Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
Norður-Írland
1
0
Ísland
Isaac Price '36 1-0
Brodie Spencer '57
10.06.2025  -  18:45
Windsor Park
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Til háborinnar fyrirmyndar
Dómari: Morten Krogh (Danmörk)
Áhorfendur: 18.500
Byrjunarlið:
1. Pierce Charles (m)
2. Conor Bradley ('91)
4. Daniel Ballard
5. Trai Hume
6. George Saville ('68)
11. Paul Smyth ('46)
14. Isaac Price ('91)
15. Justin Devenny
19. Shea Charles
20. Brodie Spencer
21. Ronan Hale

Varamenn:
12. Luke Southwood (m)
23. Stephen McMullan (m)
3. Ruairi McConville ('68)
7. Ethan Galbraith ('46)
8. Callum Marshall
9. Dion Charles
10. Jamie Donley
13. Brad Lyons ('91)
16. Alistair McCann
18. Caolan Boyd-Munce
22. Terry Devlin ('91)
25. Aaron Donnelly
26. Dale Taylor

Liðsstjórn:
Michael O'Neill (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Brodie Spencer ('57)
Leik lokið!
Dapur leikur hjá Íslandi í kvöld. Hægt spil, og illa farið með yfirtöluna í seinni hálfleik. Norður-Írarnir voru eiginlega þeir sem höfðu þessa íslensku geðveiki og unnu leikinn þannig.

Ýmislegt sem þarf Arnar Gunnlaugsson þarf að fara yfir eftir þennan leik.
93. mín
HVERNIG SKORUM VIÐ EKKI ÞARNA!!!! Sævar Atli með frábæra sendingu á fjærstöngina og Ísak með skallann. Charles ver boltann beint út í teiginn og Guðlaugur Victor er bara nokkrum sentimetrum seinni en varnarmaðurinn að komast í boltann.

Algjört dauðafæri!
93. mín
Ísak með spyrnuna en heimamenn skalla frá eins og í öllum hornunum hingað til.
93. mín
Ísland fær horn, tæpar tvær mínútur eftir.
92. mín
Ethan Galbraith í frábæru skallafæri, hann reyndar skallar þennan langt framhjá áður en flaggið fer á loft. Rangstaða.
91. mín
Inn: Terry Devlin (Norður-Írland) Út: Isaac Price (Norður-Írland)
91. mín
Inn: Brad Lyons (Norður-Írland) Út:Conor Bradley (Norður-Írland)
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
89. mín
Norður-Írar farnir að tefja töluvert, skiljanlega.
86. mín
Inn:Stefán Teitur Þórðarson (Ísland) Út:Logi Tómasson (Ísland)
Þá verður að minni ósk, full seint reyndar en betra seint en aldrei.
84. mín Gult spjald: Hákon Arnar Haraldsson (Ísland)
Hákon ekki vinsæll í Belfast Augljóst spjald á Hákon, slæm tækling, en nokkrir Norður-Írarnir sem hópast að honum alveg brjálaðir út í hann. Ennþá pirraðir að hann fiskaði Spencer útaf.
84. mín
Erum búnir að fá nokkur innköst mjög ofarlega á vellinum, en af því Stefán Teitur er ekki inná þá tökum við þetta alltaf stutt.

