar þjálfarateymið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leikinn í gær hafði Valur fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 13 | +38 | 37 |
| 2 | KR | 13 | +14 | 28 |
| 3 | Fram | 11 | +5 | 23 |
| 4 | Breiðablik | 12 | +6 | 19 |
| 5 | Valur | 13 | -2 | 19 |
| 6 | ÍA | 11 | -5 | 15 |
| 7 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 8 | Stjarnan | 13 | -3 | 14 |
| 9 | ÍBV | 12 | -5 | 12 |
| 10 | KA | 12 | -8 | 10 |
| 11 | FH | 12 | -13 | 7 |
| 12 | Þór | 12 | -21 | 7 |






