Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Fylkir
0
1
Tindastóll
0-1 Arna Kristinsdóttir '45
Aldís María Jóhannsdóttir '82
11.05.2022  -  19:15
Würth völlurinn
Lengjudeild kvenna
Dómari: Tómas Wolfgang Meyer
Maður leiksins: Arna Kristinsdóttir
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
4. Nína Zinovieva
6. Sara Dögg Ásþórsdóttir
7. Tinna Harðardóttir ('46)
7. Emily Elizabeth Brett ('80)
9. Vienna Behnke
10. Klara Mist Karlsdóttir
15. Agnes Birta Eiðsdóttir
18. Erna Sólveig Sverrisdóttir
20. Sunneva Helgadóttir
23. Helga Guðrún Kristinsdóttir ('90)

Varamenn:
12. Rebekka Rut Harðardóttir (m)
5. Melkorka Ingibjörg Pálsdóttir
13. Emilía Dís Óskarsdóttir ('90)
14. Karólína Jack
16. Eva Rut Ásþórsdóttir
17. Birna Kristín Eiríksdóttir
21. Elísa Björk Hjaltadóttir ('80)
22. Sóley Margrét Valdimarsdóttir
27. Helga Valtýsdóttir Thors ('46)

Liðsstjórn:
Jón Steindór Þorsteinsson (Þ)
Rakel Logadóttir (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Halldór Steinsson
Hulda Hlíðkvist Þorgeirsdóttir
Júlíus Örn Ásbjörnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+3

Gestirnir fara með þrjú stig með sér norður.

Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í kvöld.
90. mín
+2

Þetta virðist vera að renna í sandinn fyrir Fylkiskonur.
90. mín
Við erum komin í uppbótartíma.
90. mín
Inn:Emilía Dís Óskarsdóttir (Fylkir) Út:Helga Guðrún Kristinsdóttir (Fylkir)
90. mín
Fyrirgjöf fyrir mark Tindastóls sem Helga Guðrún reynir að ná til en hún fellur í teignum. Dómarinn ekki á því að þetta sé brot en Fylkismenn ekki sáttir.
89. mín
Tindastóll fær hornspyrnu.
88. mín
Amber kemur út úr teignum og brýtur á Viennu sem er nálægt því að ná til boltans. Vienna fær ekkert en þetta leit allavega út fyrir að vera klárt brot.
87. mín
Murielle kemst ein gegn Tinnu Brá en setur boltann beint á Tinnu Brá sem er ekki í neinum vandræðum.
87. mín
Agnes Birta með fína fyrirgjöf en Bryndís kemur þessu frá.
85. mín
Fylkir fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, ná ekki að nýta þetta.
82. mín Rautt spjald: Aldís María Jóhannsdóttir (Tindastóll )
Virðist vera að fá sitt annað gula spjald fyrir brot á varnarmanni Fylkis. Missti af fyrra spjaldinu.
80. mín
Inn:Elísa Björk Hjaltadóttir (Fylkir) Út:Emily Elizabeth Brett (Fylkir)
79. mín
Aftur fær Fylkir hornspyrnu.

Boltinn flýgur í gegnum allan teiginn og gestirnir koma þessu frá.
77. mín
Fylkir fær hornspyrnu.
75. mín
Inn:Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll ) Út:Arna Kristinsdóttir (Tindastóll )
Markaskorarinn út og Lara Margrét kemur inn.
75. mín
Murielle í góðu færi!

Aldís María með góðan undirbúning, þræðir sig í gegnum vörnina og finnur Murielle í teignum en hún stýrir boltanum framhjá markinu.
73. mín
Nú keyra gestirnir upp völlinn en rangstaða dæmd.
73. mín
Áfram er Fylkir í sókn, Emily setur boltann út í teiginn á Söru Dögg sem hittir boltann illa.
72. mín
Helga Guðrún komin upp vinstra megin og reynir fyrirgjöf en nær ekki að halda boltanum inn á. Tindastóll fær markspyrnu.
71. mín
Aftur fær Tindastóll hornspyrnu.

Ekkert kemur út úr þessari, brotið á Söru Dögg sem keyrir með boltann út úr vörninni. Fylkir fær aukaspyrnu.
70. mín
Hannah Jane Cade með hornspyrnuna sem er stórhættuleg. Tinna Brá nær ekki til boltans og það vantar bara einhverja nógu grimma í teignum til að koma boltanum inn. Fylkisvörnin gerir þó vel og kemur þessu burt.
69. mín
Aldís María fer framhjá tveimur varnarmönnum Fylkis og reynir skot á markið en uppsker hornspyrnu.
67. mín
Murielle í fínu skotfæri rétt fyrir utan teig, skotið fer vel framhjá markinu.
62. mín
Agnes Birta með fyrirgjöf sem Helga Guðrún nær til en Amber ver vel.
59. mín
Inn:Bergljót Ásta Pétursdóttir (Tindastóll ) Út:Sólveig Birta Eiðsdóttir (Tindastóll )
Tindastóll gerir sína fyrstu skiptingu.
58. mín
Fyrirgjöf að marki Tindastóls og Emily er grimm og reynir að ná til boltans en lendir á Amber og verður fyrir smá hnjaski. Hún stendur svo upp og er tilbúin að halda áfram.
57. mín
Fylkiskonur halda áfram að ná upp fínu spili en eru í vandræðum á síðasta þriðjungi.
55. mín
Nú reynir Murielle sendingu upp hægra vænginn á Aldísi en sendingin aftur of föst og fer aftur fyrir.
54. mín
Fylkir fær aukaspyrnu rétt fyrir innan vallarhelming Tindastóls.

