Fotbolti.net
16.09.26 - 14:54
Kári Snorrason

Arnar setur skýra kröfu að ná toppsætinu - „Þá ertu dauður“

Auglýsing
Setur kröfu á toppsæti riðilsins.

Setur kröfu á toppsæti riðilsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Klárlega, það er mikil krafa,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari aðspurður hvort að ná toppsætinu í C-deild Þjóðadeildarinnar væri krafa.

Arnar ræddi við Fótbolta.net í hádeginu eftir að hann opinberaði landsliðshóp sinn sem mætir Eistlandi, Lúxemborg og Litháen í komandi verkefni í Þjóðadeildinni.
Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn

Værukærð er dauðasynd
Ísland (74) er sterkasta liðið í riðlinum ef marka má heimslista FIFA. Næst hæsta lið á eftir er Búlgaría (85) og fylgir Lúxemborg (98) þeim á eftir. Eistland (127) er neðsta lið riðilsins á heimslistanum.

„Að sama skapi þurfa leikmenn að átta sig á að þetta er ekki sjálfsagður hlutur. Þú getur ekki mætt á völlinn með annarri hendi og ætlast til að þetta komi að sjálfu sér,“ sagði Arnar og hélt áfram.

„Værukærð er dauðasynd í lífnu, það er mantra sem þarf að minna íþróttamenn á þegar þú hittir þá - ef þú ert værukær í þínum leik þá ertu dauður,“ sagði Arnar.

Nánar er rætt við Arnar um verkefnið og einstaka leikmenn í spilaranum hér að ofan
Ísland fær Eistland í heimsókn í fyrsta leik verkefnisins.

Ísland fær Eistland í heimsókn í fyrsta leik verkefnisins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.