Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
banner
fimmtudagur 21. maí
þriðjudagur 5. maí
mánudagur 4. maí
Lengjudeild karla
laugardagur 2. maí
Besta karla
sunnudagur 31. maí
Vináttuleikur
Ekvador 2 - 1 Sádí Arabía
Suður Kórea 5 - 0 Trinidad and Tobago
Mexíkó 1 - 0 Ástralía
Japan - Ísland - 10:25
Singapore - Mongolia - 11:30
Sviss - Jordan - 13:00
Grænhöfðaeyjar - Serbía - 15:00
Tékkland - Kósóvó - 14:00
Cyprus U-19 - England U-18 - 14:30
Ekkert mark hefur verið skorað
Pólland - Úkraína - 15:30
Þýskaland - Finnland - 18:45
Bandaríkin - Senegal - 19:30
Brasilía - Panama - 21:30
Toppserien - Women
Lyn W - Valerenga W - 12:30
Damallsvenskan - Women
Rosengard W - Brommapojkarna W - 11:00
Kristianstads W - Hacken W - 12:00
Vittsjo W - Hammarby W - 12:00
Malmo FF W - Vaxjo W - 13:00
Elitettan - Women
Husqvarna W - Linkoping W - 14:00
sun 31.maí 2026 09:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: Skuldahlutfall Þórs var 146% á síðasta ári

Í ársreikningi Þórs má sjá að rekstrartekjur voru 192 milljónir króna, launahlutfallið var 63,5%, afkoman var neikvæð um 32 milljónir króna, eignir lækkuðu um 16 milljónir króna og skuldahlutfallið hækkaði upp í 146%.

Greinin var einnig birt á fotbolti.net

Rekstrartekjur Þórs voru 192 milljónir króna á síðasta ári og lækkuðu um 11 milljónir króna á milli ára. Stærsti hluti tekna Þórs voru framlög og styrkir sem námu 68 milljónum króna og voru tæplega 36% af tekjum Þórs. 

Rekstrargjöld Þórs voru 227 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um 43 milljónir króna á milli ára, eða sem um nemur 23% hækkun. Stærsti útgjaldaliður Þórs voru laun og tengd gjöld sem var 54% af útgjöldum Þórs.

Á síðasta ári fóru 122 milljónir króna í launakostnað. Í 2025 ársreikningnum var launum sundurliðað á nýjan veg í skýringum þar sem kemur meðal annars fram nákvæmlega hversu miklar launagreiðslur leikmanna voru. Þessar greiðslur fóru úr 17 milljónum króna 2024 í 29 milljónir króna 2025, tæplega 69% hækkun.

Launahlutfall Þórs hækkaði um 17,9 prósentustig á milli ára og var orðið 63,5% í árslok 2025. Síðustu fimm árin hefur launahlutfall Þórs að meðaltali verið 56,5%.

Þór var rekið með 31,8 milljón króna tapi á síðasta ári eftir að hafa skilað hagnaði upp á 17,6 milljónir króna árið áður. Síðustu fimm árin hefur Þór uppsöfnuð afkoma Þórs verið neikvæð um 28,5 milljónir króna. Ef einungis er litið á uppsafnaða rekstrarafkomu (EBITDA) þá er hún neikvæð um 23 milljónir króna. 

Einn þáttur sem hefur áhrif á afkomu Þórs er hlutdeild þeirra í rekstri á Þór/KA. Á síðasta ári var þessi hlutdeild jákvæð um 3,4 milljónir króna.

Eignir Þórs námu ríflega 30 milljónum króna í árslok 2025. Stærsti hluti eigna Þórs var handbært fé sem stóð í 18 milljónum króna. Þar á eftir voru aðrar skammtímakröfur næststærsta eignin, tæplega 5 milljónir króna.

Handbært fé Þórs lækkaði um 2,6 milljónir króna á síðasta ári. Ef litið er á sjóðstreymið má sjá að handbært fé til rekstrar voru tæplega 12 milljónir króna. Fjárfestingarhreyfingar voru sáralitlar, einungis 500 þúsund króna lækkun á kröfum á aðrar deildir. Hins vegar voru fjármögnunarhreyfingar tæplega 9 milljónir króna vegna hækkandi skulda.

Vegna hækkandi skulda og lækkandi eigna lækkaði veltufjárhlutfall Þórs um 91,4 prósentustig á árinu og var orðið 59,9% í árslok. Síðustu fimm árin hefur veltufjárhlutfallið að meðaltali verið 127,7%.

Skuldir Þórs voru 36 milljónir króna í árslok 2025. Stærsti hluti skulda Þórs eru skuldir við aðrar deildir sem stóðu í 15 milljónum króna í lok síðasta árs.

Skuldahlutfall Þórs hækkaði verulega á milli ára og var orðið 146,1%. En þó, eins og minnst var á hér að ofan, þó er stærsti hluti skulda við aðrar deildir innan félagsins. Síðustu fimm árin hefur skuldahlutfall Þórs að meðaltali verið 88,2%. 

Eigið fé Þórs lækkaði um rúmlega 32 milljónir króna á milli ára og var orðið neikvætt um ríflega 14 milljónir króna í árslok 2025. Ójafnað eigið fé var neikvætt um tæpar 20 milljónir króna en endurmatsreikningur leikmannasamninga, sem voru 6 milljónir króna, hífði upp eigið fé Þórs. Þessi endurmatsreikningur ætti þó að vera núll krónur, þar sem endurmatsreikningur leikmannasamninga er afleiðing ólögmætrar verðmatsaðferðar leikmannasamninga sem leyfisreglugerð KSÍ skikkar félög til þess að fylgja.


banner