Hefði verið gott að hafa hann inná hér í lokin.
82. mín
Nú mætti átta sekúndna reglan vera í gildi í alþjóðlegum fótbolta. Pierce Charles tekur 20 sekúndur af klukkunni bara við það að halda á boltanum.
80. mín
Smá stympingar hér milli manna. Norður-Írarnir með tvær mjög fastar tæklingar í röð og Mikael Neville ýtir aðeins í Hume. Það var ekki tekið vel í það.
77. mín
Ísak með spyrnuna en Ballard skallar frá. Við höldum boltanum og aftur kemur Ísak með fyrirgjöf en þá kýlir Charles boltann frá.
76. mín
Ísland fær horn
75. mín
Frábær varnarvinna hjá Ísaki! Fyrst kemur Ísak með slaka sendingu beint á Bradley. Liverpool maðurinn með mjög góða sendingu fyrir en Ísak vinnur vel til baka og nær að koma boltanum frá.
74. mín
Inn:Sævar Atli Magnússon (Ísland) Út:Albert Guðmundsson (Ísland)
73. mín
KRISTIAN NÖKKVI Frábært spil á stuttu svæði hjá Íslandi. Koma boltanum inn í teig þar sem Kristian er í mjög góðu færi en skotið hans rétt framhjá!
71. mín
Sævar Atli að gera sig kláran í að koma inn.
Elvar Geir Magnússon
70. mín
Ballard í færi! Trai Hume með frábæra fyrirgjöf inn á teig og Ballard kemst í geggjað skallafæri en þessi framhjá.
68. mín
Inn:Ruairi McConville (Norður-Írland) Út:George Saville (Norður-Írland)
67. mín
BJARGAÐ Á LÍNU!!!! Ísak rekur hornspyrnuna frá hinni hliðinni og lyftir boltanum á fjær. Þar nær Sverrir skallanum aftur fyrir markið og Andri tekur flugskallann, sem er á leiðinni inn.

ÞAð er hinsvegar Isaac Price sem skallar svo boltann frá á línunni.
66. mín
Góð spyrna hjá Ísaki. Hákon fær boltann inn í teig og er með pláss, hann leggur boltann á Loga sem tekur skotið fast, en í varnarmann og önnur hornspyrna.
65. mín
Góð sókn hjá Íslandi, erum mjög hættulegir og vinnum horn!
65. mín
Mér sýnist Þórir Jóhann hafa farið í hægri bakvörðinn og Guðlaugur Victor í hafsentinn.
62. mín
Inn:Kristian Hlynsson (Ísland) Út:Willum Þór Willumsson (Ísland)
Þreföld hjá Arnari! Við erum manni fleirri þannig nú verðum við að sækja til sigurs.
62. mín
Inn:Mikael Anderson (Ísland) Út:Jón Dagur Þorsteinsson (Ísland)
62. mín
Inn:Þórir Jóhann Helgason (Ísland) Út:Daníel Leó Grétarsson (Ísland)
62. mín
Sverrir heldur um hálsinn, held hann muni halda áfram.
61. mín
Sverrir Ingi liggur svo eftir eitthvað þjáður. Hann fær aðhlynningu og vonandi heldur hann áfram.
61. mín
Aftur verjast Norður-Írar horninu vel. Við höldum boltanum en náum ekki að skapa alvöru færi eftir það.
60. mín
Ísak með spyrnuna en Charles kýlir frá. Við höldum svo boltanum og fáum annað horn.
59. mín
Albert tekur spyrnuna og reynir skotið en beint í vegginn, en við fáum horn.
57. mín Rautt spjald: Brodie Spencer (Norður-Írland)
NORÐUR-ÍRAR FÁ RAUTT!!! Hákon Arnar er að sleppa í gegn og Spencer grípur í öxlina á honum.

Mér fannst þetta harður dómur þar sem mér fannst Hákon ekki vera alveg sloppinn einn í gegn.

En við tökum þessu!! Takk Dani!
57. mín
HÁKON BJARGAR!! Daníel Leó með skelfilega sendingu til baka á Hákon sem Hale kemst inní. Hákon kemur vel út úr markinu og lokar á hann.
57. mín
Kristian Hlynsson, Þórir Jóhann og Mikael Anderson að gera sig klára í að koma inn af bekknum.
Elvar Geir Magnússon
56. mín
Geggjaður skalli! Shea Charles setur fastann bolta á nær og Ethan Galbraith með skallann sem fer rétt framhjá!
55. mín
Norður-Írar fá hér aukaspyrnu við vinstri hliðarlínuna. Klaufalegt brot hjá Guðlaugi Victor.
53. mín
Þetta er ennþá alveg svakalega hægt eins og þetta var í fyrri hálfleik hjá íslenska liðinu.
50. mín
Andri þurfti smá aðhlynningu eftir þessa tæklingu en virðist ætla að halda áfram.

