Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
Stjarnan
LL 2
1
Selfoss
Stjarnan
2
1
Selfoss
Emil Atlason '47 1-0
Emil Atlason '65 2-0
2-1 Einar Bjarki Einarsson '85
05.04.2026  -  15:00
Miðgarður
Mjólkurbikar karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Emil Atlason
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
6. Sindri Þór Ingimarsson ('69)
8. Jóhann Árni Gunnarsson ('46)
10. Samúel Kári Friðjónsson ('61)
11. Birnir Snær Ingason
14. Bjarki Hauksson
17. Haukur Örn Brink ('61)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
22. Emil Atlason (f) ('69)
32. Örvar Logi Örvarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
5. Guðmundur Kristjánsson ('69)
7. Örvar Eggertsson ('61)
19. Daníel Finns Matthíasson ('61)
20. Alpha Conteh
21. Ibrahim Turay ('46)
33. Bjarki Hrafn Garðarsson
49. Aron Freyr Heimisson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('69)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Rajko Stanisic (Þ)
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Hákon Ernir Haraldsson (Þ)
Hrannar Bogi Jónsson (Þ)
Egill Atlason
Garpur I Elísabetarson

Gul spjöld:
Jóhann Árni Gunnarsson ('15)
Daníel Finns Matthíasson ('69)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan heldur þetta út og er komið í 16-liða úrslit!
92. mín
Þetta hefði getað endað illa fyrir Stjörnunna! Einar Bjarki með sendingu í teiginn sem Árni lendir í allskonar veseni með en endar í öruggum höndum!
90. mín
3mín í uppbót! Boltinn mikið útaf og í þakinu þessar mundir
88. mín
Arnór Elí aftur að gera vel í markinu, myndaðist smá hætta fyrir framan markið en hann óð út og náði boltanum.
85. mín MARK!
Einar Bjarki Einarsson (Selfoss)
2-1 erum við með leik??!!! Frábær hornspyrna og Einar Bjarki rís úr þvögunni hæðst með GEGGJAÐAN skalla!!!!

Boltinn í miðjan teiginn og hann stýrir honum í fjærhornið!
84. mín
Selfoss aðeins að vakna.

Fá boltann fram og Elías Karl með gott hlaup reyndi að finna Viðar Örn en skallaði í hornspyrnu
80. mín
Þetta var sókn! Frábært spil sem endar í skoti hjá Andra Rúnar sem fer í stöngina.

Arnór Elí nær svo til boltanns en fær Örvar Loga í sig sem ætlaði í seinni boltann
78. mín
Boltinn algjörlega búin að haldast í sókn hjá Stjörnunni en engar stórhættur að eiga sér stað fyrir framan markið.
76. mín
Inn:Aron Darri Auðunsson (Selfoss) Út:Dagur Jósefsson (Selfoss)
Fór útaf vegna krampa eða einhverskonar meiðsli
73. mín
Inn:Brynjar Bergsson (Selfoss) Út:Aron Lucas Vokes (Selfoss)
73. mín
Inn:Elías Karl Heiðarsson (Selfoss) Út:Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss)
72. mín
Daníel Finns með skot sem fór yfir
69. mín Gult spjald: Daníel Finns Matthíasson (Stjarnan)
Fékk verðskuldað gult fyrir brotið sitt rétt áðan
69. mín
Inn:Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan) Út:Sindri Þór Ingimarsson (Stjarnan)
69. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan) Út:Emil Atlason (Stjarnan)
69. mín
Reynir Freyr sækir aðra aukaspyrnu, núna á nokkuð góðum stað.

Skotið leeengst yfir markið
67. mín
Örvar Logi keyrði á Reynir sem var að hamra boltanum upp.

Aukaspyrna en sleppur við spjald
65. mín MARK!
Emil Atlason (Stjarnan)
Stoðsending: Birnir Snær Ingason
2-0!! Fínasta tvíeyki hér á ferð aftur.

Stjarnan búnir að vera með boltann í rólegheitum, Sindri átti svo langan botla fram á Birni sem tók á skarið. Köttar boltanum fyrir markið og Emil Atla að sjálfsögðu mættur á fjærstöngina
61. mín
Inn:Örvar Eggertsson (Stjarnan) Út:Haukur Örn Brink (Stjarnan)
Fínt að eiga þennan til að koma inná af bekknum
61. mín
Inn:Daníel Finns Matthíasson (Stjarnan) Út:Samúel Kári Friðjónsson (Stjarnan)
57. mín
Inn:Einar Bjarki Einarsson (Selfoss) Út:Frosti Brynjólfsson (Selfoss)
Frosti búin að vera hörku duglegur í dag.
57. mín
Inn:Aron Fannar Birgisson (Selfoss) Út:Eysteinn Ernir Sverrisson (Selfoss)
Tvöföld skipting hjá gestunum
56. mín
Samúel Kári með aukaspyrnu frá hægri kantinum sem fann ekki liðsfélaga en Stjarnan ennþá með boltann
53. mín
Hætta! Allt í skrúfu þarna hjá vörn heimamanna Viðar Örn náði ekki almennilegu taki á boltanum með Árna Snær alveg í sér.
Boltinn endaði í hornspyrnu sem var vel gripin hjá Árni Snæ
52. mín
Selfoss að reyna færa boltann upp, Guðmundur Stefáns ekki alveg að finna samherjaí hlaupinu sínu á miðjum velli.
47. mín MARK!
Emil Atlason (Stjarnan)
Stoðsending: Birnir Snær Ingason
1-0 Þeir voru ekki lengi að breyta þessu hér í seinni, búnir að vera í brasi að finna Emil Atla í nógu góðu færi með fyrirgjöfum sínum en þarna kom það!
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað! Stjarnan með eina skiptingu í hálfleik
46. mín
Inn:Ibrahim Turay (Stjarnan) Út:Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
45. mín Gult spjald: Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss)
Hefur farið framhjá mér, en Reynir fékk gult fyrir að ýta við Jóhanni Árna eftir brotið hans þar sem hann fékk einnig gult á 15mín
45. mín
Hálfleikur
Arnór Elí með 2 mikilvæg grip hér rétt í lok fyrri hálfleiks.

Fínasta skemmtun hér í fyrri hálfleik, en Selfoss hljóta að fara sáttari inn í klefa
45. mín
2mín í uppbót
45. mín Gult spjald: Aron Lucas Vokes (Selfoss)
42. mín
Ennþá er Frosti að gera vel, þeyttist upp hægri kantinn en skotið er auðvelt fyrir Árna Snær í markinu
41. mín
Smá bras! Reynir í veseni að hreinsa, Arnór Elí þorir ekki að grípa boltann og náði skallanum gegn Emil Atla
39. mín
Selfoss að fá auka beint á teiginn, en aðeins of langt fyrir eitthvað skot

Lét þó vaða en aldrei hætta, boltinn niðri á grasinu og rúllar framhjá
38. mín
ÞVÍLÍK VARSLA! Emil Atla með smá snertingu í teignum beint á Birni Snær sem á stórhættulegt skot en Arnór Elí ver það frábærlega og nær að grípa síðan boltann bakvið sig
36. mín
Árni Snær í smá brasi en hreinsar upp í stúku
35. mín
Vantar aðeins upp á að fyrirgjafir Stjörnunnar finni Emil Atla almennilega
34. mín
Viðar Örn ósáttur við Twana að fá ekki aukaspyrnu sem hefði verið á fínasta stað.

Lítið í þessu svo sem
32. mín
Aron Lucas Vokes að brjóta við miðjan völlinn, aukaspyrna heimamanna
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Fram og tilbaka hérna!

Aron Lucas með algjört klúður í stór hættulegu færi, boltinn beinustu leið upp þar sem Emil Atla kemst í fína stöðu og tekur skotið sem rennur rétt framhjá
28. mín
Flott skot Aukaspyrna við vítateig Stjörnunnar upp á Emil Atla sem gerir vel,
Guðmundur Baldvin tekur skot rétt utan teig og það fer rétt yfir fær samskeytið
26. mín
Guðmundur Baldvin sem þurfti smá aðhlyningu en er kominn aftur inná
25. mín
Ivan Paponja með fyrirgjöf sem fór aðeins í varnarmann en Árni Snær með auðvelt grip á þessum
22. mín Gult spjald: Guðmundur Stefánsson (Selfoss)
Stoppaði skyndiáhlaup eftir hornspyrnu með smá peysutogi
20. mín
Allskonar kaos í teig gestanna. Jóhann Árni hleypti af skoti en vörnin stóð þetta af sér
18. mín
Árni Snær með mikilvægt inngrip og hamrar boltanum í burtu rétt áður en Frosti gat stolið honum
15. mín Gult spjald: Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
Illa tímasett tækling á miðjum vellinum.

Réttilega gult og Selfoss aukaspyrna
14. mín
Fyrsta horn er Stjörnunnar

Boltinn fann Emil Atla en mjög erfiður skalli sem fór framhjá nær horninu
13. mín
Skyndisókna hjá Selfossi Frosti vann þægilega boltann á miðjum vellinum og fann Viðar Örn í hlaupi upp hægri kantinn.
Guðmundur Stefáns síðan með skot sem fór rétt framhjá.

Fínasta skyndisókn
10. mín
Stjarnan að halda soldið í boltann um þessar mundir.
7. mín
Selfoss með fína sókn Markspyrna sem skoppaði aftur fyrir vörnina og Frosti fann Guðmund Stefáns rétt við teiginn sem kom sér í fína skotstöðu en boltinn yfir.
5. mín
Birnir Snær klikkar á fyrsta færi leiksins

Kassaði boltann niður í teignum og fór í skot en framhjá
3. mín
Rangstæða dæmd á Emil Atla í teig Selfoss
1. mín
Tók ekki langan tíma í að boltinn fari í þakið. Daði Kolviður með hreinsun sem fór þangað
1. mín
Leikur hafinn
Komið í gang Stjarnan sparkar leiknum af stað!
Fyrir leik
Liðinn eru mætt inná.

Twana Khalid á flautunni í þessum leik
Bendum fólki á sérstakan upphitunarþátt sem var á X977 og hægt er að nálgast á öllum hlaðvarpsveitum
Fyrir leik
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar:
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Það er bara flott, ágætt að menn hafi skoðun og trú á liðinu," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, um spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Stjörnunni er spáð 3. sæti fyrir tímabilið.

„Ég held að það sé ekki auðvelt að átta sig nákvæmlega hvar öll liðin standa akkúrat núna en finnst þetta eðlileg spá um okkur."

Mjög ánægður með hópinn
Jökull segir að það hafi gengið vel í vetur og það hafi verið stígandi í liðinu.

„Það hefur gengið vel, það hefur verið stígandi í gegnum veturinn og takturinn í liðinu er mjög góður. Liðið hefur bætt sig og við höfum spilað nokkra mjög góða leiki. Okkur líður mjög vel með þann stað sem liðið er á," segir Jökull sem er jafnframt ánægður með leikmannahópinn eins og hann er núna.

„Ég er mjög ánægður með leikmannahópinn. Við erum ekki að skoða styrkingu fyrir mót, þó það sé auðvitað aldrei hægt að útiloka neitt en það væri ótrúlegt ef það myndi gerast. Hópurinn er sterkur og samheldinn og stemningin frábær."

Gerir okkur að sterkara liði í dag
Stjarnan endaði í 3. sæti á síðasta tímabili og segir Jökull að síðasta sumar hafi verið áhugavert.

„Síðasta tímabil var bara áhugavert og á köflum svolítið ólíkt okkur inni á vellinum," segir Jökull. „Árangurinn var mjög góður og lærdómurinn af síðasta tímabili er mikill og gerir okkur að sterkara liði í dag."

Hvernig eru markmiðin fyrir komandi sumar?

„Stutta, einfalda svarið er að við ætlum að berjast um allt sem er í boði. Ofan á það þá höldum við sterkt í það sem hefur einkennt okkar hugsunarhátt sem er að vinna agað að því að verða betri sem einstaklingar og sem lið á öllum sviðum."

„Liðið mun spila af ástríðu í sumar og mun gera allt sem það getur til að kveikja í stuðningsfólkinu okkar. Það verður alvöru stemmning á Samsung vellinum og ef okkur tekst að kveikja í fólkinu okkar þá verður þetta eftirminnilegt ár í Garðabæ!" sagði Jökull að lokum.
Fyrir leik
Birnir Snær Ingason er meðal byrjunarliðsmanna Stjörnunnar Stjarnan
Komnir
Birnir Snær Ingason frá KA
Darri Bergmann Gylfason frá Augnabliki
Gustav Kjeldsen frá Vestra
Sveinn Sigurður Jóhannesson frá Val

Farnir
Adolf Daði Birgisson í FH
Steven Caulker hættur og farinn til Tyrklands
Þorlákur Breki Baxter til Keflavíkur (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson til Keflavíkur
Sigurður Gunnar Jónsson í HK (lán)
Andri Adolphsson hættur
Aron Dagur Birnuson í Þrótt R. (á láni)
Tristan Freyr Ingólfsson í Gróttu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn Viðar Örn Kjartansson er í byrjunarliði Selfyssinga en Jón Daði Böðvarsson er ekki með Selfossi og er skráður í liðsstjórn.

Óli Stefan Flóventsson stýrir Selfossi en hann tók við í vetur.

Mynd: Selfoss

Fyrir leik
Gestirnir Selfyssingar koma í þennan leik með 7-1 sigur á Augnablik á bakinu úr fyrri umferð Mjólkurbikarsins. Þeirra deild mun þó ekki hefjast fyrr en í byrjun Maí, en eftir að þeir féllu úr Lengjudeildinni í fyrra munu þeir spila í 2.deild og markmiðin eflaust sett hátt fyrir komandi tímabil.

Fyrir leik
Stjarnan Bestu deildar lið Stjörnunnar fær skemmtilegt verkefni í Mjólkurbikarnum í dag. Garðbæingar þurftu að sætta sig við 3.sætið í deildinni í fyrra og spámenn okkar spá endurtekningu á tímabilinu sem fer að hefjast.

Fyrir leik
Gleðilegan Páskadag! Stjarnan tekur á móti Selfossi í dag.

Bein textalýsing frá 32-liða úrslitum í Miðgarði.

Leikurinn hefst 15:00
Mynd: Aðsend

Byrjunarlið:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
2. Eysteinn Ernir Sverrisson ('57)
3. Reynir Freyr Sveinsson ('73)
5. Dagur Jósefsson ('76)
6. Daði Kolviður Einarsson (f)
7. Frosti Brynjólfsson ('57)
9. Viðar Örn Kjartansson
11. Bjarki Flóvent Ásgeirsson
21. Ivan Paponja
24. Guðmundur Stefánsson
32. Aron Lucas Vokes ('73)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
10. Aron Fannar Birgisson ('57)
13. Pawel Broniszewski
15. Aron Darri Auðunsson ('76)
16. Gestur Helgi Snorrason
17. Brynjar Bergsson ('73)
23. Elías Karl Heiðarsson ('73)
77. Einar Bjarki Einarsson ('57)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Þorkell Ingi Sigurðsson (Þ)
Heiðar Helguson (Þ)
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Jón Daði Böðvarsson
Elvar Orri Sigurbjörnsson
Ívan Breki Sigurðsson
Helgi Bárðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson

Gul spjöld:
Guðmundur Stefánsson ('22)
Reynir Freyr Sveinsson ('45)
Aron Lucas Vokes ('45)

Rauð spjöld: