Lengjudeild kvenna hefst næsta sunnudag og erum við á Fótbolta.net á fullu að birta spá þjálfara og fyrirliða fyrir mótið. HK-ingum er spáð fjórða sætinu.
Valgerður Lilja Arnarsdóttir er uppalin HK-ingur og hefur spilað upp alla yngri flokka félagsins. Valgerður hóf sinn meistaraflokksferil árið 2020 og hefur síðan spilað 46 leiki og skorað tvö mörk. Hún hefur einnig leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum síðustu ár.
Í dag sýnir Valgerður Lilja á sér hina hliðina.
Valgerður Lilja Arnarsdóttir er uppalin HK-ingur og hefur spilað upp alla yngri flokka félagsins. Valgerður hóf sinn meistaraflokksferil árið 2020 og hefur síðan spilað 46 leiki og skorað tvö mörk. Hún hefur einnig leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum síðustu ár.
Í dag sýnir Valgerður Lilja á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Valgerður Lilja Arnarsdóttir
Gælunafn: Vala
Aldur: 21 árs
Hjúskaparstaða: í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnistætt úr leiknum: Hann var 2018, held ég hafi komið inn á í lokin og gert frekar lítið
Uppáhalds drykkur: nocco berruba
Uppáhalds matsölustaður: Xo eða Sushi social
Hvernig bíl áttu: frábæran toyota corolla
Áttu hlutabréf eða rafmynt: nobb
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: criminal minds
Uppáhalds tónlistarmaður: sza
Uppáhalds hlaðvarp: the girls bathroom og þarf alltaf að vera grín
Uppáhalds samfélagsmiðill: tiktok og instagram
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Vísir
Fyndnasti Íslendingurinn: blökast tríóið
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Jana sól að senda mér að einn sætur var að likea myndina sína á Insta
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: myndi líklega aldrei spila með FHL, það er svo hrikalega langt í burtu
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Keppti eitthvern tímann á móti Sveindísi í yngri flokkum, hún var ekkert eðlilega góð
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Guðni og Gylfi eru frábært combo, annars var Raggi Gísla að þjálfa mig í yngri flokkum og var mjög góður líka
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Henríetta var stundum óþolandi á æfingum, all love samt
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Glódís Perla og Messi
Sætasti sigurinn: Þegar við komumst upp úr 2.deild árið 2020
Mestu vonbrigðin: slíta krossbandið í annað skiptið
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég myndi fá Henríettu aftur heim úr Stjörnunni
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Elísa og Ísabel í HK
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Eíríkur Þorsteinsson Blöndal
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Kristjana í júník
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Jana Sól er rosaleg
Uppáhalds staður á Íslandi: Bústaðurinn hjá Þingvallavatni!
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: fékk dæmt vitlaust innkast á mig 3 sinnum í sama leik einu sinni
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: borða alltaf fyrir leik í sama stólnum og hlusta á sömu lögin á leiðinni í leiki
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Kannski aðallega úrslitakeppnunum í handbolta og körfu
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: nike mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Var mjög léleg í efnafræði
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég tók nýliðavígslu út í Bandaríkjunum
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Ég tæki Jönu Sól fyrir slúðrið og skemmtun, og svo Láru og Gummu reynslubolta til að bjarga okkur
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég væri til í að sjá Brookelynn í So you think you can dance, hún er með svakalega takta í klefanum
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Var efnileg í handbolta markinu
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Guðmunda Brynja er algjört Legend
Hverju laugstu síðast: Ég lýg ekki
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun og Gylfa- sprettir
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja rihönnu hvernig það er að vera svona mikil queen
Athugasemdir