Klara Mist tekur spyrnuna inn á teig en Stólarnir skalla burt.
53. mín
Murielle reynir sendingu í gegn á Hugrúnu en sendingin er allt of föst fyrir Hugrúnu sem nær ekki til boltans.
51. mín
Seinni hálfleikur fer rólega af stað.
46. mín
Inn:Helga Valtýsdóttir Thors (Fylkir) Út:Tinna Harðardóttir (Fylkir)
Fylkir gerir breytingu í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
45. mín


Það var varnarmaðurinn Arna Kristinsdóttir sem skoraði mark Tindastóls. Hún er á láni frá Þór/KA.
45. mín
Hálfleikur
Fylkiskonur ná einni sókn áður en Tómas flautar til hálfleiks. Sara Dögg nær skoti fyrir utan teig en það fer framhjá markinu.

Fyrri hálfleikur frekar jafn en gestirnir hafa átt fleiri tækifæri fyrir framan markið.
45. mín MARK!
Arna Kristinsdóttir (Tindastóll )
Stoðsending: Murielle Tiernan
Stólarnir ná forystunni rétt fyrir hálfleikinn!

Hannah Jane Cade með hornspyrnuna sem berst á Murielle sem reynir að koma boltanum á markið en hann berst á Örnu sem á hnitmiðað skot í vinstra hornið!
45. mín
Hannah Jane Cade reynir fyrirgjöf en boltinn fer af varnarmanni og aftur fyrir. Tindastóll fær hornspyrnu.
44. mín
Mjög rólegt og tíðindalítið síðustu mínútur.
39. mín
Aldís María með góða fyrirgjöf og Hugrún mætir á ferðinni en setur boltann yfir markið. Þetta var fínasta færi!
35. mín
Tindastóll fær hornspyrnu. Aldís María með góðan sprett upp hægri vænginn og boltinn fer af Sunnevu og aftur fyrir.
31. mín
Fylkir fær hornspyrnu eftir góða sókn.
30. mín
Aldís María við það að sleppa ein í gegn en Tinna Brá vel á verði og er fyrst til boltans.
29. mín
Vienna með fína fyrirgjöf en Helga Guðrún nær ekki almennilega til boltans.
27. mín
Lítið að frétta hér. Liðin skiptast á að sækja en eru ekki að finna miklar opnanir.
23. mín
María Dögg með fyrirgjöf en Tinna Brá grípur boltann.

Tindastóll að sækja mikið upp hægri vænginn.
21. mín
Murielle reynir sendingu upp hægra megin á Aldísi en sendingin er of föst og fer aftur fyrir.
18. mín
María Dögg með fyrirgjöf frá hægri, fer af varnarmanni Fylkis og aftur fyrir, þriðja hornspyrna Tindastóls.

Mikið klafs í teignum og Tindastóll nálægt því að koma boltanum inn en Tinna Brá fær markspyrnu.
17. mín
Tindastóll fær hornspyrnu.

Hannah Jane Cade tekur spyrnuna, Tinna Brá misreiknar aðeins boltann sem flýgur í gegnum allan teiginn en engin nær til hans. Stólarnir hefðu getað nýtt sér þetta betur!
14. mín
Tinna fær boltann í höfuðið af stuttu færi og liggur eftir, fær aðhlynningu. Vonandi er í lagi með hana.
11. mín
Tinna nálægt því að senda Helgu Guðrúnu í gegn en sendingin gengur ekki upp. Fylkiskonur búnar að vera meira með boltann síðustu mínútur og eru að ná upp fínasta spili.
7. mín
Hannah Jane Cade með fyrirgjöf fyrir mark Fylkis en Tinna Brá gerir vel og grípur boltann.
3. mín
Hinum megin keyra gestirnir upp og Aldís María kemur með góðan bolta fyrir markið sem Murielle skallar beint í fangið á Tinnu Brá. Murielle hefur alveg skorað mörk úr verri færum en þetta!
2. mín
Færi!!

Helga Guðrún tekur boltann af Bryndísi í öftustu línu og kemst ein gegn Amber sem tekur hana niður í teignum. Tómas er á því að þarna hafi Amber bara tekið boltann en stuðningsmenn Fylkis vilja víti og láta vel í sér heyra!

Héðan úr blaðamannastúkunni sýndist þetta vera víti.
1. mín
Tindastóll fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru heimakonur í Fylki sem hefja leik og sækja í átt að sundlauginni.
Fyrir leik
Liðin eru að ljúka við upphitun og skokka í átt að búningsklefum til að stilla saman strengi sína.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!

