Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bayern sýnir Lopetegui áhuga
Mynd: EPA

Julen Lopetegui er eftirsóttur þessa dagana en greint var frá því í gær að hann væri nálægt því að semja við West Ham.


Sky Sports í Þýskalandi greindi frá því í gær að Lopetegui væri á óskalista Bayern Munchen eftir að Ralf Rangnick neitaði því að taka við liðinu af Thomas Tuchel.

Lopetegui er hins vegar ekki efstur á óskalistanum en hann vill ólmur snúa aftur í þjálfun fyrir næsta tímabil.

Hann stýrði Wolves síðast en hætti með liðið í ágúst í fyrra þar sem hann var ósáttur með aðgerðarleysi félagsins á félagaskipta markaðnum.

Þessi 57 ára gamli Spánverji hefur m.a. stýrt Real Madrid og spænska landsliðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner