Vonar að Brazell hafi þroskast - „Hegðunin oft á tíðum til skammar“

Stýrir Val út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var aðalþjálfari Gróttu í um tvö ár.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stýrir Val út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég ætla rétt að vona að Chris Brazell hafi þroskast á undanförnum árum frá því að hann var þjálfari Gróttu. Þá er ég að tala um í samskiptum við fjölmiðla og dómara. Hegðun hans á því sviði var oft og tíðum til skammar,“ var sagt um bráðabirgðaþjálfara Vals, Chris Brazell, í Innkastinu á Fótbolta.net í gær.
Brazell stýrir Valsliðinu út tímabilið eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn taka poka sinn í gær. Brazell hafði verið aðstoðarmaður Hemma.

Í Innkastinu var rifjað upp atvik í Kórnum fyrir fjórum árum þegar Chris Brazell, þáverandi þjálfari Gróttu, beið eftir Erlendi Eiríkssyni dómara í um klukkustund eftir leik fyrir utan dómaraklefana.
Í umfjöllun Fótbolta.net um málið á sínum tíma segir: 'Framkoma hans í garð starfsfólks HK var ekki til fyrirmyndar samkvæmt heimildarmanni Fótbolta.net. Þegar fólk var að búa sig undir að loka Kórnum var Brazell vísað út úr húsinu en þá beið hann fyrir utan. Erlendur fékk á endanum fylgd gæslufólks út úr húsinu.'
Þá var sömuleiðis framkoma Brazell í garð fjölmiðlafólks gagnrýnd áður en Valur Gunnarsson tók orðið og sagði hann þurfa að sanna helling.
„Miðað við hvernig umræðan hefur verið þá var fótboltahliðin hans, þó svo að stjórnarmenn Vals neiti því. Þess vegna finnst mér skrítið að Hemmi hafi verið látinn fara eftir tólf umferðir og Chris Brazell tekið við. Ég skal viðurkenna það að ég er með óbragð í munni,“ sagði Valur.