SKÝRSLAN: Tasmaníudjöfullinn skaut ÍBV í 8. sætið
Hvað réði úrslitum?
Það var ekki mikið undir fyrir utan stoltið í Vestmannayejum. Vindurinn setti dálítinn svip á leikinn og fengu liðin hvort sinn hálfleikinn með vindi. Eyjamenn skoruðu eitt mark eftir markspyrnu og það dugði í dag.
Bestu leikmenn
1. Arnar Breki Gunnarsson
Tasmaníudjöfullinn duglegur að venju og skoraði sigurmark leiksins.
2. Jón Kristinn Elíasson
Hélt hreinu og varði nokkrum sinnum vel.
Atvikið
Björgun Dags á línu frá Halldóri Jóni. Það var örugglega besta færi leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV endar í 8. sæti og Leiknir endar í 12. sæti deildarinnar. Leiknir verður í Lengjudeildinni næsta sumar. ÍBV náði samtals í tólf í úrslitakeppninni.
Vondur dagur
Sóknarmenn liðanna fyrir að skora ekki meira í dag.
Dómarinn - 7
Ágætlega dæmt.




