Lazio 1 - 3 Udinese
0-1 Tolgay Arslan ('18)
0-2 Ignacio Pussetto ('45)
0-3 Fernando Forestieri ('71)
1-3 Ciro Immobile ('74, víti)
0-1 Tolgay Arslan ('18)
0-2 Ignacio Pussetto ('45)
0-3 Fernando Forestieri ('71)
1-3 Ciro Immobile ('74, víti)
Lazio fékk skell er Udinese kíkti í heimsókn í fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum.
Tolgay Arslan gerði fyrsta mark leiksins með skoti utan teigs eftir sendingu frá Roberto Pereyra. Tomas Strakosha hefði líklegast átt að gera betur á milli stanga Lazio.
Ignacio Pussetto, sem kom frá Watford í sumar ásamt Pereyra og Deulofeu, tvöfaldaði forystu Udinese skömmu fyrir leikhlé. Fernando Forestieri gerði svo þriðja markið áður en Ciro Immobile minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu.
Óvænt úrslit í Róm og er Udinese komið með 10 stig eftir 9 umferðir. Lazio er með 14 stig.
Athugasemdir