Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
ÍBV
2
1
FH
Telmo Castanheira '8 1-0
1-1 Ólafur Guðmundsson '33
Eiður Aron Sigurbjörnsson '56 2-1
05.10.2022  -  15:30
Hásteinsvöllur
Besta-deild karla - Neðri hluti
Aðstæður: Talsverður vindur og svona átta gráðu hiti.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 138
Maður leiksins: Eiður Aron Sigurbjörnsson
Byrjunarlið:
Guðjón Orri Sigurjónsson
Halldór Jón Sigurður Þórðarson
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Felix Örn Friðriksson
5. Jón Ingason ('73)
8. Telmo Castanheira
14. Arnar Breki Gunnarsson
22. Atli Hrafn Andrason ('81)
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
42. Elvis Bwomono

Varamenn:
1. Jón Kristinn Elíasson (m)
6. Kundai Benyu
9. Sito
17. Sigurður Grétar Benónýsson
19. Breki Ómarsson
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson ('81)
27. Óskar Dagur Jónasson

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Björgvin Eyjólfsson
Andri Rúnar Bjarnason

Gul spjöld:
Jón Ingason ('72)
Elvis Bwomono ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÍBV vinnur FH!
95. mín
Afleit spyrna frá Haraldi Einari, því miður fyrir FH.
94. mín
FH á aukaspyrnu við miðlínu. Atli Gunnar fer inn á vítateig ÍBV.
93. mín Gult spjald: Elvis Bwomono (ÍBV)
Lengi að taka innkast.
93. mín
Sigurður vinnur boltann við vítateig ÍBV og keyrir upp völlinn og losar þar með pressu gestanna.
91. mín
Hætta inn á vítateig ÍBV en boltinn endar í höndunum á Guðjóni Orra.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við.
90. mín
Fín hornspyrna, Jóhann Ægir reynir að komast í boltann inn á markteig. Aukaspyrna dæmd, Óskar Elías liggur eftir en er kominn á fætur.
90. mín
FH fær hornspyrnu.
89. mín
Eiður Aron og Steven Lennon missa af boltanum og Guðjón Orri er fyrstur á lausan bolta utarlega í vítateig ÍBV.
89. mín
Andri Rúnar með tilraun framhjá marki FH.
88. mín
Ólafur Guðmundsson!

Boltinn dettur fyrir Ólaf inn á vítateig ÍBV, hann pikakr í boltann en skotið beint á Guðjón Orra.
87. mín
FH-ingar að banka.
85. mín
Frábær skipting frá Ólafi yfir á Oliver en móttakan sveik Oliver og hann missir boltann aftur fyrir.
84. mín
Haraldur Einar með aukaspyrnu inn á vítateig ÍBV en enginn samherji nær til boltans.
82. mín
Langt innkast frá Jóhanni sem skoppar upp í hendurnar á Guðjóni.
81. mín
Inn:Máni Austmann Hilmarsson (FH) Út:Björn Daníel Sverrisson (FH)
81. mín
Inn:Haraldur Einar Ásgrímsson (FH) Út:Ástbjörn Þórðarson (FH)
Haraldur fer í vinstri bakvörð, Ólafur í miðvörð og Jóhann Ægir í hægri bakvörð.
81. mín
Inn:Óskar Elías Zoega Óskarsson (ÍBV) Út:Atli Hrafn Andrason (ÍBV)
78. mín
Ástbjörn með skot sem fer langt framhjá marki ÍBV.
76. mín
Eiður Aron skallar spyrnu Kristins í burtu. Kristinn kemur með annan bolta en hann fer yfir allan pakkann.

