Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Besta-deild karla
KR
16:15 0
0
Fram
Besta-deild karla
HK
83' 0
2
FH
FH
4
2
Leiknir R.
Jóhann Ægir Arnarsson '14 1-0
Matthías Vilhjálmsson '17 , víti 2-0
2-1 Zean Dalügge '32
Matthías Vilhjálmsson '74 3-1
Matthías Vilhjálmsson '77 4-1
4-2 Mikkel Jakobsen '80
10.10.2022  -  15:15
Kaplakrikavöllur
Besta-deild karla - Neðri hluti
Aðstæður: Góðar!
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 1137
Maður leiksins: Matthías Vilhjálmsson
Byrjunarlið:
32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
Jóhann Ægir Arnarsson
4. Ólafur Guðmundsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
9. Matthías Vilhjálmsson (f) ('81)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Davíð Snær Jóhannsson ('73)
16. Guðmundur Kristjánsson
22. Oliver Heiðarsson ('86)
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('46)

Varamenn:
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
7. Steven Lennon ('73)
8. Finnur Orri Margeirsson ('46)
17. Baldur Logi Guðlaugsson ('86)
23. Vuk Oskar Dimitrijevic
23. Máni Austmann Hilmarsson ('81)

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Davíð Þór Viðarsson
Ólafur H Guðmundsson
Fjalar Þorgeirsson
Jóhann Emil Elíasson
Heiðar Máni Hermannsson
Andres Nieto Palma

Gul spjöld:
Kristinn Freyr Sigurðsson ('90)
Eggert Gunnþór Jónsson ('94)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið! FH vinnur 4-2 heimasigur!
94. mín
FH á aukaspyrnu á hægri kantinum. Þessu er að ljúka.
94. mín
Máni fer niður í teignum, fannst vera vítalykt af þessu.
94. mín Gult spjald: Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
93. mín
FH er að landa gífurlega mikilvægum stigum!
92. mín
Baldur Logi með skot eftir hraða sókn en skot hans fer í varnarmann.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við.
90. mín Gult spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson (FH)
89. mín
Leiknir á hornspyrnu.

Guðmundur skallar í burtu og FH-ingar sækja.
86. mín
Inn:Baldur Logi Guðlaugsson (FH) Út:Oliver Heiðarsson (FH)
85. mín
Leiknir á hornspyrnu.

Skalli frá Brynjari í stöngina!! Atli fær boltann óvænt í hendurnar. FH-ingar heppnir þarna.
81. mín
Inn:Máni Austmann Hilmarsson (FH) Út:Matthías Vilhjálmsson (FH)
Matta vel fagnað þegar hann fer af velli. Þrenna í dag.
80. mín MARK!
Mikkel Jakobsen (Leiknir R.)
Frábærlega gert hjá Mikkel!

Adam með fyrirgjöf sem skölluð er til hliðar og þar er Mikkel. Hann sýnir yfirvegun og smellir boltanum í fjærhornið.
78. mín
Matti með fasta fyrirgjöf sem Lennon reynir að stýra á markið en skallar framhjá markinu.
77. mín MARK!
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson
Frábærlega gert hjá Kristni!!!

Kiddi fékk færi eftir langt innkast en náði ekki að koma boltanum á markið. Fékk boltann aftur skömmu seinna, á frábæran sprett inni á teignum, lyfti boltanum fyrir og Matti klippti boltann í netið.

Þriggja marka munur!
75. mín
Inn:Mikkel Jakobsen (Leiknir R.) Út:Kristófer Konráðsson (Leiknir R.)
74. mín MARK!
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Stoðsending: Oliver Heiðarsson
FH komið með tveggja marka forystu!

Glæsileg fyrirgjöf frá Oliver af hægri vængnum. Boltinn finnur Matthías inni á markteignum og Matthías hamrar boltann með höfðinu í netið.
73. mín
Inn:Steven Lennon (FH) Út:Davíð Snær Jóhannsson (FH)
72. mín
Hjalti með þrumuskot rétt framhjá marki FH. Góð skyndisókn hjá Leikni!
69. mín
FH á aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Leiknis. Fín fyrirgjafarstaða fyrir Kristin.

Leiknismenn verjast þessu vel og boltinn endar í höndunum á Viktori.
67. mín
Birgir reynir fyrirgjöf í kjölfar aukaspyrnunnar en hún fer of innarlega og aftur fyrir. FH á markspyrnu.
66. mín
Aftur hreinsa FH-ingar en núna eiga Leiknismenn aukaspyrnu úti hægra megin á miðjum vallarhelmingi FH.
65. mín
Birgir fær boltann úti vinstra megin í teignum og á skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.
64. mín
Leiknir á hornspyrnu.

