Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 12. júlí 2005 09:45
Hafliði Breiðfjörð
Viðtalið: Ian Rush
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ian Rush fyrrum leikmaður Liverpool var á dögunum hér á landi að kynna mót sem mun verða haldið í Egilshöll í haust þar sem margar gamlar kempur munu spila. Við settumst niður með Rush og spurðum hann út í þjálfaraferil hans og einnig spurðum við hann mikið út í mál Liverpool svo eitthvað sé nefnt.



Michael Owen fór frá Liverpool í fyrra, hvað fannst þér um þá ákvörðun hans?
,,Ég tel það hafa verið gott fyrir Michael Owen. Ég tala mikið við Michael og hann er að njóta sín. Hann hefur bætt sig sem leikmaður og þetta er góð reynsla fyrir hann auk þess sem hann verður betri leikmaður og nýtur sín þarna.”

Þú sagðir við okkur í viðtali fyrir þremur árum síðan að Michael væri uppáhalds knattspyrnumaðurinn þinn, er sama staða uppi í dag?
,,Já hann er uppáhalds markaskorarinn minn. Þeir eru tveir, Schevchenko og Michael Owen eru bestu markaskorararnir í dag. Besti leikmaður heims í dag finnst mér vera Ronaldinho. Varðandi Michael þá þarf hann bara að spila fleiri leiki í byrjunarliðinu. Hann er mjög góður vinur minn.”

Liverpool fengu á dögunum í sínar raðir fjóra nýja leikmenn, hvernig líst þér á þá?
,,Maður verður bara að bíða og sjá. Stundum verður maður að fara varlega því þeir þurfa tíma til að aðlagast. En þeir verða að styrkja leikmannahópinn fyrir deildina. Þeir gerðu mjög vel í Meistaradeildinni en fyrir úrvalsdeildina þurfa þeir að bæta sig og þeir þurfa stærri hóp fyrir það. Þeim mun stærri hóp sem þeir hafa þeim mun meiri möguleika eiga þeir á að bæta sig í deildinni. Nú verðum við bara að bíða og sjá.”

Hvernig líst þér á spænsku byltinguna hjá Liverpool?
,,Vel ef þeir vinna. Benítez er frábær knattspyrnustjóri og þeir unnu Meistaradeildina. Nú verða þeir að taka úrvalsdeildina og vonandi gera þeir það. ”

Hver er megin munurinn á liðinu nú með Benítez og þegar Houllier var við stjórn?
,,Mér fannst Gerard Houllier bæta Liverpool og það sem Benítez hefur gert er að gefa þeim trú á að þeir séu gott lið. Í Meistaradeildinni trúðu þeir að þeir gætu unnið alla leiki og það þarf að koma því hugarfari í deildina núna. Þegar hann gerir það þá byrja þeir svo að vinna leiki. ”

Telurðu að Liverpool þurfi að styrkja sig enn frekar?
,,Já ef Liverpool ætlar að ná árangri þá verða þeir að fá fleiri leikmenn til að styrkja hópinn. Þegar félagaskiptaglugganum lokar má ekki fá fleiri leikmenn fyrr en í janúar svo því fleiri leikmenn sem hann getur fengið þeim mun betra verður þetta. Þeir þurfa að líta eftir framherja og miðað við leikstílinn þurfa þeir að leita að kantmanni. Þeir eru með mjög góðan markvörð í Jerzy Dudek en þú þarft alltaf varamann og það verður samkeppni um stöður. ”

Þú hefur verið orðaður við starf í Ástralíu, hvað viltu segja um það?
,,Eins og staðan er í dag er ég bara að fá þjálfararéttindi mín og vinna í að fá pro leyfi sem er það hæsta sem hægt er að fá. Í lok júlí fæ ég það en áður en það gerist er ég ekki að leitast eftir því að komast aftur í leikinn. Í ágúst má búast við að sjá eitthvað gerast en ég held að þetta ástralska starf sé bara eitthvað sem ég er orðaður við en það er ekkert satt í því. ”

Hefðirðu áhuga á að þjálfa erlendis?
,,Já ég hefði áhuga á að þjálfa erlendis en mér finnst mikilvægast að fá þjálfararéttindin svo ég mun ekki byrja að hugsa um það fyrr en í lok júlí eða í ágúst því þetta er mikið að klára. Svo ég ætla bara að bíða. ”

Hefurðu áhuga á að þjálfa á Íslandi?
,,Maður veit aldrei því ég nýt þess að koma til Íslands og fólkið er mjög vingjarnlegt og ég á mjög gott samband við fólk hér. Ísland í augnablikinu er ekki á listanum en maður veit aldrei hvað gerist. Það hefur aldrei neinn rætt við mig frá íslensku liði um þetta. ”

Þú hefur hinsvegar verið með knattspyrnuskólann þinn hér á landi, ertu að íhuga að gera það aftur einhvern tíma?
,,Þetta er mikil skipulagning og ég hefði áhuga en þegar maður ætlar að gera það þá verður maður að skuldbinda sig við það og það er erfitt að gera. Í fyrra gat ég það ekki því ég var útum allt og meðal annars í Ástralíu. Ef þetta kæmi upp aftur þá myndum við skoða það en það er ekki á áætlun. ”

Sástu einhverja hæfileikaríka knattspyrnumenn hér?
,,Já og ég sé betri drengi hér en á Englandi. Ég held að hugarfarið sé gott hérna. Þeir ættu líka að horfa á Eið Guðjohnsen og sjá hvað hann er að gera og reyna að ná því sem hann er að gera. Hann er frábær íslenskur knattspyrnumaður og fyrirliði íslenska landsliðsins og hans frammistaða mun hjálpa öllum. ”

Talandi um Eið Smára, er hann einn af bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar?
,,Já fyrir Chelsea. Spilamennska Chelsea hentar stílnum hans. Ég tel að hann sé einn besti leikmaður Chelsea og Chelsea vann deildina. Hann spilar með miklu sjálfstrausti og ég þekki hann og hann er frábær persóna líka svo það er engin ástæða til annars en að hann geri enn betur. Hann nýtur lífsins hjá Chelsea. Hann er góður tengiliður milli miðju og framherja og er mjög góður í þeirri stöðu, það er hans besta staða að mínu mati. ”


Sjá einnig:
Ian Rush ætlar ekki að spila gegn Liverpool á Anfield
Rush: Mikil vonbrigði ef Gerrard fer
Ian Rush í viðtali um mótið


Slapp
banner
banner