Mér finnst það ennþá alveg ótrúlegt að þetta hafi ekki verið spjald.
48. mín
Brodie Spencer með ljótt brot á Andra Lucas, aldrei nálægt boltanum en hann er að sleppa við spjaldið.

Ótrúlegt að daninn fari ekki í vasann.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn! Ein breyting hjá báðum liðum í hálfleik.
46. mín
Inn:Ísak Bergmann Jóhannesson (Ísland) Út:Arnór Ingvi Traustason (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Inn: Ethan Galbraith (Norður-Írland) Út:Paul Smyth (Norður-Írland)
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Ísak Bergmann að koma inná Er búinn að vera í stífri upphitun í hálfleiknum.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Tölfræði Með boltann Norður-Írar 38% Ísland 62%
Skot Norður-Írar 10 Ísland 4
Skot á markið Norður-Írar 1 Ísland 1
Horn Norður-Írar 3 Ísland 1
XG Norður-Írar 0,95 Ísland 0,18

Tólfræði tekin frá vefsíðunni Flashscore.com
45. mín
Hálfleikur
Norður-Írar yfir í hálfleik, og það verðskuldað. Ísland var miklu meira með boltann fyrstu 30 mínútur leiksins, og pressan oft góð. Það kom hinsvegar eiginlega ekkert af almennilegum færum á þessum kafla.

Norður-Írar tóku svo eiginlega bara yfir, komust yfir eftir slæm mistök aftarlega á vellinum hjá Íslandi. Svo vorum við bara heppin að þeir skoruðu ekki annað hér í blálokin.

Það þarf eitthvað að breytast í seinni það er ljóst.
45. mín
Dauðfæri fyrir heimamenn!! +2

Norður-Írar taka hornið stutt og spila virkilega vel saman. Boltinn kemur inn í teiginn og berst á fjærstöngina þar sem Ronan Hale er í dauðafæri, og tekur þrumuskot í stöngina!

Þar skall hurð nærri hælum!
45. mín
+1

Norður-Írar fá aukaspyrnu við hægri hliðarlínuna. Spyrnan inn í teig og Guðlaugur Victor skallar aftur fyrir.
45. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti ein mínúta
43. mín
Willum verður að passa sig. Hann brýtur augljóslega á Price, frekar glæfralega en heppinn að danski dómarinn dæmir ekkert á þetta.
42. mín
Hætta eftir hornspyrnu Shea Charles tekur hornspyrnu sem hann lyftir á fjær. Þá er bæði Hale og Price í boltanum og ná aðeins að flækjast fyrir hvor öðrum þannig hann fer af þeim og aftur fyrir.
40. mín Gult spjald: Willum Þór Willumsson (Ísland)
Norður-Írar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu.
40. mín
Vinnum boltann ofarlega! Góð pressa hjá Íslandi og við vinnum boltann rétt fyrir vítateig Norður-Íra. Hákon fer þá lengra inn á völlinn með boltann og tekur skotið, það er ekki nægilega gott hinsvegar, frekar beint á Charles.
36. mín MARK!
Isaac Price (Norður-Írland)
Heimamenn fljótir að refsa Arnór Ingvi missir boltann á vallarhelmingi Íslands. Hann reynir svo að bæta upp fyrir það með tæklingu en það tekst ekki, þar sem hann tekur bara manninn. Danski dómarinn dæmir hagnað og Price fær boltann fyrir utan teiginn.

