Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil.
Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins.
Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.