Fylkir gerir eina breytingu frá síðasta leik, Helga Guðrún Kristinsdóttir kemur inn fyrir Evu Rut Ásþórsdóttur sem er í liðstjórn í kvöld.

Einnig ein breyting á liði Tindastóls, Kristrún María Magnúsdóttir kemur inn og Lara Margrét Jónsdóttir tekur sér sæti á bekknum.
Fyrir leik

Tómas Wolfgang Meyer dæmir leikinn og honum til aðstoðar eru Uchechukwu Michael Eze og Hrannar Björn Arnarsson.
Fyrir leik
Bæði lið eru með nýja þjálfara.

Halldór Jón Sigurðsson (Donni) tók við Tindastólsliðinu af Guðna Þór Einarssyni og Óskar Smára Haraldssyni.

Jón Stein­dór Þor­steins­son og Rakel Logadóttir tóku við liði Fylkis en Jón Steindór hafði þó komið inn í þjálfarateymið á miðju síðasta sumri ásamt Margréti Magnúsdóttur. Kjartan Stefánsson hætti sem þjálfari liðsins.
Fyrir leik
Töluverðar breytingar hafa verið á leikmannahópum liðanna á milli tímabila. Bæði lið misstu marga sterka leikmenn eftir fallið en þá sérstaklega Fylkiskonur.

Skoðum aðeins komnar/farnar hjá liðunum:

FYLKIR

Komnar:
Katrín Mist Kristinsdóttir frá Stjörnunni
Melkorka Ingibjörg Pálsdóttir frá Grindavík
Klara Mist Karlsdóttir frá Stjörnunni
Vienna Behnke frá Haukum
Eygló Þorsteinsdóttir frá Haukum
Helga Guðrún Kristinsdóttir frá Trikala, Grikklandi
Sóley Margrét Valdimarsdóttir frá SR
Emily Brett frá Barnsley, Englandi

Farnar:
Þórhildur Þórhallsdóttir í Aftureldingu
Ísafold Þórhallsdóttir í Aftureldingu
Þórdís Elva Ágústsdóttir í Val
Sæunn Björnsdóttir í Þrótt R.
Katla María Þórðardóttir í Selfoss
Íris Una Þórðardóttir í Selfoss
Bryndís Arna Níelsdóttir í Val
María Eva Eyjólfsdóttir í Þrótt R.

TINDASTÓLL

Komnar:
Ásdís Aþena Magnúsdóttir frá KH
Sólveig Birta Eiðsdóttir frá Fram (var á láni)
Johanna Henriksson frá Fram
Hannah Jane Cade frá Fram
Arna Kristinsdóttir frá Þór/KA (á láni)
Rósa Dís Stefánsdóttir frá Hömrunum

Farnar:
Nadejda Colesnicenco í Apulia Trani, Ítalíu
Laura-Roxana Rus í Apoli Trani, Ítalíu
Dominiqe Bond-Flasza í Åland United, Finnlandi
Sylvía Birgisdóttir í Stjörnuna (var á láni)
Laufey Harpa Halldórsdóttir í Breiðablik
Hallgerður Kristjánsdóttir í Gróttu
Fyrir leik
Spáin fyrir deildina

Í spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaga deildarinnar sem hægt er að skoða hér er Tindastól spáð 3. sætinu og Fylki spáð 5. sætinu.
Fyrir leik
Fyrsta umferðin:

Í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar tapaði Fylkir 3-1 fyrir HK á heimavelli. Það var Agnes Birta Eiðsdóttir sem skoraði mark Fylkis á 15. mínútu leiksins.

Tindastóll tók á móti Grindvíkingum og unnu 2-0 sigur. Murielle Tiernan gerði bæði mörk liðsins.
Fyrir leik
Við erum að fara að sjá liðin tvö sem féllu úr efstu deild á síðasta tímabili mætast hér í kvöld.

Fylkiskonur enduðu í neðsta sætinu með 13 stig en Tindastóll var í næst neðsta sætinu með 14 stig.
Fyrir leik


Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá Wrth vellinum í Árbæ þar sem Fylkir tekur á móti Tindastól í 2. umferð Lengjudeildarinnar.

Leikurinn hefst kl. 19.15!
Byrjunarlið:
1. Amber Kristin Michel (m)
Kristrún María Magnúsdóttir
Hrafnhildur Björnsdóttir
2. Arna Kristinsdóttir ('75)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f)
7. Sólveig Birta Eiðsdóttir ('59)
9. María Dögg Jóhannesdóttir
10. Hannah Jane Cade
11. Aldís María Jóhannsdóttir
17. Hugrún Pálsdóttir
25. Murielle Tiernan

Varamenn:
12. Margrét Rún Stefánsdóttir (m)
14. Lara Margrét Jónsdóttir ('75)
16. Eyvör Pálsdóttir

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Rósa Dís Stefánsdóttir
Sveinbjörn Óli Svavarsson
Aron Örn Sigurðsson
Margrét Ársælsdóttir
Bergljót Ásta Pétursdóttir
Anna Margrét Hörpudóttir
Snæbjört Pálsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Aldís María Jóhannsdóttir ('82)