Ný útgáfa af tölvuleiknum vinsæla FIFA kemur út í október en fyrsta eintakið af leiknum hefur þegar borist á leiðarenda.
Franska stórstjarnan Kylian Mbappe fékk leikinn sendan heim til sín og fékk þann heiður að vera fyrsti jarðarbúinn til að opna FIFA.
Hann virtist ansi ánægður með þau forréttindi eins og má sjá á myndbandi sem hann birti á Twitter.
Mbappe er 21 árs framherji sem hefur gjörsamlega raðað inn mörkunum með PSG og franska landsliðinu að undanförnu.
FIFA 21 😍😍😍 @EASPORTSFIFA pic.twitter.com/uTNTHffkkk
— Kylian Mbappé (@KMbappe) September 29, 2020
Athugasemdir