Fotbolti.net
29.09.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Man Utd og Arsenal hafa áhuga á á bakverði Porto

Alberto Costa í leik með Porto.

Alberto Costa í leik með Porto.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Slúðurpakki í landsleikjaglugga. Varnarmaður Porto er í sigtinu hjá Arsenal og Manchester United; Manchester City mun ekki láta Erling Haaland fara á útsöluverði ef liðið fellur og Liverpool hefur enn áhuga á miðjumanni Real Madrid.
Manchester United og Arsenal fylgjast bæði grannt með portúgalska hægri bakverðinum Alberto Costa (22) hjá Porto en munu mæta samkeppni frá Paris St-Germain. (Caughtoffside)

Manchester City mun setja gríðarlega háan verðmiða á norska sóknarmanninn Erling Haaland (26) ef félagið verður fellt úr ensku úrvalsdeildinni vegna brota á fjárhagsreglum. (Football Insider)

Chelsea, Arsenal, Bayern München, Real Madrid og Barcelona eru meðal félaga sem hafa áhuga á Haaland og fylgjast náið með stöðu Manchester City í ljósi mögulegra refsinga. (Fichajes)

Tveimur félögum í Frakklandi var boðið að fá Raheem Sterling (31), sem áður lék með Chelsea og Manchester City, en höfðu ekki áhuga. Sterling er án félags. (Foot Mercato)

Serdal Adali, forseti tyrkneska félagsins Besiktas, hefur heitið því að fá Joe Willock (27) frá Newcastle í janúar og heldur því fram að enski miðjumaðurinn hafi þegar valið sér nýtt heimili í Tyrklandi. (Talksport)

Eddie Howe, fyrrum stjóri Newcastle, vill taka við stóru félagi ef hann snýr aftur í stjórastól í ensku úrvalsdeildinni. (Telegraph)

Liverpool hefur enn áhuga á franska miðjumanninum Aurelien Tchouameni (26) hjá Real Madrid þrátt fyrir að hann hafi skrifað undir nýjan langtímasamning við spænska félagið í sumar. (Teamtalk)
Erling Haaland.

Erling Haaland.

Canon

Mynd: EPA

Man Utd og Arsenal hafa áhuga á á bakverði Porto
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.