Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   mið 02. maí 2018 08:03
Magnús Már Einarsson
Aron ætlar á HM - Var farinn að búa sig undir það versta
Icelandair
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég ætla mér á HM, svo einfalt er það,” segir landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson í fréttatilkynningu sem send var til fjölmiðla nú rétt í þessu.

Aron Einar fór í aðgerð vegna meisðla á hné á mánudagskvöld en hann meiddist í leik Cardiff og Hull um hegina.

Liðþófi rifnaði í hægra hné Arons og eina úrræðið var að fara rakleiðis í uppskurð. Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að talsverðar líkur eru á að Aron verði orðinn nægjanlega heill í tæka tíð til að leiða íslenska karlalandsliðið til leiks á HM í Rússlandi. Fyrsti leikur Íslands er gegn Argentínu eftir 45 daga.

„Tíminn frá því að ég meiddist og fram að því að ég fékk niðurstöður um hversu alvarlegt þetta væri var einhver sá óþægilegasti sem ég hef lifað. Ég var farinn að búa mig undir það versta en sem betur fer þá voru meiðslin ekki jafn slæm og ég óttaðist," sagði Aron.

„“Ég er þakklátur fyrir þann kraft sem settur hefur verið í að meðhöndla mig. Stjórnendur Cardiff sem og þeir sem starfa hjá íslenska landsliðinu eru búnir að slá í takt undangengna daga og það eru allir að gera sitt besta til að tryggja að ég nái sem skjótustum bata."

„Aðgerðin á mánudaginn heppnaðist vel og í dag byrjar ferlið þar sem ég vinn mig smám saman aftur af stað. Þetta verður hvorki þægilegt né skemmtilegt, en það breytir mig engu. Ég er bjartsýnn og ég geri bara það sem ég þarf að gera til að vera klár í tæka tíð.”

Athugasemdir
banner
banner
banner