FH-ingar hreinsa og Leiknir byggir upp nýja sókn.
63. mín
Fínasta sókn hjá Leikni og áfram er Zean með skemmtileg tilþrif, finnur Kristófer í fínni stöðu en hann finnur ekki samherja.
61. mín
Jóhann er kominn aftur inn á.
60. mín
Jóhann liggur eftir og fær aðhlynningu.
58. mín
Hörkusókn hjá FH, Oliver fær boltann úti hægra megin, kemur sér inn á teiginn, leggur boltann út og þar er Kristinn á miklum spretti. Kristinn hittir boltann ekki vel og fer skotið yfir mark Leiknis.
55. mín
Jóhann Ægir með langt innkast sem er framlengt inn á teiginn, þar í miðjum teignum er Björn Daníel og hann reynir að flikka boltann með hælnum á markið en tilraunin fer framhjá.
54. mín
Davíð með fyrirgjöf inn á Matta sem pikkar í boltann inni á markteignum, Viktor ver og Dagur hreinsar svo í burtu.
53. mín
Atli Gunnar slær fyrirgjöfina til hliðar. Hjalti kemst í boltann og á skot sem fer framhjá.
53. mín
Leiknir á hornspyrnu.

Áhorfendur styðja vel við sín lið þessa stundina.
51. mín
1137 áhorfendur segir Tómas Meyer!
47. mín
FH á hornspyrnu.

Kristinn með fína spyrnu, finnur Ólaf Guðmundsson sem á skalla en Viktor ver skallann frá honum og heldur boltanum.
46. mín
Brynjar Hlöðvers fær fyrirliðabandið og fer í hjarta varnarinnar. Dagur fer vinstra megin í þriggja manna miðvarðalínu og Gyrðir er hægra megin.

Hjá FH færist Matthías upp á topp.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!

FH byrjar með boltann.
46. mín
Inn:Dagur Austmann (Leiknir R.) Út:Bjarki Aðalsteinsson (Leiknir R.)
46. mín
Inn:Finnur Orri Margeirsson (FH) Út:Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
45. mín
Hálfleikur
Finnur Orri er að koma inn á hjá FH.
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleik lokið!

Dálítið kaflaskipt, FH-ingar byrjuðu betur en Leiknismenn verið öflugri eftir að þeir minnkuðu muninn.
45. mín
Inn:Róbert Hauksson (Leiknir R.) Út:Mikkel Dahl (Leiknir R.)
Mikkel getur ekki haldið leik áfram.
45. mín
45+1

Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleikinn.
45. mín
Guðmundur nær að vinna boltann af Mikkel, löglega að mati Helga Mikaels, ekki langt fyrir utan vítateig FH.

Mikkel liggur eftir, virðist hafa fengið krampa.
44. mín
Sókn Leiknis endar á þrumuskoti Emil Berger framhjá marki FH. Skömmu áður átti Zean skemmtilega takta úti hægra megin og náði að koma boltanum frá sér þó hann hefði misst jafnvægið.
41. mín
Nokkuð þung sókn frá Leikni þessa stundina.
38. mín
Það er góð mæting í Kaplakrika. Bréf FH-inga í gær lítur út fyrir að hafa verið taktísk snilld.
36. mín
Helgi Mikael ræðir við Sigurvin sem er ósáttur við að FH hafi ekki fengið víti.
35. mín
Víti?!?

Oliver fer niður í vítateig Leiknis. Birgir fer í bakið á honum og það var ansi sterk lykt af þessu. Ekkert dæmt.
34. mín
Kristófer í hörkufæri!

Vörn FH lítur ekki vel út þessar mínúturnar. Guðmundur í vandræðum, Hjalti kemst í boltann og leggur út á Kristófer en skot hans við vítateiginn fer í Jóhann Ægi og aftur fyrir.

Heimamenn ná svo að verjast hornspyrnunni.
32. mín MARK!
Zean Dalügge (Leiknir R.)
Stoðsending: Adam Örn Arnarson
Leiknir minnkar muninn!

Þetta var einfalt, þríhyrningsspil á milli Zean og Adam. Adam með sendingu yfir Ólaf, Guðmundur mætti ekki á boltann og Zean kemst í skotið og skýtur framhjá Atla Gunnari.
30. mín
Leiknismenn snöggir að taka aukaspyrnuna, Emil Berger með sendinguna á Kristófer sem reynir að finna samherja inn á teignum en boltinn of innarlega og í hendurnar á Atla í markinu.
30. mín
Eggert brýtur á Kristófer og fær tiltal frá Helga Mikael.
25. mín
Atli grípur boltann og er snöggur að koma honum á Oliver á vængnum. FH kemst í fínustu stöðu og Matthías er óheppinn að fá ekki horn, boltinn fer eftir fyrirgjöf sem Berger náði að stoppa.
24. mín
Leiknir á aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi FH. Berger stendur yfir boltanum.

Fínn bolti frá þeim sænska sem Guðmundur skallar aftur fyrir. Leiknir á horn.
22. mín
Kristinn lætur vaða en skotið í vegginn.
21. mín
FH á aukaspyrnu við vítateig Leiknis. Brotið á Oliver.
17. mín Mark úr víti!
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Ekki fastasta spyrnan en alveg niðri í hornið.

FH komið í 2-0!
16. mín
VÍTI!!!!

FH fær víti!

Held það sé Gyrðir sem brýtur á Matta. Leiknismenn ekki sáttir með þennan dóm. Vindhögg frá Gyrði og Matti féll við.
16. mín
FH hefur byrjað þennan leik vel. Núna á liðið horn.
14. mín MARK!
Jóhann Ægir Arnarsson (FH)
FH er komið yfir!!

Frábærlega gert hjá Jóhanni. Jóhann með fyrirgjöf, Bjarki skallar í burtu, Jóhann er ákveðnari í Kristófer í næsta bolta, kemur sér inn á teiginn og klárar með góðu skoti með vinstri fæti í fjærhornið. Kristófer hálf sofandi þarna!
12. mín
Langt innkast frá Jóhanni sem Kristinn er nálægt því að komast í. Viktor hirðir upp boltann.
10. mín
Hjalti með vippu inn á Zean sem á tilraun en hún er laus og Atli Gunnar tekur upp boltann. Einhver köll eftir því að brotið hefði verið á Zean en ekkert er dæmt.
9. mín
FH-ingar pressa gestina hátt í byrjun.
8. mín
Fínasta sókn hjá FH endar á misheppnaðri fyrirgjöf frá Birni Daníel.
7. mín
Leiknismenn fá hornspyrnu en FH-ingar skalla hana í burtu.
6. mín
MIKIL HÆTTA OG DARRAÐADANS!
Þarna skall hurð nærri hælum hjá Leikni.

Góð spyrna frá Birni Daníel og FH-ingar eiga 2-3 tilraunir inn á teignum. Eggert fyrst með fast skot og svo í kjölfarið darraðadans inn á markteig.
5. mín
Jóhann Ægir!

Reynir þrumuskot við vítateiginn og Viktor þarf að verja þennan aftur fyrir. FH á horn.
4. mín
Eggert með langan bolta fram á Úlf sem kemur honum á Kristin sem á skot fyrir utan teig. Skotið er frekar laust og Viktor ekki í neinum vandræðum með það.
3. mín
Uppstilling Leiknis:
Viktor
Adam - Gyrðir - Bjarki - Brynjar - Birgir
Emil
Hjalti - Kristófer
Zean - Mikkel
2. mín
Uppstilling FH:

Atli
Jóhann - Eggert - Guðmundur - Ólafur
Björn Daníel
Oliver- Matthías - Kristinn - Davíð
Úlfur
1. mín
Leikur hafinn
Leiknir byrjar með boltann.
Fyrir leik
Það eru fínustu aðstæður hér í Krikanum. Nánast logn og engin úrkoma. Reyndar bara fjórar gráður, nauðsynlegt að klæða sig vel.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.

Sigurvin gerir þrjár breytingar á liði sínu frá leiknum gegn ÍBV. Ástbjörn Þórðarson er ekki í leikmannahópi FH og þeir Steven Lennon og Baldur Logi Guðlaugsson taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Matthías Vilhjálmsson, Eggert Gunnþór Jónsson og Oliver Heiðarsson. Jóhann Ægir Arnarsson er væntanlega í hægri bakverðinum hjá FH.

Sigurður gerir þrjár breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Fram. Daði Bærings Halldórsson, Dagur Austmann og Davíð Júlían Jónsson taka sér sæti á bekknum og inn í liðið koma þeir Adam Örn Arnarson, Kristófer Konráðsson og Birgir Baldvinsson.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson er með flautuna í leiknum í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Bryngeir Valdimarsson og Eðvarð Eðvarðsson. Erlendur Eiríksson er varadómari og Einar Örn Daníelsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
Sápan spáir Leiknissigri!
Stefán Árni Pálsson þáttarstjórnandi Seinni Bylgjunnar á Stöð 2 Sport spáir í leiki umferðarinnar.

FH 0 - 1 Leiknir
Þjálfaradramað í vikunni hefur áhrif á annað hvort liðið. Ég held að það muni hafa verri áhrif á FH liðið og Leiknir nær að kreista út 1-0 sigur með marki þegar um fimmtán mínútur eru eftir.

Leikurinn verður vel lokaður fram að því. Bergerinn skorar og þetta verður ljótasta mark tímabilsins.
Stefán Árni
Emil Berger
Fyrir leik


Leikurinn stærri fyrir FH en Leikni
Rafn Markús Vilbergsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, rýndi í þennan leik.

"Ég held að þessi leikur sé stærri fyrir FH heldur en Leikni. Leiknir á þannig prógramm eftir. Með tapi FH þá verður brekkan helvíti brött fyrir FH en ef Leiknir tapar þá á liðið samt enn möguleika á að ná að bjarga sér," segir Rafn Markús.

Þrjár umferðir eru eftir af deildinni þegar þessum leik lýkur. Fyrir FH, er þessi leikur gegn Leikni mikilvægari fyrir FH en sjálfur bikarúrslitaleikurinn?

"Á ákveðinn hátt. Sigur í bikarnum hefði gefið mikið, ef liðið hefði unnið þann leik, náð Evrópusæti og endað í 10. sæti hefði það á endanum verið flott niðurstaða. Auðvitað vill FH ekki falla, það yrði risahögg, mikið bakslag. Miðað við hvernig liðið spilaði gegn Víkingi í úrslitaleiknum var svekkjandi fyrir það að vinna ekki."

"FH hefur reynt allt, það er búið að halda samstöðufundi og hitt og þetta. Aðalmálið í þessum leik liggur hjá leikmönnum, hvort liðið er tilbúnara í þennan bardaga. Það er meiri reynsla hjá FH en það er líka hörkureynsla í Leiknisliðinu. Margir leikmenn þar þekkja það að berjast fyrir lífi sínu," segir Rafn Markús.

"Þessi lið hafa verið að fá á sig mörg mörk. FH-ingar hafa í grunninn ekki náð að setja liðið sitt almennilega saman. Markmannsstaðan hefur verið vandræði, það vantar leiðtoga í varnarleikinn. Þessir eldri leikmenn hafa ekki verið að skila nægilega miklu, það vantar aðila til að taka liðið á sínar herðar á vellinum."



Smelltu hér til að hlusta á útvarpsþáttinn

Niðurstaða úr skoðanakönnun sem var á forsíðu.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Gífurlega mikið undir

Liðin eru í 10. og 11. sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld. Leiknir er með einu stigi meira og verða níu stig í pottinum eftir leikinn. ÍA er svo með stigi minna en FH í botnsætinu.

Fyrri leikur liðanna á tímabilinu á Kaplakrikavelli endaði með 2-2 jafntefli og voru þeir Ólafur Jóhannesson og Sigurbjörn Hreiðarsson látnir fara sem þjálfarar FH eftir leik.

9. ÍBV 23 -10 23
10. Leiknir R. 23 -29 20
11. FH 23 -9 19
12. ÍA 24 -29 18
Fyrir leik
Veriði velkomnir lesendur góðir í beina textalýsingu frá fallbaráttuslag FH og Leiknis í Bestu deildinni. Leikurinn átti upprunalega að fara fram í gær en sökum veðurs var leikurinn færður um rúmlega sólarhring.
Byrjunarlið:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
4. Bjarki Aðalsteinsson (f) ('46)
7. Adam Örn Arnarson
9. Mikkel Dahl ('45)
10. Kristófer Konráðsson ('75)
11. Brynjar Hlöðvers
15. Birgir Baldvinsson
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Emil Berger
20. Hjalti Sigurðsson
28. Zean Dalügge

Varamenn:
5. Daði Bærings Halldórsson
8. Sindri Björnsson
9. Róbert Hauksson ('45)
14. Davíð Júlían Jónsson
23. Dagur Austmann ('46)
80. Mikkel Jakobsen ('75)

Liðsstjórn:
Vigfús Arnar Jósepsson (Þ)
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Óttar Bjarni Guðmundsson
Valur Gunnarsson
Gísli Friðrik Hauksson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Halldór Geir Heiðarsson
Atli Jónasson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: