Alli Axels: Sáum að við eigum miklu meira en séns í þessa gaura
„Mér fannst við stýra þessum leik að mestu leyti, gefum þeim bara skíta mörk. Það er bara hálfleikur, þetta er langt frá því að vera búið. Við erum í bullandi séns áfram," segir Aðalgeir Axesson, þjálfari 2. flokks Þórs, eftir tap gegn Zalgiris í Evrópukeppni unglingaliða í gær.
Liðin mættust í fyrri leik einvígisins á VÍS vellinum og urðu lokatölur 3-4 fyrir gestina frá Litháen.
„Við sáum alveg að við eigum miklu meira en séns í þessa gaura. Við gefum þeim mörk á pirrandi tímum, minnkum í 1-2, erum með leikinn en fáum á okkur aftur skítamark. Náum svo að jafna í 3-3 og erum að fara vinna, en gefum aftur mark. Það er pirrandi, en svona er þetta. Við förum út og vinnum þá."