Það hefur bætt í vindinn ef eitthvað er.
75. mín
FH fær hornspyrnu.
74. mín
Sigurður með fyrirgjöf sem vindurinn grípur og svo er það Atli Gunnar sem kemur út úr markinu og grípur boltann.
73. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (ÍBV) Út:Jón Ingason (ÍBV)
Felix fer væntanlega í bakvörðinn.
72. mín Gult spjald: Jón Ingason (ÍBV)
Var eitthvað að bíða eftir að Atli Hrafn kæmi sér í stöðu eftir samtal við Hermann við bekkinn. Gult spjald fyrir leiktöf.
71. mín
Kristinn Freyr með mjög góðan bolta sem fer í gegnum teiginn.

Á fjærstönginni er Matthías Vilhjálmsson og hann á skalla sem fer beint í hendurnar á Guðjóni Orra. Þetta var dauðafæri!
70. mín
Jóhann Ægir með fínan sprett, á fyrirgjöf og Eiður Aron þarf að hreinsa aftur fyrir. Gestirnir fá horn.
70. mín
FH-ingar aðeins að bæta í.
68. mín
FH-ingar vinna hornspyrnu.

Spyrnan frá Birni Daníel beint á fremsta mann. Svo á Finnur Orri skallann inn á teiginn en engin hætta þar á ferðum.
67. mín
Jón Ingason með frábæra, fasta fyrirgjöf inn á vítateiginn en samherjar hans ekki nægilega mikið á tánum til að komast í þennan bolta.
66. mín
Inn:Finnur Orri Margeirsson (FH) Út:Davíð Snær Jóhannsson (FH)
Tvöföld breyting. Davíð hafði átt fínasta leik en klikkaði í seinna marki ÍBV.
66. mín
Inn:Matthías Vilhjálmsson (FH) Út:Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
65. mín
Lennon með 'no-look' sendingu inn á Úlf Ágúst en Eiður Aron nær að skýla boltanum og Guðjón hirðir hann upp.
63. mín
Flott sókn hjá ÍBV, Arnar Breki á sendingu inn á Felix sem lætur vaða með hægri en skotið fer yfir mark gestanna.
62. mín
Jón Ingason með aukaspyrnu utan af vinstri kantinum. Eiður Aron kemst í boltann á fjærstönginni en skallinn fer talsvert langt framhjá.
62. mín
138 áhorfendur á vellinum.
61. mín
Björn Daníel með skottilraun fyrir utan vítateig ÍBV. Skot hans fer framhjá fjærstönginni.
60. mín
Inn:Oliver Heiðarsson (FH) Út:Baldur Logi Guðlaugsson (FH)
56. mín MARK!
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
NEGLA!!

Eiður Aron kemur heimamönnum yfir! Davíð Snær í allskonar brasi að koma boltanum frá sér inn á vítateig FH og Eiður Aron kemst í boltann. Eiður þrumaði í fyrsta og boltinn söng í netinu.
55. mín
Guðmundur Kristjánsson rennir sér úti við hornfána og brýtur á Arnari Breka. Heimamenn eiga aukaspyrnu, fín fyrirgjafarstaða. ÍBV að komast betur í takt við leikinn.
54. mín
Telmo með skalla eftir hornspyrnu Atla Hrafns. Skallinn fer ekki á markið en helst inn á vellinum. Sókn heimamanna rennur út í sandinn.
53. mín
ÍBV á hornspyrnu.
52. mín
Ástbjörn með hörkutæklingu við hliðarlínu, rennir sér og fer í boltann rétt fyrir framan Jón Ingason. Aukaspyrna er dæmd.

Eyjamenn vilja fá rautt, en ekkert spjald fer á loft.
51. mín
Jóhann Ægir með langt innkast sem skallað er til baka og svo á Jóhann fyrirgjöf sem er of há og fer yfir allan pakkann.

