Fotbolti.net
31.08.26 - 12:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Frederik tók 21 sekúndu í markspyrnuna - ÍA refsaði grimmilega

Frederik Schram fékk dæmda á sig leiktöf.

Frederik Schram fékk dæmda á sig leiktöf.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA náði að jafna gegn Val undir blálok leiks á Hlíðarenda í gær. Markið kom eftir hornspyrnu Rúnars Más SIgurjónssonar og það var Baldvin Þór Berndsen sem skoraði markið með skalla úr markteignum. ÍA fékk tvær hornspyrnur í röð en fyrri hornspyrnan kom eftir leiktöf hjá Frederik Schram sem er markvörður Vals.

Frederik var of lengi að taka markspyrnu og dæmdi Elías Ingi Árnason, sem tók við flautunni þegar Pétur Guðmundsson þurfti að fara af velli, leiktöf og því fékk ÍA hornspyrnu.

Frederik fékk fimm sekúndna viðvörun frá Elíasi en tók ekki markspyrnuna í tæka tíð og því missti Valur boltann og ÍA fékk hornspyrnu að launum.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 ÍA
Dómarar byrja ekki að telja strax niður þegar boltinn fer úr leik og var Frederik búinn að fá góðan tíma til að stilla boltanum upp og framkvæma markspyrnuna áður en leiktöfin var dæmd.

Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, var svekktur með niðurstöðuna eftir leik og vildi meina að Skagamenn hefðu líka verið að tefja í leiknum. Eins og fyrr segir skoraði ÍA ekki upp úr fyrri hornspyrnunni, en annað horn fylgdi á eftir og úr því kom jöfnunarmarkið.

„Ég hélt að þetta væri komið hérna undir lokin þegar við fáum markspyrnu. Ég vil ekki vera að benda á aðra en mér fannst línan ekki vera þannig að Elías (dómari leiksins) væri að fara að taka af okkur einhverja markspyrnu og breyta henni í horn miðað við hvernig Árni (Marinó Einarsson, markvörður ÍA) var búinn að haga sér hérna allan leikinn og þeir búnir að taka tíma í allt. Mér fannst mjög skrítin lína þá að fara að dæma einhverja hornspyrnu en burt séð frá því eigum við að geta varist hornspyrnum," sagði Jónatan við Fótbolta.net eftir leikinn.

Miðað við útsendingu Sýn Sport fór boltinn út fyrir völlinn á 93:09, Elías dómari flautaði svo í kjölfarið og lét Frederik vita af því að hann væri byrjaður að telja og á 93:30, áður en Frederik spyrnti í boltann, dæmdi Elías leiktöf. Þá mátti heyra óánægju úr stúkunni, en Valsarar á vellinum, aðrir en Frederik, sýndu lítil viðbrögð. Markmannsþjálfarinn Emil Alexander Larsen fékk að líta rauða spjaldið fyrir sín mótmæli á hliðarlínunni.

Valur varð af tveimur stigum sem svo gott sem fer út um vonir Valsara um sæti í efri hluta deildarinnar þegar deildinni verður skipt í efri og neðri hluta eftir næstu umferð.
Elías Ingi dæmdi horn.

Elías Ingi dæmdi horn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldvin jafnaði fyrir ÍA.

Baldvin jafnaði fyrir ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik20+530
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Valur21-724
8Stjarnan20-1024
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.