Hann á virkilega gott skot sem sveiflast í fjærhornið. Heimamenn verið betri síðustu mínúturnar og þeir nýttu sér þennan kafla sem þeir eru að eiga.
34. mín
Norður-Írar með aukaspyrnu. Shea Charles reynir að lyfta þessu inn í teig en aftur skallar vörnin þetta frá.

Fínn kafli hjá heimamönnum síðustu mínútur, en Ísland verst vel.
33. mín
Heimamenn taka langt innkast, Paul Smyth grýtir þessu inn á teig en íslenska liðið skallar þessum frá.
33. mín
Shea Charles tekur spyrnuna en Hákon gerir vel, og kýlir þetta í burtu.
32. mín
Norður-Írar fá horn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Bradley með skotið! Norður-Írar vinna boltann á hættulegum stað, þeir koma boltanum á Conor Bradley sem er í góðu færi en skotið hans veint í Daníel Leó.
28. mín
Skalli frá Loga Guðlaugur Victor með fyrirgjöfina úr djúpinu. Boltinn ratar á kollinn á Loga sem reynir skallann, en hann er máttlaus og Pierce Charles í marki Norður-Íra ekki í miklum vandræðum.
26. mín
Jón Dagur kominn í fína stöðu á hægri kantinum, fer framhjá Justin Devenny og ætlar að keyra inn á teiginn. Svo missir hann boltann af vellinum og Norður-Írar fá markspyrnu.
23. mín
Jón Dagur með skotið framhjá Sending út til hægri og Trai Hume er á undan Andra í boltann. Andri hinsvegar bara ýtir honum af boltanum, miklu sterkari og keyrir í átt að markinu.

Hann leggur boltann á Jón Dag sem er í fínu færi en skotið hans framhjá.

Þetta var frábærlega gert hjá Andra!
21. mín
Frekar rólegt síðustu mínútur Íslenska liðið að halda boltanum frekar vel, en það er lítið að gerast. Spilið þarf að vera aðeins hraðar ef við ætlum að búa til alvöru færi.
17. mín
Alvöru harka hjá Loga Logi virðist vera búinn að missa boltann í mjög ákjósanlegri stöðu en honum tekst bara að vinna boltann strax aftur og þá er hann kominn inn í teiginn vinstra megin.

Þá hinsvegar gerir hann ekki nógu vel, reynir að koma með sendingu en er ekki í jafnvægi og sendir bara á græna treyju.
16. mín
Góð byrjun hjá okkur Íslenska liðið er að pressa mjög vel og Norður-Írar ítrekað að lenda í vandræðum með það. Oftar en einu sinni hefur íslenskur leikmaður komist inn í sendingu hjá heimamönnum á þeirra vallarhelmingi.
12. mín
Albert með spyrnuna en Price skallar aftur fyrir. Ég hélt við værum að fá aðra hornspyrnu en búið að dæma á Sverri. Ég sá ekki fyrir hvað, það hefur ekki verið mikið.
11. mín
Ísland fær horn
8. mín
Ekkert kemur úr aukaspyrnunni Þeir lyfta spyrnunni inn á teig og Daníel Leó nær að skalla frá. Isaac Price er fyrstur á lausa boltann og nær skotinu en það fer beint í varnarmann.
8. mín
Norður-Írar fá aukaspyrnu Shea Charles að sleppa í góða skyndisókn en Willum tekur hann niður, líkast til heppinn að sleppa með að fá ekki spjald.
5. mín
Þurfum að gera betur þarna! Íslenska liðið byggir upp virkilega góða sókn, og þeir eiga alveg tvö eða þrjú fín færi á að taka skot. Þeir gera það hinsvegar aldrei heldur reyna að finna annan mann í betra færi og þannig fjarar þetta út.

