Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Verðum að halda áfram að trúa"
Mynd: EPA

Luton mistókst að klifra upp úr fallsæti þegar liðið gerði jafntefli gegn Everton í gær.


Liðið er í 18. sæti með 26 stig, jafn mörg stig og Nottingham Forest sem á leik til góða gegn Sheffield United í dag.

Rob Edwards stjóri Luton hefur mikla trú á því að liðinu takist að halda sér uppi.

„Við vildum auðvitað vinna leikinn. Við gáfum allt í þetta svo ég er svekktur núna. Stuðningsmennirnir geta séð að leikmennirnir eru að gefa allt í þetta. Við erum enn í baráttunni, við verðum að halda áfram að trúa," sagði Edwards.


Athugasemdir
banner
banner
banner