banner
   mán 29. apríl 2024 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Nuddaði salt í sár Hernandez í titilfögnuði Inter
Hér má sjá Dumfries með plakatið
Hér má sjá Dumfries með plakatið
Mynd: X
Hollenski bakvörðurinn Denzel Dumfries skemmti sér konunglega er hann fagnaði ítalska meistaratitlinum með liðsfélögum sínum í Inter í gær.

Inter vann ítölsku deildina með því að vinna nágranna sína í Milan, 2-1, á mánudag.

Liðið ákvað síðan að fagna afrekinu eftir 2-0 sigurinn á Torino í gær en þúsundir stuðningsmanna fögnuðu með liðinu í Mílanó-borg, þar sem það var sungið og trallað fram eftir öllu.

Í titilfögnuðinum fékk Dumfries afhent plakat með mynd af sér og Theo Hernandez, leikmanni Milan, en Dumfries heldur í ól sem er bundin við Hernandez. Myndin er úr tölvuleiknum Grand Theft Auto 5, en hefur verið notuð sem farandbrandari síðustu ár.

Þeim hefur oft lent saman í leikjum Inter og Milan, en það gerðist bara síðast á mánudag þar sem þeir tóku hvorn annan hálstaki og uppskáru báðir rautt spjald fyrir.


Athugasemdir
banner
banner