Fotbolti.net
29.10.22 - 12:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið ÍBV og Leiknis: Andri Rúnar ekki í hóp - Þrjár breytingar hjá Leikni

Arnar Breki kemur inn í byrjunarlið ÍBV.

Arnar Breki kemur inn í byrjunarlið ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 13:00 hefst lokaumferðin í Bestu deildinni og er hægt að nálgast textalýsingar frá öllum leikjum á forsíðu Fótbolta.net. Í neðri hlutanum mætast ÍBV og Leiknir á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Leiknir er í botnsætinu fyrir lokaumferðina og er fallinn niður í Lengjudeildina. Með sigri getur liðið komist upp fyrir ÍA í 11. sætinu. ÍBV er í 9. sætinu og getur með sigri komist upp í 8. sætið.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 Leiknir R.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, gerir eina breytingu frá tapinu gegn Fram í síðustu umferð. Atli Hrafn Andrason tekur sér sæti á bekknum og inn í liðið kemur Arnar Breki Gunnarsson. Andri Rúnar Bjarnason er ekki í leikmannahópi liðsins.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, í sínum lokaleik sem þjálfari Leiknis, gerir þrjár breytingar frá síðustu umferð. Daði Bærings Halldórsson og Davíð Júlían Jónsson taka sér sæti á bekknum og þá er Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ekki í hóp. Inn í liðið koma þeir Róbert Hauksson, Dagur Austmann og Sindri Björnsson.

Byrjunarlið ÍBV

  • 1. Jón Kristinn Elíasson (m)
  • 2. Sigurður Arnar Magnússon
  • 7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
  • 8. Telmo Ferreira Castanheira
  • 14. Arnar Breki Gunnarsson
  • 23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
  • 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
  • 26. Felix Örn Friðriksson
  • 42. Elvis Okello Bwomono
  • 80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Byrjunarlið Leiknir R.

  • 1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
  • 4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
  • 8. Sindri Björnsson
  • 9. Róbert Hauksson
  • 17. Adam Örn Arnarson
  • 18. Henrik Emil Hahne Berger
  • 20. Hjalti Sigurðsson
  • 23. Dagur Austmann Hilmarsson
  • 28. Zean Peetz Dalügge
  • 80. Mikkel Elbæk Jakobsen
Sindri byrjar hjá Leikni

Sindri byrjar hjá Leikni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.