ÍBV gengur ekki vel þessar fyrstu mínútur í mótvindi.
50. mín
Síðustu þrjár mínútur einkennast ekki beint að fallegum fótbolta... hvorugt liðið nær að halda í boltann.
48. mín
Spyrnan frá Kristni á fremsta mann, Felix skallar í burtu.
47. mín
FH fær hornspyrnu.
47. mín
Baldur Logu og Kristinn með boltann inn á vítateig Eyjamanna sem koma boltanum í innkast.
46. mín
ÍBV byrjar með boltann í seinni og sækir gegn vindi. Engin skipting í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
ÍBV byrjaði leikinn talsvert betur en eftir um tuttugu mínútur náði FH takti í sinn leik og seinni hluta hálfleiksins var jafnræði með liðunum.
45. mín
Hálfleikur
Fyrir þá sem hugsa með sér af hverju skortaflan í Eyjum sýnir stöðuna 1-0 þá er svarið við því að talan "1" virkar ekki gesta megin.
45. mín
Hálfleikur
Skotið frá Eiði Aroni fer hátt yfir mark FH og Pétur flautar í kjölfarið til hálfleiks.
45. mín
Atli Gunnar með spyrnu upp völlinn sem deyr í loftinu áður en boltinn kemst að miðjuboganum. Í kjölfarið brýtur Guðmundur af sér.

Eiður Aron ætlar að láta vaða held ég.
42. mín
Atli Hrafn með eina afleita aukaspyrnu, aldrei líkleg til að finna samherja.
41. mín
Ólafur Guðmundsson með fyrirgjöf sem Guðjón Orri handsamar.

Eyjamenn sækja hratt og Björn Daníel brýtur á Arnari Breka þegar hann er á leiðinni framhjá honum.
37. mín
Telmo með skot hátt yfir mark gestanna.
37. mín Gult spjald: Jóhann Ægir Arnarsson (FH)
Braut á Arnari Breka sem ætlaði að taka spretinn í gegn með boltann.
33. mín MARK!
Ólafur Guðmundsson (FH)
Stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson
FH jafnar!!

Ólafur Guðmundsson skallar boltann í markið eftir hornspyrnu frá Kristni Frey! Jón Ingason féll í baráttunni inn á teignum en erfitt að sjá hvort um brot var að ræða. Ekki margir Eyjamenn sem báðu um eitthvað allavega.
33. mín
Felix nálægt því að komast í kjörstöðu inn á vítateig FH en Atli Gunnar er vel vakandi og hirðir lausa boltann.

FH sækir upp hinumegin og vinnur hornspyrnu.
31. mín
Arnar Breki gerir sig líklegan við vítateig FH en er stöðvaður þar.

Hinumegin á svo Jón Ingason frábæra stemnings tæklingu og kemur boltanum í innkast.
29. mín
Arnar Breki dæmdur brotlegur gegn Ástbirni. Virkaði ekki mikið héðan en ég treysti Pétri fyrir þessu. FH á aukaspyrnu við eigin vítateig.
28. mín
Ólafur með vitlaust innkast og ÍBV fær því innkast.
26. mín
FH fær hornspyrnu.

Flott spyrna hjá Birni Daníel sem Eyjamenn ná ekki að hreinsa í burtu og FG fær annð horn.

Telmo skallar þann bolta stutt í burtu og svo eftir skottilraun frá gestunum ná Eyjamenn að hreinsa almennilega.
24. mín
Arnar Breki fær góða sendingu upp vinstri kantinn og á svo góðan sprett inn á vítateig gestanna, kemst í fyrirgjafarstöðu en Guðmundur nær að koma boltanum í burtu.
23. mín
Jóhann Ægir kemur í veg fyrir að Arnar Breki sleppi í gegn við miðlínu. Þarna mátti litlu muna!
21. mín
Lennon í góðu færi á fjærstönginni eftir fyrirgjöf en Guðjón Orri lokar vel á hann og handsamar boltann að lokum.
20. mín
Úlfur með skot eftir góða pressu frá Ólafi. Sýndist það vera Sigurður sem komst fyrir.
15. mín
Það skal tekið fram að ÍBV er að spila með talsverðum vindi.
14. mín
Alex með skottilraun sem Ástbjörn hendir sér fyrir og boltinn fer aftur í Alex og þaðan aftur fyrir.