Þarna þarf einhver bara að taka til sín og bomba á markið.
3. mín
Fyrsta skot leiksins Norður-Írar ná að byggja upp fína sókn. Þeir koma svo með fyrirgjöfina þar sem Shea Charles nær skallanum, en þessi langt framhjá.
2. mín
Góð pressa! Frábær pressa hjá Alberti, hann fer hratt á hafsent Norður-Íra og fer fyrir sendinguna hjá honum en boltinn skoppar af honum og aftur fyrir. Heimamenn eiga markspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Morten flautar og leikurinn er farinn af stað!
Fyrir leik
Ekkert VAR! Danski dómarinn þarf að dæma eftir gamla skólanum í kvöld, eða Bestu deildar reglum eins og við þekkjum hér á Íslandi. Ekkert VAR í kvöld þannig það sem Morten segir, gildir!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fimm jákvæðir punktar úr síðasta leik Albert Brynjar Ingason sérfræðingur Stöð 2 Sport kom með lista yfir fimm hluti sem hann var ánægður með úr síðasta leik. Þetta gerði hann í settinu hjá Stöð 2 Sport fyrir leik.

1. Markmaðurinn. Elías Rafn Ólafsson átti góðan leik gegn Skotum.
2. Sverrir Ingi átti einnig góðan leik, sýndi leiðtogahæfni.
3. Pressan í leiknum var góð, en datt aðeins niður í seinni hálfleik.
4. Gott jafnvægi á uppspilinu.
5. Klæðaburður þjálfarans. Arnar Gunnlaugsson var mættur í mjög fín og stílhrein föt, en í síðasta verkefni mætti hann í rifnum gallabuxum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar Ingason sérfræðingur Stöð 2 Sport.
Fyrir leik
Blóm fyrir leik Fyrir leikinn mun fótboltasamband Norður-Írlands heiðra þá Jonny Evans og Steven Davies fyrir ferla sína með landsliði þjóðarinnar.

   10.06.2025 11:31
Jonny Evans heiðraður fyrir leikinn gegn Íslandi
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Búin/n að setja á leikinn á Lengjunni? Ísland mætir Norður-Írlandi í vináttulandsleik á Windsor Park í kvöld í sínum síðasta leik áður en kemur að undankeppni HM í haust. Leikurinn hefst klukkan 18:45.

Samkvæmt skoðanakönnun sem hefur verið á forsíðu Fótbolta.net undanfarnar daga spá 61% lesenda íslenskum sigri.

Norður-Írland er í 71. sæti heimslista FIFA en Ísland er í 74. sæti. Lengjan er með stuðulinn 2,11 á heimasigur, 2,93 á jafntefli og 3,39 á íslenskan sigur.

Mynd: Fótbolti.net

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Okkar menn eru mættir út í upphitun
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Fréttamannastúkan spáir Hér í Belfast eru þrír íslenskir fjölmiðlamenn mættir og um að gera að spá í spilin.

Elvar Geir Magnússon undirritaður: 0-2 sigur Íslands. Andri Lucas og Albert.

Valur Páll Eiríksson, Sýn: 1-2. Logi Tómasson skorar. Conor Bradley í bullinu. Jón Dagur skorar annað mark Íslands. Isaac Price með mark Norður-Íra beint úr aukaspyrnu.

Mate Dalmay, Fótbolti.net: Aftur 1-3 Ísland. Hale kemur Norður-Írum. Albert 2 og Jón Dagur 1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Afskaplega fallegur dagur í Belfast
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Veðrið hefur verið að leika við Belfastbúa í dag og mikill fílingur verið í miðbænum þar sem nánast allir voru í treyjum og pinturnar runnu ofan í fólk. Það er uppselt á leikinn, 18.500 áhorfendur, og allt til fyrirmyndar.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Fimm breytingar Eins og Arnar Gunnlaugsson var búinn að tilkynna þá er Hákon Rafn Valdimarsson í marki Íslands í kvöld. Alls gerir hann fimm breytingar á byrjunarliðinu en fjórir fremstu menn eru áfram þeir sömu.

Daníel Leó Grétarsson og Logi Tómasson koma inn í vörnina í stað Harðar Björgvins Magnússonar og Mikaels Egils Ellertssonar. Arnór Ingvi Traustason og Willum Þór Willumsson koma á miðjuna í stað Stefáns Teits Þórðarsonar og Ísaks Bergmanns Jóhannssonar.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hver mínúta skiptir máli
Mynd: KSÍ

Íslenski hópurinn hefur verið saman á Bretlandseyjum núna í rúma viku og Hákon Arnar Haraldsson, fyrirliði Íslands í þessum glugga, var spurður að því á fréttamannafundi hversu mikilvæg þessi vika hefur verið?

„Mjög mikilvæg. Það er langt síðan við komum saman síðast og hópurinn verður þéttari og þéttari með hverjum deginum. Við erum saman allan daginn og maður kynnist öllum vel. Það mun skipta miklu máli í haust að við séum þéttir og stöndum saman," svaraði Hákon.

Hann segir að leikurin í kvöld, sem hefst 18:45 að íslenskum tíma, gæti virkað sem gott veganesti inn í undankeppnina.

„Svo sannarlega. Við þurfum að nota hvern einasta leik til að undirbúa okkur. Við fáum fjóra leiki með Arnari fyrir undankeppnina og hver mínúta skiptir máli og við verðum að nýta tímann," segir Hákon.

Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Myndir frá æfingu Íslands á Windsor Park í gær
Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dómarar frá Danmörku
Mynd: EPA

Dómarar leiksins koma frá Danmörku en aðaldómari verður hinn 37 ára Morten Krogh. Hann varð FIFA-dómari 2019 og var á liðnu tímabili að dæma í Evrópudeildinni.

Hann dæmdi sinn fyrsta Meistaradeildarleik 2023, viðureign Young Boys og Manchester City.

Dómari: Morten Krogh Hansen
Aðstoðardómari 1: Dennis René Wollenberg Rasmussen
Aðstoðardómari 2: Steffen Beck Bramsen
4ði dómari: Jacob Karlsen
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Ísland vann stóran sigur í Belfast síðast
Mynd: Belfast Telegraph

Þetta verður sjöunda viðureign þjóðanna en sagan er með okkur í liði. Fjórum sinnum hefur Ísland fagnað sigri gegn Norður-Írum, sem hafa unnið tvo leiki.

Belfast Telegraph rifjar upp síðustu heimsókn íslenska landsliðsins til Belfast og talar um niðurlægingu.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu þá í 3-0 útisigri Íslands á Windsor Park. Leikurinn fór fram 2006 og var í undankeppni EM.

„Ísland gerðu sér lítið fyrir og lögðu Norður-Íra á troðfullum leikvangnum í Belfast í dag. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik þar sem sóknarleikur Íslendinga blómstraði og þá var varnarleikurinn mjög öruggur allan leikinn," skrifaði Stefán Guðberg Sigurjónsson í umfjöllun um leikinn á Fótbolta.net.

Liðin mættust svo aftur á Laugardalsvelli 2007 og þar vann Ísland 2-1 sigur. Ármann Smári Björnsson skoraði mark Íslands en sigumarkið kom á 89. mínútu og var sjálfsmark.

2001 gerði Ísland hinsvegar ekki góða ferð á Windsor Park. Þá unnu heimamenn 3-0 sigur.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Bradley: Flott frammistaða en viljum sigur gegn Íslandi Conor Bradley, leikmaður Liverpool, er meðal leikmanna sem eru í landsliðshópi Norður-Írlands.

Norður-Írar töpuðu naumlega fyrir Danmörku í vináttulandsleik á Parken 2-1 á laugardag en Norður-írska liðið fær hrós í fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína og gott skipulag.

Mynd: EPA

„Við getum lært mikið af þessum leik. Vonandi getum við fylgt þessum leik eftir með frammistöðu og sigri á þriðjudaginn," sagði Bradley eftir leikinn.

