Fotbolti.net
31.03.20 - 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lineker: Sanngjarnast að Liverpool fái titilinnn

Lineker: Sanngjarnast að Liverpool fái titilinnn
Canon

Mynd: Getty Images

Gary Lineker, þáttastjórnandi Match of the Day og fyrrum leikmaður Everton, Tottenham, Leicester og Barcelona, er á því að allir vilji klára tímabilið nema þeir sem virkilega þola ekki Liverpool.

Liverpool er tveimur sigrum frá því að tryggja titilinn en óvíst er hvort eða hvenær verður hægt að hefja leik að nýju.

„Helst viljum við klára tímabilið, ég held að það liggi í augum uppi," sagði Lineker við talkSPORT.
„En þessi staða er snúin og margt mikilvægara en fótbolti. Þetta er erfitt að vita hvenær staðan breytist. Mögulega getum við byrjað í júní og mögulega þá fyrir luktum dyrum, sem er ekki það sem fótbolti snýst um en deildin myndi klárast."

„Það er það sem allir vilja sjá gerast, nema kannski þeir sem virkilega þola ekki Liverpool. Ég tel sanngjarnast að klára mótið og þá fær Liverpool titilinn."

„Ég veit ekki hvort það sé hægt. Hvenær væri hægt að byrja aftur? Júní, júlíeða ágúst? Eitt sem ég vil segja er að leikmenn eru að fá hvíld núna en það er ekki hvíldin sem þeir vilja en þeir geta verið klárir eftir nokkrar vikur af æfingum, það þyrfti ekki heilt undirbúningstímabil í kjölfarið til að byrja nýtt mót."

„Hugsanlega, ef hægt verður að fara nægilega snemma af stað, væri hægt að hefja næsta mót strax í kjölfarið. Það er ekki draumastaðan en hver veit hvað gerist,"
sagði Lineker að lokum.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.