ÍBV að byrja af miklum krafti!
13. mín
Sigurður með skot rétt framhjá marki FH eftir innkast.
13. mín
Eyjamenn með hornspyrnu af æfingasvæðinu, einhverjar krúsídúllur sem enda með fyrirgjöf frá Alex og skoti frá Felix.
12. mín
Arnar Breki með skalla eftir fyrirgjöf frá Atla Hrafni. Boltinn fór af Guðmundi og ÍBV á horn.
11. mín
Atli Gunnar í smá brasi með utanfótar snuddu fá Telmo.
9. mín
Sýndist Baldur Logi biðla eitthvað til dómara um að Atli hefði handleikið boltann. Var afskaplega klaufalegt hvernig Atli datt rétt á undan eftir frábært útspark frá Guðjóni.
8. mín MARK!
Telmo Castanheira (ÍBV)
Stoðsending: Atli Hrafn Andrason
Váááááááá!!!!

Geggjað mark. Telmo lætur vaða með vinstri fyrir utan teig, aðeins vinstra meginn, og boltinn í fjærhornið. Alveg óverjandi fyrir Atla Gunnar.

Spurning hvort Atli hafi handleikið boltann þegar hann datt í grasið rétt á undan.
7. mín
Felix með langt innkast inn á teig FH en gestirnir verjast vel.
6. mín
Uppstilling ÍBV:
Guðjón
Elvis - Sigurður - Eiður - Jón
Felix - Alex - Telmo - Atli
Halldór - Arnar
6. mín
Spyrnan fraá Jóni fer yfir allan pakkann og framhjá fjærstönginni.
5. mín
Halldór vinnur hornspyrnu fyrir ÍBV.
4. mín
Boltinn í slána!

Guðjón Orri í smá brasi, einhver köll eftir broti en ekkert dæmt. Eyjamenn sleppa.
4. mín
Lennon vinnur hornspyrnu fyrir FH.
1. mín
Uppstilling FH:
Atli
Ástbjörn - Jóhann - Guðmundur - Ólafur
Björn Daníel
Baldur - Davíð - Kristinn - Lennon
Úlfur
1. mín
Leikur hafinn
FH byrjar með boltann!
Fyrir leik
Liðin ganga út á völlinn. FH í bláu og ÍBV í hvítu.
Fyrir leik
Fimm mínútur í leik og það eru kannski tuttugu í stúkunni. Einn með Leicester húfu, væntanlega hæstánægður með sigurinn á mánudag.
Fyrir leik
Það er talsverður vindur á Hásteinsvelli í dag og einhverjar átta gráður. Mæli með úlfpu, teppi, húfu og vettlingum. Engin úrkoma eins og er.
Fyrir leik
Þrjár og fjórar breytingar á liðunum!
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn Breiðabliki þann 17. september. Guðjón Ernir Hrafnkelsson tekur út leikbann og þeir Andri Rúnar Bjarnason og Kundai Benyu taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Jón Ingason, Halldór Jón Sigurður Þórðarson og Atli Hrafn Andrason.

Þjálfarateymi FH gerir fjórar breytingar á liðinu frá því á laugardag. Þeir Eggert Gunnþór Jónsson, Matthías Vilhjálmsson og Oliver Heiðarsson setjast á bekkinn en Vuk Oskar Dimitrijevic er ekki í hópnum í dag. Inn í liðið koma þeir Jóhann Ægir Arnarsson, Baldur Logi Guðlaugsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og Steven Lennon.
Fyrir leik
Það var ekkert sérstaklega gott í sjóinn á leiðinni til Eyja. Spurning hvort það hafi einhver áhrif á FH-inga.
Fyrir leik
Þar sem ÍBV var að koma upp úr næst efstu deild í vor hafa liðin lítið mæst á undanförnum árum en þau áttu að mætast í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í nóvember 2020. Mótinu var þá skyndilega hætt vegna Covid-19 faraldursins.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Guðjón Ernir Hrafnkelsson leikmaður ÍBV missir af leiknum í dag en hann tekur út leikbann vegna fjögurra gulra spjalda.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Kjartan Kári Halldórsson, markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í ár, spáir í leiki umferðarinnar. Hann býst við heimasigri.

ÍBV 1 - 0 FH
Rok og rigning í Eyjum, sem eyjamenn elska og Andri Rúnar skorar úr umdeildu víti á 80 mínútu sem mun skilja liðin að.
Kjartan Kári býst við heimasigri.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Pétur Guðmundsson dæmir leikinnn í dag og er með þá Gylfa Má Sigurðsson og Ragnar Þór Bender sér til aðstoðar á línunum.

Gunnar Oddur Hafliðason er skiltadómari og KSÍ sendir Þórð Georg Lárusson sem eftirlitsmann. Hann fylgist með störfum dómara og umgjörð leiksins.

Pétur Guðmundsson dæmir leikinn í dag.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
ÍBV og FH eru í bullandi fallbaráttu nú þegar bæði lið eiga fimm leiki eftir af tímabilinu.

ÍBV er í 9. sætinu með 20 stig, hafa unnið fjóra leiki, gert 8 jafntefli og tapað 10.

FH er í fallsæti, 11. sæti með 19 stig. Þeir hafa líka unnið fjóra leiki, gert sjö jafntefli og tapað 11.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna fór fram í Kaplakrika 15. maí síðastliðinn. FH vann þá 2 - 0 sigur með mörkum frá Matthíasi Vilhjálmssyni og Davíð Snæ Jóhannssyni í sitthvorum hálfleiknum.

FH 2 - 0 ÍBV
1-0 Matthías Vilhjálmsson ('29)
2-0 Davíð Snær Jóhannsson ('64)

Síðari leikur liðanna fór fram á Hásteinsvelli 24. ágúst og þá vann ÍBV stórsigur, 4 - 1.

ÍBV 4 - 1 FH
1-0 Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('9)
2-0 Eiður Aron Sigurbjörnsson ('13)
3-0 Andri Rúnar Bjarnason ('35, víti)
3-1 Úlfur Ágúst Björnsson ('62)
4-1 Felix Örn Friðriksson ('72)

Úr fyrri leik liðanna í Kaplakrika.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikurinn átti upphaflega að fara fram um nýliðna helgi en þar sem FH komst í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á laugardaginn gekk það ekki upp.

Leiktíminn í dag 15:30 er óvenjulegur, en ástæðan er að birtuskilyrði þegar komið er svo langt fram á haustið eru ekki góð á kvöldin og Hásteinsvöllur er ekki búinn flóðljósum.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign ÍBV og FH í Bestu-deild karla.

Leikurinn hefst klukkan 15:30 á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
2. Jóhann Ægir Arnarsson
4. Ólafur Guðmundsson
7. Steven Lennon
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
10. Björn Daníel Sverrisson ('81)
11. Davíð Snær Jóhannsson ('66)
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Baldur Logi Guðlaugsson ('60)
22. Ástbjörn Þórðarson ('81)
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('66)

Varamenn:
3. Haraldur Einar Ásgrímsson ('81)
6. Eggert Gunnþór Jónsson
8. Finnur Orri Margeirsson ('66)
9. Matthías Vilhjálmsson ('66)
22. Oliver Heiðarsson ('60)
23. Máni Austmann Hilmarsson ('81)

Liðsstjórn:
Eiður Smári Guðjohnsen (Þ)
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Davíð Þór Viðarsson
Fjalar Þorgeirsson
Heiðar Máni Hermannsson
Andres Nieto Palma
Steinar Stephensen

Gul spjöld:
Jóhann Ægir Arnarsson ('37)

Rauð spjöld: