Stórliðin berjast um Rodrygo - Villa hættir að eltast við Jackson - Tottenham heldur áfram að reyna við Savinho
Þór
3
1
Njarðvík
Sigfús Fannar Gunnarsson '6 1-0
Rafael Victor '25 2-0
Ingimar Arnar Kristjánsson '72 3-0
3-1 Tómas Bjarki Jónsson '96
23.08.2025  -  16:00
Boginn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Kaldari inni en úti
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: Þéttsetinn Boginn em aldrei fyrr
Maður leiksins: Yann Emmanuel Affi
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
5. Yann Emmanuel Affi
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Rafael Victor ('88)
10. Aron Ingi Magnússon ('65)
11. Clement Bayiha ('65)
15. Kristófer Kristjánsson
19. Ragnar Óli Ragnarsson
24. Ýmir Már Geirsson
25. Christian Greko Jakobsen
37. Sigfús Fannar Gunnarsson ('81)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('65)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('81)
18. Sverrir Páll Ingason
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('88)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson ('65)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Gestur Örn Arason
Stefán Ingi Jóhannsson
Konráð Grétar Ómarsson
Thomas Danielsen

Gul spjöld:
Yann Emmanuel Affi ('77)
Ýmir Már Geirsson ('80)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þórsarar eru komnir á toppinn Fimmti sigur Þórs í röð og Njarðvík tapar sínum öðrum leik í röð.

Takk fyrir mig.

Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í kvöld.
96. mín MARK!
Tómas Bjarki Jónsson (Njarðvík)
Stoðsending: Símon Logi Thasaphong
Sárabótarmark Skalli í átt að marki Þórsara, Tómas ekki dekkaður og hann stýrir boltanum í net Þórsara.
96. mín
Njarðvík fær hornspyrnu hér á lokamínútunni.
93. mín
Víti?? Ingimar Arnar og Sigurjón í baráttunni, Sigurjón grípur aðeins í Ingimar inn á vítateig Njarðvíkur og Ingimar nær ekki skoti. Vilhjálmur Alvar ákveður að dæma ekki neitt.
91. mín
Sex mínútum bætt við
90. mín
Aron Birkir er búinn að gleyma að hann æfir daglega í Boganum. Í annað sinn sem hann þrumar upp í loftið.
88. mín
Inn:Vilhelm Ottó Biering Ottósson (Þór ) Út:Rafael Victor (Þór )
Rafael verið frábær í dag, hans besti leikur í Þórstreyjunni ásamt kannski útileiknum gegn Aftureldingu í fyrra.
86. mín
Almo reynir fyrirgjöf sem Þórsarar skalla aftur fyrir og Njarðvík fær horn.

Sigurjón með skallann eftir hornið en hann fer framhjá.
85. mín
Ingimar brotlegur fyrir utan teig Þórs. Njarðvík á aukaspyrnu úti á vinstri kantinum sínum.

Affi fellur við inn á vítateig Þórs áður en spyrnan er tekin og Vilhjálmur Alvar ræðir við menn.
85. mín
Tómas Bjarki með skottilraun fyrir utan vítateig Þórs en Hermann Helgi kemst fyrir.
82. mín
Greko með skallatilraun framhjá marki Njarðvíkur.
81. mín
Inn:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór ) Út:Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )
80. mín Gult spjald: Ýmir Már Geirsson (Þór )
Ánægður með mislukkaða fyrirgjöf Njarðvíkingsins, fagnar fullmikið yfir honum, lætur í sér heyra og fær gult spjald fyrir það.
79. mín
We are going up, we are going up - syngja Mjölnismenn í stúkunni.

Þórsarar eru á toppi deildarinnar sem stendur.
78. mín
Inn:Björn Aron Björnsson (Njarðvík) Út:Svavar Örn Þórðarson (Njarðvík)
78. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík) Út:Dominik Radic (Njarðvík)
78. mín
Inn:Kenneth Hogg (Njarðvík) Út:Joao Ananias (Njarðvík)
77. mín Gult spjald: Yann Emmanuel Affi (Þór )
Affi mjög svekktur með þetta spjald. Aukaspyrna á miðjum vallarhelmingi Þórs.
74. mín
Dauðafæri Sigfús Fannar í dauðafæri, sleppur í gegn, reynir að klobba Aron Snæ í marki Njarðvíkur en hann sér við framherjanum. Hornspyrna fyrir Þór.
73. mín
Inn:Ali Basem Almosawe (Njarðvík) Út:Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík)
73. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík) Út:Viggó Valgeirsson (Njarðvík)
72. mín MARK!
Ingimar Arnar Kristjánsson (Þór )
Stoðsending: Sigfús Fannar Gunnarsson
Þetta mark fer langt með að tryggja Þórsurum sigur! Sigfús er vinstra megin í vítateig Njarðvíkur, fær sendingu frá Ingimar, leggur hann aftur út og Ingimar korar með hnitmiðuðu skoti á nærstöngina.

Vel gert hjá varamanninum sem fékk dauðafæri áðan.
71. mín
Atgangur inn á vítateig Þórs, Oumar Diouck gerir sig líklegan en nær ekki skottilraun.
71. mín
Það er smá hiti að færast í leikinn. Menn eru að láta finna fyrir sér og láta líka vel í sér heyra þegar þeir vilja brot.
69. mín Gult spjald: Viggó Valgeirsson (Njarðvík)
Viggó fær gult spjald fyrir einhver mótmæli.
69. mín
Rangstaða! Frábær fyrirgjöf inn á Dominic Radic sem á skalla að marki Þórsara, Aron Birkir nær ekki að handsama boltann og Freysteinn setur frákastið í netið, en þá fer flaggið á loft.
68. mín
Aron Birkir með útspark sem fer upp í loftið. Njarðvík fær boltann og byrjar sóknina á vallarhelmingi Þórs.
66. mín
Sláin yfir! Frábær sókn hjá Þór.

Ýmir með sendingu á Rafael sem finnur Greko. Greko leggur hann svo á Ými í framhjáhlaupinu úti vinstra megin. Ýmir með flotta fyrirgjöf, finnur Ingimar sem er í dauðafæri en skot hans fer í slána og yfir mark Njarðvíkur.
65. mín
Inn:Ingimar Arnar Kristjánsson (Þór ) Út:Clement Bayiha (Þór )
65. mín
Inn:Hermann Helgi Rúnarsson (Þór ) Út:Aron Ingi Magnússon (Þór )
63. mín
Rafael Victor gerir frábærlega í að halda í boltann og nær svo sjálfur að bera boltann upp völlinn. Finnur Aron Inga sem reynir að finna Rafa aftur inn á teignum en Njarðvíkingar verjast vel.
61. mín Gult spjald: Svavar Örn Þórðarson (Njarðvík)
Braut nokkuð hressilega á Rafael Victor og uppsker gult spjald, fyrsta spjaldið í dag.
60. mín
Viggó í fínasta séns en skotið hans er mislukkað.

Arnleifur átti fyrirgjöf sem Aron Birkir sló út í teiginn, Tómas Bjarki tók við honum og Viggó lét svo vaða í fyrst en skotið framhjá.
58. mín
Tveggja mínútna stopp þar sem Aron Birkir fékk aðhlynningu.

Njarðvíkingar reyna þrjár fyrirgjafir og þá þriðju grípur Aron.

Leikurinn er aftur stopp, sýnist varnarmenn Þórs ver að hjálpa Aroni með linsu. Nauðsynlegt að hann sjái hvað hann er að gera.
55. mín
Joao með skottilraun eftir hornspyrnu Njarðvíkinga en Ragnar Óli kemst fyrir.

Njarðvíkingar halda sókn sinni áfram, Sigurjón kemst í boltann eftir fyrirgjöf en Aron Birkir er mættur ofan í hann. Njarðvík á annað horn og Aron þarf aðhlynningu.
54. mín
Boltinn inn á vítateig Þórs, sýnist Sigurjón ná smá snertingu á boltann með höfðinu en alls ekki nóg til að trufla Þórsara.
53. mín
Aron Ingi með skot fyrir utan teig eftir hornið, það fer í varnarmann og Njarðvíkingar keyra svo upp.

Clement er dæmdur brotlegur og Njarðvík á aukaspyrnu á vallarhelmingi Þórs.
53. mín
Sigurjón! Sigfús Fannar í dauðafæri eftir hraða sókn en opnar aðeins of mikið fyrir Sigurjón sem nær tá í boltann og kemur honum aftur fyrir í horn.
51. mín
Verð að nefna það aftur, það er frábær stemning í Boganum, Mjölnismenn láta vel í sér heyra og það er allt annað að horfa á leiki þegar það eru smá læti og stemning í áhorfendum.
50. mín
Aron Ingi gerir sig líklegan inn á vítateig Njarðvíkur eftir sendingu frá Ými en nær ekki að taka nógu vel við boltanum og þessi sókn rennur út í sandinn.
47. mín
Aron Birkir!!! Viggó með skot við vítateigslínuna eftir sendingu frá Diouck. Aron Birkir hendir sér á eftir boltanum og nær að slá hann til hliðar. Þetta var virkilega vel varið!

Þórsarar ná svo að verjast hornspyrnu gestanna.
46. mín
Kristófer með sprett upp hægri kantinn, á svo fasta bolta fyrir markið sem Sigfús kemst í en snerting hans fer framhjá nærstönginni.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Engar mannabreytingar í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Þórsarar leiða með tveimur í hálfleik Heilt yfir sanngjörn staða, Njarðvíkingar fengu séns þó til að minnka muninn en þá náði varnarmaður Þórs að bjarga markmanninum sínum.
45. mín
45+5

Oumar reynir skotið en Aron Birkir sér strax að þessi er á leið framhjá og það er líka niðurstaðan.
45. mín
45+4

Dominic Radic, sem hefur varla verið partur af leiknum, vinnur aukaspyru undir lok fyrri hálfleiks. Arnleifur og Oumar standa yfir boltanum.
45. mín
45+2

Oumar Diouck með skottilraun fyrir utan vítateig Þórs, er rétt við D-bogann en hittir boltann illa og skotið fer hátt yfir.
45. mín
Fjórum mínútum bætt við fyrri hálfleikinn
42. mín
Boltinn frá Einari inn á teiginn, Aron Ingi tekur hann svo niður fyrir utan vítateig Njarðvíkur, leikur á einn og fær smá snertingu. Þórsarar vilja aukaspyrnu en er sammála Vilhjálmi Alvari, þetta var ekki nóg fyrir aukaspyrnu. Njarðvík byggir upp sókn.
41. mín
Einar Freyr vinnur aukaspyrnu úti vinstra megin. Hann væntanlega tekur þessa spyrnu sjálfur.
38. mín
Viggó reynir skot fyrir utan teig en það fer beint í Affi. Enn eitt skotið sem varnarmaðurinn kemst fyrir.
34. mín
Sigfús markahæstur ásamt Adam Það er rólegt þessa stundina. Þá er tækifæri til að benda á að með þessu tólfta marki Sigfúsar í sumar er hann búinn að jafna Adam Árna Róbertsson, þeir eru báðir markahæstir í deildinni sem stendur. Oumar Diouck í Njarðvík er svo með ellefu ásamt Degi Orra Garðarssyni hjá HK.
32. mín
Skoraði gegnum sínum fyrrum liðsfelögum Rafael Victor lék með Njarðvík 2023, skoraði þá 13 mörk í 20 deildarleikjum. Í kjölfarið fór hann í Þór.
Mynd: Akureyri.net/Skapti Hallgrímsson

Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Hætta inn á vítateig Þórs Viggó með aukaspyrnu úti á vinstri kantinum, boltinn inn á vítateig Þórs þar sem Aron Birkir missir boltann úr greipum sér, Sigurjón er fyrstur í lausa boltann kemur honum framhjá Aroni í markinu en það er svo Ragnar sem les stöðuna og hreinsar úr markteignum. Þessi bolti var á leið í netið.
29. mín
Freysteinn með skottilraun beint í Affi. Oumar Diouck á svo fyrirgjöf sem fer beint aftur fyrir.
27. mín
Davíð Helgi er kominn aftur inn á.
26. mín
Davíð Helgi fór í grasið í aðdraganda marksins, var búinn að haltra aðeins á undan og fær núna aðhlynningu.

Hann lá eftir fyrir aftan varnarlínu Njarðvíkur og framherji Þórsara sá þessa stóru holu og nýtti sér hana.
25. mín MARK!
Rafael Victor (Þór )
Stoðsending: Kristófer Kristjánsson
Þórsarar tvöfalda forystuna Kemst í boltann við vítateig Njarðvíkur, flott sending frá Kristófer. Rafa er einn gegn einum á móti Aroni Snæ og setur hann vinstra megin frá sér séð framhjá markmanni gestanna.
24. mín
Kristófer með sendingu á Sigfús sem er í mjög góðu færi inn á vítateig Njarðvíkur en hans skot, vinstra megin úr teignum, er beint á Aron Snæ sem missir boltann úr höndunum en handsamar hann svo.
24. mín
Njarðvíkingar liggja á Þórsurum þessa stundina. Affi er kominn aftur inn á.
21. mín
Yann Emmanuel Affi, miðvörður Þórs, situr eftir og þarf aðhlynningu. Leikurinn stopp á meðan.
20. mín
Tómas með skot fyrir utan teig eftir sendingu frá Freysteini en Ragnar Óli er vel á tánum og kemst fyrir.
18. mín
Aron Ingi gerir vel með boltann úti á vinstri kantinum, kemur sér inn á teiginn og á tilraun í nærhornið sem Aron Snær sér við. Fínasta skot.
16. mín
Freysteinn með gott skot Ragnar Óli og svo Aron Ingi skalla boltann út fyrir teig. Boltinn berst út á Freystein sem lætur vaða í fyrsta með vinstri og Aron Birkir í marki Þórs þarf að hafa fyrir þessari vörslu, hendir sér á eftir boltanum og handsamar hann svo í annarri tilraun.
15. mín
Freysteinn gerir mjög vel úti hægra megin, kemst inn á teiginn, reynir að leggja boltann út en þar er Affi og hann hreinsar í horn. Fyrsta horn gestanna.
15. mín
Sigfús Fannar með 'heat-check' langskot sem fer hátt yfir.
13. mín
Einar Freyr með hornspyrnuna, finnur Affi sem á tilraun en boltinn fer aftur fyrir. Boltinn hefur farið af Njarðvíkingi því Þórsarar eiga annað horn.

Seinna hornið tekið stutt og Njarðvíkingar verjast því vel og vinna markspyrnu.
12. mín
Rafael Victor gerir frábærlega þegar Þórsarar vinna boltanum, nær að snúa af sér varnarmanninn og kemur boltanum á Clement sem á fyrirgjöf en Sigurjón rennir sér og hreinsar í horn. Þetta var öflug skyndisókn.
11. mín
Arnleifur finnur Tómas Bjarka fyrir utan vítateig Þórsara og fyrirliðinn lætur vaða en dregur boltann framhjá nærstönginni.
10. mín
Uppstilling Njarðvíkur Aron Snær
Svavar - Sigurjón - Davíð - Arnleifur
Joao - Tómas
Freysteinn - Viggó - Oumar Diouck
Radic
9. mín
Viggó með skottilraun fyrir utan teig sem fer beint í Affi.

Njarðvíkingar reyna svo djúpa fyrirgjöf sem Aron Birkir handsamar.
8. mín
Gríðarlegur kraftur í Þórsliðinu í byrjun leiks. Spilamennska Þórsara í takt við stemninguna í stúkunni.
6. mín MARK!
Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )
Stoðsending: Aron Ingi Magnússon
Frábær byrjun hjá Þór Þórsarar sækja hratt, Aron Ingi leggur boltann til vinstri á Sigfús Fannar sem á skot í nærhornið, Aron Snær nær hönd á boltann en hann fer í stöngina og þaðan í netið.

Þetta er tólfta deildarmark Sigfúsar á tímabilinu. Hann hleypur að stuðningsmönnum sem fagna með honum.

Þórsarar leiða!
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sigfús sjóðandi
5. mín
Aron Ingi með skottilraun vinstra megin við vítateig Njarðvíkur, reynir að finna fjærhornið en boltinn fer framhjá stönginni og Aron Snær tekur markspyrnu.
5. mín
Uppstilling Þórs Aron Birkir
Kristófer - Ragnar - Affi - Ýmir
Einar Freyr - Greko
Clement - Aron Ingi - Sigfús
Rafael Victor
4. mín
Ýmir með hornspyrnuna, Greko rís hæst en skalli hans fer framhjá fjærstönginni.
3. mín
Núna nær Greko stungunni inn á Sigfús sem kemst inn fyrir Svavar, Svavar gerir vel að hlaupa Sigfús uppi en Þórsarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
2. mín
Greko leitar að Sigfúsi í gen en Sigfús brýtur á Sigurjóni, bakhrinding og Vilhjálmur Alvar flautar.
1. mín
Löng sending inn fyrir vörn Njarðvíkur, boltinn ætlaður Kristófer sem var á sprettinum i gegn en Davíð Helgi verst vel.
1. mín
Leikur hafinn
Njarðvík byrjar með boltann
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn Þórsarar spila í hvítum treyjum og rauðum stuttbuxum. Njarðvíkingar eru í grænum treyjum og svörtum stuttbuxum.
Fyrir leik
Geggjuð stemning í Boganum Þórsarar eru mættir hálftíma fyrir leik inn í Bogann og stemningin í stúkunni er geggjuð. Stöðugur söngur hjá fjölmennum hópi.
Fyrir leik
Galdur spáir útisigri Galdur Guðmundsson, leikmaður KR, er spámaður umferðarinnar. Hann spáir útisigri.

Þór 2 - 3 Njarðvík (16:00 á morgun)
Gunnar Heiðar og hans menn fara norður og sækja dýrmæt þrjú stig. Viggó Valgeirsson líklega með game winner á 90+4.

Fyrir leik
Dómari úr efstu hillu Bestu deildar dómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er á flautunni. Honum til aðstoðar verða þeir Þórður Arnar Árnason og Birkir Örn Pétursson. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Alvöru stemning í Hamri Þórsarar fjölmenntu í félagsheimilið, Hamar, fyrir leik í veðurblíðunni. Mjölnismenn komu saman og hafa verið að æfa söngva. Stemningin er í takt við veðrið á Akureyri.
Fyrir leik
Aðstoðarþjálfarinn í banni Arnar Freyr Smárason, aðstoðarþjálfari Njarðvíkur, fékk að líta rauða spjaldið seint í leiknum gegn Þrótti og er því í leikbanni í dag. Rafn Markús Vilbergsson, yfirmaður fóttboltamála hjá Njarðvík, er skráður aðstoðarþjálfari í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Rafn Markús
Fyrir leik
Tvær breytingar á liði heimamanna og ein hjá gestunum Þórsarar gera tvær breytingar á sínu liði frá 0-1 sigrinum gegn ÍR um síðustu helgi. Clement Bayiha og Aron Ingi Magnússon koma inn fyrir Ibrahima Balde sem er í banni og Orri Sigurjónsson er frá vegna meiðsla. Juan Guardia er líka í banni. Þeir Asbjörn Líndal og Sverrir Páll koma inn í hópinn.

Ein breyting er á liði gestann frá 2-3 tapinu gegn Þrótti um síðustu helgi. Viggó Valgeirsson kemur inn fyrir Valdimar Jóhannsson sem tekur sér sæti á bekknum. Njarðvík er þá með annan varamarkmann en í síðsta leik, Andrés Már Kjartansson kemur á bekkinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Ingi er mættur aftur í lið Þórs
Fyrir leik
Leikurinn er í beinni á Livey


Fyrir leik
Síðustu leikir Bæði lið gerðu 2 - 2 jafntefli þann 25. júlí, Þór við Keflavík en Njarðvík við ÍR.

Eftir jafnteflin unnu bæði næstu þrjá leiki.
Þór vann Grindavík heima, og Fylkir og Völsung úti og fylgdu því eftir með fjórða sigurleiknum og þeim þriðja í röð úti, á móti ÍR:

Njarðvík vann H.K., Selfoss og Fjölni en náðu ekki að fylgja því eftir í síðasta leik þegar Þróttarar heimsóttu þá í Njarðvík því gestirnir óku Reykjanesbrautina í Vogana með þrjú stig í skottinu.
Fyrir leik
Tveir Þórsarar í banni Það taka tveir leikmenn Þórs út leikbann í dag. Það eru þeir Ibrahima Balde, sem hefur verið einn allra besti leikmaður deildarinnar, og spænski varnarmaðurinn Juan Guardia.
Fyrir leik
Toppslagur í Lengjudeildinni Gríðarlega mikilvægur leikur í toppbaráttu lengjudeildar fer fram í dag klukkan 16 í Boganum. Þar eigast við topplið Njarðvíkur og annars sætislið Þórs.

Liðið sem vinnur tyllir sér á toppinn þó svo að Njarðvíkingum dugi jafntefli til að tróna á toppnum.

Jafntefli þýðir hins vegar að Þróttur geti komið sér í annað sæti með sigri á Selfossliðinu á heimavelli. Það eru þó engan vegin gefin þrjú stig, frekar en nokkur önnur stig í þessari flóknu en stórskemmtilegu deild.
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Davíð Helgi Aronsson
3. Sigurjón Már Markússon
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Joao Ananias ('78)
9. Oumar Diouck
11. Freysteinn Ingi Guðnason ('73)
13. Dominik Radic ('78)
16. Svavar Örn Þórðarson ('78)
19. Tómas Bjarki Jónsson (f)
21. Viggó Valgeirsson ('73)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Andrés Már Kjartansson (m)
5. Arnar Helgi Magnússon
8. Kenneth Hogg ('78)
10. Valdimar Jóhannsson ('73)
17. Símon Logi Thasaphong ('78)
18. Björn Aron Björnsson ('78)
29. Ali Basem Almosawe ('73)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Rafn Markús Vilbergsson
Sigurður Már Birnisson
Jaizkibel Roa Argote
Gabríel Sindri Möller

Gul spjöld:
Svavar Örn Þórðarson ('61)
Viggó Valgeirsson ('69)

Rauð spjöld: