Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Þór
3
1
Afturelding
Alvaro Montejo '2 1-0
Alvaro Montejo '54 2-0
2-1 Andri Freyr Jónasson '76
Nacho Gil '86 3-1
04.05.2019  -  16:30
Þórsvöllur
Inkasso deildin - 1. deild karla
Aðstæður: 8 stiga hiti og smá gola. Völlurinn kemur vel undan vetri
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson
Maður leiksins: Alvaro Monjeto
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
Orri Sigurjónsson ('88)
4. Hermann Helgi Rúnarsson
5. Loftur Páll Eiríksson
8. Jónas Björgvin Sigurbergsson
9. Jóhann Helgi Hannesson (f)
14. Jakob Snær Árnason ('30)
23. Dino Gavric
24. Alvaro Montejo ('78)
30. Bjarki Þór Viðarsson
88. Nacho Gil

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
2. Tómas Örn Arnarson
4. Aron Kristófer Lárusson
6. Ármann Pétur Ævarsson ('88)
10. Sigurður Marinó Kristjánsson ('78)
15. Guðni Sigþórsson
18. Alexander Ívan Bjarnason
25. Aðalgeir Axelsson

Liðsstjórn:
Sveinn Elías Jónsson (Þ)
Gregg Oliver Ryder (Þ)
Hannes Bjarni Hannesson
Guðni Þór Ragnarsson
Kristján Sigurólason
Perry John James Mclachlan

Gul spjöld:
Alvaro Montejo ('51)
Bjarki Þór Viðarsson ('63)
Loftur Páll Eiríksson ('84)
Ármann Pétur Ævarsson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið hér á Þórsvellinum. Þórsarar setja þessi þrjú stig glaðir í vasann.
93. mín Gult spjald: Ármann Pétur Ævarsson (Þór )
92. mín
Jónas með gott skot en Trausti gerir vel í markinu.
92. mín
Þór með aukaspyrnu á ákjósanlegum stað fyrir utan teig. Hægt að ná fínasta skoti þarna.
90. mín
Jökull að eiga erfitt með boltann og tapar honum enn einu sinni fyrir framan eigið mark. Þór náði ekki að gera sér mat úr þessum mistökum.
90. mín
Komið fram í uppbótatíma hér á Þórsvellinum.
88. mín
Inn:Ármann Pétur Ævarsson (Þór ) Út:Orri Sigurjónsson (Þór )
Orri fer haltrandi út af vellinum.
86. mín MARK!
Nacho Gil (Þór )
Stoðsending: Jóhann Helgi Hannesson
Nacho að klára þetta fyrir Þórsarar. Jóhann Helgi með fína stungu inn fyrir sem Nacho fylgir eftir og lyftir hárfínt yfir Traust í markinu. Frábær afgreiðsla!
85. mín
Aukaspyrna sem Afturelding fær, boltinn inn í teig en Loic dæmdur brotlegur.
84. mín Gult spjald: Loftur Páll Eiríksson (Þór )
Stoppar áhlaup.
82. mín
Jónas Björgvin við það að sleppa í gegn. Tekur of margar snertingar og fer í vont skot.
80. mín
Afturelding er einfaldlega betri þessar mínúturnar! Andri Freyr í baráttunni og vinnur horn. Hornspyrnan góð en Aron Birkir er fyrstur að ná til boltans.
78. mín
Inn:Sigurður Marinó Kristjánsson (Þór ) Út:Alvaro Montejo (Þór )
Þór þéttir raðirnar eftir markið
76. mín MARK!
Andri Freyr Jónasson (Afturelding)
Stoðsending: Valgeir Árni Svansson
Afturelding hefur verið að gera vel síðustu mínútur og uppskera mark! Valgeir með góða innkoma. Frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Andri sem á flottan skalla að marki.

Skemmtilegar lokamínútur framundan!
75. mín
Jökull tapar boltanum á hættulegum stað og Jónas fær boltann. Jökull heppinn að skotið frá Jónasi er afleitt og fer langt yfir markið.
74. mín
Inn:Arnór Gauti Jónsson (Afturelding) Út:Andri Már Hermannsson (Afturelding)
Þriðja og síðasta skipting Aftureldingu.
73. mín
Þrumuskot frá Kristjáni Atla sem Aron Birkir þarf að hafa sig allann við að verja.
72. mín
Hér verður allt vitlaust úr á velli eftir tæklingu frá Kristján. Menn hrinda hver öðrum en Kristinn lyftir engu spjaldi og allir ganga nokkuð sáttir frá borði.
69. mín
Valgeir með sína fyrstu tilraun í leiknum, tekur skot fyrir utan teig sem siglir framhjá markinu. Ágætis tilraun.
68. mín
Inn:Kristján Atli Marteinsson (Afturelding) Út:Georg Bjarnason (Afturelding)
Önnur skipting Aftureldingar í leiknum.
66. mín
Inn:Valgeir Árni Svansson (Afturelding) Út:Djordje Panic (Afturelding)
64. mín
Bjarki að eiga fína spretti og flotta bolta fyrir. Hárfín bolti á fjærstöngina sem Jóhann Helgi reynir að klippa í að átt á marki .
63. mín Gult spjald: Bjarki Þór Viðarsson (Þór )
Brýtur á Alexander Aron. Afturelding með aukaspyrnu út á miðjum vallahelming Þórs.
62. mín
Fantaspil hjá Þórsurum! Bjarki með góðan kross fyrir og Jóhann Helgi nær skalla en ekki á markið.
60. mín
Jónas með frábært skot fyrir utan teig eftir að hafa fíflað tvo en Trausti vakandi í markinu.
54. mín MARK!
Alvaro Montejo (Þór )
Stoðsending: Jónas Björgvin Sigurbergsson
MARK!! Jónas Björgvin með flotta bolta úr aukaspyrnunni inn í teig sem Trausti nær ekki að halda, lendir á eigin manni og boltinn lekur inn. Alvaro eignar sér þetta en smá spurning hvort þetta hafi einfaldlega verið sjálfsmark hjá Trausta.
54. mín Gult spjald: Ásgeir Örn Arnþórsson (Afturelding)
Harka í þessum leik! Réttilega dæmt gult spjald, keyrði inn í Alvaro og var aldrei að hugsa um boltann. Sjúkraþjálfari Þórs aftur mætur inn á völlinn.

Þór fær aukaspyrnu á flottum stað í kjölfarið.
51. mín Gult spjald: Alvaro Montejo (Þór )
Gult fyrir samskipti sín við Traust sem er sem betur fer staðinn upp.
51. mín
Aftur er Trausti að gera svo vel í markinu! Skyndisókn frá Þór þar sem Jónas setur inn fyrir á Alvaro. Trausti kemur á móti, Alvaro of seinn í boltann og lendir á Trausta sem meiðist á höfði.
49. mín Gult spjald: Andri Már Hermannsson (Afturelding)
Fullorðins tækling út á velli. Jónas er vel lemstraður eftir þetta.
47. mín
Óvænt er Andri Freyr að komast í gegn en er klaufi inn í teig Þórs og ekkert verður úr þessu.
45. mín
Þór nælir sér í aukaspyrnu á frábærum stað strax í upphafi. Jóhann Helgi keyrir í átt að marki og Jökull þurfti að brjóta til að stoppa hann af.

Jónas ekki með galið skot úr aukaspyrnunni en Trausti búinn að vera traustur í markinu og heldur því áfram.
45. mín
Þetta er farið af stað aftur. Gestirnir hefja leikinn núna.
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur á Þórsvellinum. Þórsarar búnir að vera töluvert sterkari og ættu í raun að vera búnir að skora fleiri.
43. mín
Fínt samspil hjá Andra Freyr og Jason upp við teig Þórsarar en þeir eru ekki að ná að ógna markinu að ráði.
42. mín
Aftur er Þór að komast í ákjósanlegar stöður inn í teig Aftureldingu. Sveinn Elías rekur endahnút á sóknina en Loic Cédric er ekki á því að leyfa þessum að komast að markinu og kastar sér fyrir boltann.
40. mín
Alvaro leggst niður eftir baráttu við Ásgeir Örn. Sjúkraþjálfari Þórs er lagður af stað til hans.
38. mín
Ásgeir Örn með fínan sprett í átt að teig Þórsmanna nær að koma boltanum á Djordje Panic sem gerir sér hins vegar ekki mat úr því. Þórsarar keyra þá í hina áttina og fá hornspyrnu sem er skemmtilega útfærð og endar með skalla á markið.
36. mín
Það er mikill miðju barátta inn á vellinum núna. Þórsarar yfirleitt skrefi á undan en Afturelding hefur verið að vinna sig betur inn í leikinn.
32. mín
Sveinn Elías lætur strax til sín taka. Vinnur baráttuna við varnamenn Aftureldingar í teignum og nær skoti sem siglir rétt framhjá markinu.
30. mín
Inn:Sveinn Elías Jónsson (Þór ) Út:Jakob Snær Árnason (Þór )
Jakob Snær virtist meiða sig áðan og þarf að fara út af.
26. mín Gult spjald: Alexander Aron Davorsson (Afturelding)
Fyrir brot á Jónasi. Hann er allt annað en sáttur og sparkar boltanum í kjölfarið í burtu.
26. mín
Háspenna við mark Aftureldingu. Jónas Björgvin rennir boltanum á Jóhann Helga. Hann nær hins vegar ekki að klára gott færi. Staðan er ennþá 1-0 og miða við færi Þórsara gæti talan verið hærri.
25. mín
Ásgeir Örn með fínt hlaup í átt að teignum en er stoppaður áður en hann nær að koma boltanum á samherja. Vörn Þórsarar að gera vel.
22. mín
Alvaro með fína fyrirgjöf en hún er aðeins of há fyrir Jóhann Helga sem nær ekki að setja hausinn í boltann. Heppnir Afturelding því hann var einn á auðum sjó í teignum og átti bara eftir að stýra boltanum á markið.
21. mín
Alexander getur haldið áfram leik.
20. mín
Alexander Andri liggur eftir á vellinum eftir samskipti og virðist þjáður. Verið að huga að honum.
19. mín
Andri Már brýtur á Jónasi fyrir utan teig vinstra meginn. Þór á aukaspyrnu á góðum stað.

Spyrnan hins vega illa útfærð og ekkert verður úr henni.
18. mín
Andri Freyr fær fínan bolta inn í teig frá Jason en Gavric kastar sér fyrir skotið sem var á leið á markið.
16. mín
Jónas með geggjaðan bolta á fjær sem Jakob Snær nær ekki að setja hausinn í.
13. mín
Þór hefur verið að skapa mikið að tækifærum á fyrstu 13 mínútunum en Afturelding er ekki að ná að ógna af neinu ráði. Hafa verið að komast á síðasta þriðjunginn en vörn Þór grimm og þeir hafa ekki verið að komast í gegnum hana.
11. mín
Ekkert verður úr horninu. Afturelding lagði af stað í sókn en Þór náði boltanum jafnóðum. Alvaro átti svo fínt skot inn í teig en Trausti gerði vel í markinu.
10. mín
Jakob Snær með frábæra takta við teig Aftureldingu, spilar þá upp úr skónum og endar með skoti sem Trausti ver í horn.
8. mín
Mikill barátta hér á upphafsmínútunum. Þórsarara pressa hátt og Afturelding virðist eiga í basli með að koma boltanum í spil.
6. mín
Hér mátti ekki miklu muna! Frábær sending inn fyrir vörn Aftureldingar á Nacho en hann setur boltann beint á Trausta í markinu.
2. mín MARK!
Alvaro Montejo (Þór )
Stoðsending: Nacho Gil
Þórsarar ekki lengi að þessu og Alvaro búinn að opna markareikning sinn í Inkasso. Samlandi hans Nacho renndi boltanum í gegnum vörnina og eftirleikurinn auðveldur fyrir Alvaro.
1. mín
Loftur brýtur á Alexander út fyrr markteig hægra meginn og Afturelding fær aukaspyrnu á fínum stað.

Boltinn hins vegar ekki góður frá Alexander.
1. mín
Þetta er farið af stað. Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast, liðin rölta hér út á völlinn.
Fyrir leik
Liðin að hita upp og áhorfendur að koma sér fyrir. Það falla líklega enginn hitamet á Akureyri í dag en það er 8 stiga hiti, gola og skýjað. Vel hægt hins vegar að bjóða upp á skemmtilegan fótbolta.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar.

Afturelding gerir fjórar breytingar frá tapleiknum gegn Grindavík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins síðasta þriðjudag. Sigurður Kristján, Jason Daði, Georg Bjarnason og Djordje Panic koma allir inn í lið Aftureldingar. Arnór Gauti fer á bekkinn en Hlynur Magnússon, Róbert Orri og Ragnar Már eru ekki í hóp.
Fyrir leik
Liðin mætust síðast þegar Afturelding var í deildinni árið 2009. Þeim leik lauk með sigri Þórs 1-4.

Liðin hafa spilað níu sinnum gegn hvort öðru í gegnum tíðina. Þór hefur unnið átta þeirra og Afturelding nælt í einn sigur. Í þessum níu leikjum hafa 37 mörk verið skoruð þannig ef þetta fer eitthvað eftir sögunni eigum við von á markaleik í dag. Köstum ekki hendi á móti því!

Fyrir leik
Frumraun Aftureldingar er á móti sterku liði Þórs sem er spáð upp um deild á þessu tímabil. Ef spá fyrirliða og þjálfara Inkasso liðana ganga upp mun hvorugt liðið spila í Inkasso að ári því Aftureldingu er spáð beinustu leið niður í aðra deildina aftur.
Fyrir leik
Afturelding er mætt aftur í Inkasso deildina eftir 10 ára fjarveru. Liðið spilaði síðast í deildinni árið 2009.

Þeir unnu aðra deildina í fyrra eftir harða samkeppni við Gróttu og Vestri.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkominn í beina textalýsingu frá Þórsvellinum á Akureyri.

Inkasso deildin byrjar að rúlla í dag með tveimur leikjum annars vegar Leiknir R. - Magni og svo Þór - Afturelding.
Byrjunarlið:
30. Trausti Sigurbjörnsson (m)
Alexander Aron Davorsson
4. Sigurður Kristján Friðriksson
5. Loic Mbang Ondo (f)
6. Ásgeir Örn Arnþórsson
9. Andri Freyr Jónasson
10. Jason Daði Svanþórsson (f)
14. Jökull Jörvar Þórhallsson
18. Djordje Panic ('66)
23. Andri Már Hermannsson ('74)
25. Georg Bjarnason ('68)

Varamenn:
30. Andri Þór Grétarsson (m)
2. Arnór Gauti Jónsson ('74)
3. Sigfús Kjalar Árnason
8. Kristján Atli Marteinsson ('68)
17. Valgeir Árni Svansson ('66)

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Arnar Hallsson (Þ)
Helgi Steinar Andrésson

Gul spjöld:
Alexander Aron Davorsson ('26)
Andri Már Hermannsson ('49)
Ásgeir Örn Arnþórsson ('54)

Rauð spjöld: