31.08.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U-beygja hjá City og Ndiaye?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano hefur heimildir fyrir því að Manchester City hafi aftur sett sig í samband við umboðsmenn Iliman Ndiaye í dag.
City geri það þar sem óvíst sé hvort hægt sé að fá Cody Gakpo frá Liverpool, en City vill fá inn sóknarmann eftir að Omar Marmoush fór til Tottenham. Gakpo er opinn fyrir því að fara til City en Livverpool vill halda honum ef annar maður finnst ekki í staðinn fyrir gluggalok.

Skipti Ndiaye til Totenham eru ekki frágengin og Richarlison, sem átti að fara til Everton frá Tottenham, er sagður óviss með það skref.
City var orðað við Ndiaye í síðustu viku en svo þróuðust málin þanig að Tottenham vildi fá Ndiaye og Gakpo var til í að fara til City.
Everton er sagt vilja fá 60 milljónir punda fyrir Ndiaye. Ndiaye er 26 ára senegalskur landsliðsmaður, vængmaður, sem hefur verið hjá Everton síðan 2024.
Glugginn lokar annað kvöld.