Michael O’Neill, landsliðsþjálfari Norður-Íra, hafði þetta að segja eftir leikinn:

„Við byrjuðum leikinn mjög vel og komumst verðskuldað yfir. Mér fannst við verjast virkilega vel í fyrri hálfleiknum og einstaklingsframtak frá Gustav Isaksen gaf þeim jöfnunarmark rétt fyrir hálfleik. Það er engin skömm af því að koma hingað og tapa 2-1 en í seinni hálfleik hefðum við þurft að halda betur í boltann. Þá koma færin," sagði O’Neill og segir að leikurinn gegn Íslandi verði alls ekki auðveldur.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Velkomin með okkur á Windsor Park
Mynd: EPA

Velkomin með okkur til Belfast þar sem Norður-Írland og Ísland mætast í vináttulandsleik.

Ísland vann flottan 3-1 útisigur gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow á föstudaginn. Þetta var fyrsti sigur Íslands gegn Skotlandi en fyrri sex viðureignir þessara þjóða höfðu allar endað með skoskum sigrum.

Þá var þetta fyrsti sigurleikur Arnars Gunnlaugssonar síðan hann tók við landsliðinu. Íslenski hópurinn er nú kominn til Belfast þar sem leikið verður gegn heimamönnum í Norður-Írlandi í kvöld.

Arnar talaði um það í viðtali við Fótbolta.net eftir sigurinn gegn Skotum að íslenska liðið hefði sýnt þroskamerki frá síðasta glugga.

„Ég held að það sé langt síðan Ísland vann tvo leiki í sama glugga. Við kýlum á þetta gegn Norður-Írum," sagði Arnar en undirritaður ákvað að grúska og fann það út að síðast vann Ísland tvo leiki í sama glugga árið 2019 en þá eru janúarverkefni ekki tekin með. Í júní 2019, fyrir sex árum, vann Ísland öfluga sigra gegn Albaníu og Tyrklandi á Laugardalsvelli í undankeppni EM.

Okkar mál að rífa upp stemninguna með því að vinna leiki
„Ég vil að við förum vel gíraðir inn í haustið. Við finnum það líka heima fyrir að áhuginn á íslenska landsliðinu minnkar þegar illa gengur og það er ósköp eðlilegt. Okkar mál er að rífa upp stemninguna með því að vinna leiki og spila góðan fótbolta," segir Arnar.

Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil og Arnar segir mikilvægt að íslenska liðið fái öflugan stuðning í þessu verkefni.

„Við verðum að vera klárir í haust. Við þurfum á alvöru gryfju að halda þegar við mætum Aserbaídsjan. Svo bíður okkar ærið verkefni þegar við förum til Frakklands. Stuðningur skiptir öllu máli svo vonandi höfum við glatt landann í kvöld og höldum svo áfram á þriðjudaginn."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Logi Tómasson ('86)
3. Daníel Leó Grétarsson ('62)
4. Guðlaugur Victor Pálsson
5. Sverrir Ingi Ingason
8. Hákon Arnar Haraldsson
10. Albert Guðmundsson ('74)
11. Jón Dagur Þorsteinsson ('62)
15. Willum Þór Willumsson ('62)
21. Arnór Ingvi Traustason ('46)
22. Andri Lucas Guðjohnsen

Varamenn:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
13. Anton Ari Einarsson (m)
6. Ísak Bergmann Jóhannesson ('46)
9. Sævar Atli Magnússon ('74)
14. Þórir Jóhann Helgason ('62)
16. Stefán Teitur Þórðarson ('86)
17. Aron Einar Gunnarsson
18. Mikael Anderson ('62)
19. Dagur Dan Þórhallsson
20. Kristian Hlynsson ('62)
23. Hörður Björgvin Magnússon
24. Mikael Egill Ellertsson

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Davíð Snorri Jónasson

Gul spjöld:
Willum Þór Willumsson ('40)
Hákon Arnar Haraldsson ('84)

Rauð spjöld: