Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
laugardagur 20. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
miðvikudagur 1. apríl
Meistaradeild kvenna
Bayern W - Man Utd W - 16:45
Chelsea W - Arsenal W - 19:00
Vináttuleikur
Bandaríkin 0 - 2 Portúgal
Argentína 5 - 0 Sambía
Kanada 0 - 0 Túnis
Brasilía 3 - 1 Króatía
Mexíkó 1 - 1 Belgía
HM umspil
Iraq - Bólivía - 03:00
Toppserien - Women
Molde W 0 - 0 Lyn W
Bodo-Glimt W - SK Brann W - 14:00
Haugesund W - Aalesund W - 14:00
Lillestrom W - Stabek W - 14:00
Rosenborg W - Honefoss W - 14:00
Valerenga W - Roa W - 14:00
mið 01.apr 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 3. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Stjarnan muni enda í 3. sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Stjarnan verður á sama stað og í fyrra ef spáin rætist.

Fyrir leik hjá Stjörnunni í vetur.
Fyrir leik hjá Stjörnunni í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Birnir Snær er frábær leikmaður í þessari deild.
Birnir Snær er frábær leikmaður í þessari deild.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Emil þarf að haldast heill.
Emil þarf að haldast heill.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ibrahim Turay kom til Stjörnunnar í fyrra en spilaði ekkert.
Ibrahim Turay kom til Stjörnunnar í fyrra en spilaði ekkert.
Mynd/Stjarnan
Gustav Kjeldsen er varnarmaður sem kom frá Vestra.
Gustav Kjeldsen er varnarmaður sem kom frá Vestra.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Guðmundur Kristjánsson mun spila stórt hlutverk í vörninni.
Guðmundur Kristjánsson mun spila stórt hlutverk í vörninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örvar Eggertsson er kraftmikill á kantinum.
Örvar Eggertsson er kraftmikill á kantinum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Baldvin var mjög góður á síðasta tímabili.
Guðmundur Baldvin var mjög góður á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnunnar.
Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnunnar.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Vinstri bakvörðurinn Örvar Logi Örvarsson.
Vinstri bakvörðurinn Örvar Logi Örvarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hvað gerir Stjarnan í sumar?
Hvað gerir Stjarnan í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. Stjarnan, 120 stig
4. ÍA, 102 stig
5. KR, 90 stig
6. Valur, 88 stig
7. KA, 74 stig
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig

Um liðið: Stjarnan endaði í 3. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa hótað smá titilbaráttu þegar deildin skiptist seint um sumarið. Um leið og þeir voru farnir að hóta titilbaráttu, þá gáfu Garðbæingar hins vegar eftir og enduðu langt á eftir Víkingum sem urðu Íslandsmeistarar. Stjarnan vann ekki leik eftir að deildin skiptist. „Stjarnan verður að fara gera eitthvað, í guðanna bænum. Þetta er búið að vera það sama í þrjú ár. Ég held að Jökull þurfi að skila einhverju í sumar. Mér finnst þetta búið að einkennast af óstöðugleika. Þegar hann vinnur leiki spilar hann á sama liðinu, þá gerir hann það vel. Miðað við mannskapinn neita ég að trúa öðru en að Stjarnan geti veitt Víkingum einhverja keppni," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, í útvarpsþættinum Fótbolti.net, fyrir nokkrum vikum síðan og það hlýtur að vera markmiðið í Garðabænum; að veita Víkingum samkeppni um þann stóra.

Þjálfarinn: Jökull Elísabetarson er að fara inn í sitt þriðja heila tímabil sem þjálfari Stjörnunnar eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Ágústar Gylfasonar þar áður. Á ferli sínum sem leikmaður spilaði Jökull með KR, Víkingi, Breiðabliki, ÍBV, KV, HK og Augnabliki. Jökull er af nýja skólanum en hann þjálfaði áður Augnablik, venslafélag Breiðabliks, við góðan orðstír. Hann þykir mjög svo spennandi þjálfari sem verður áhugavert að fylgjast með í framtíðinni, en hann er svolítið óútreiknanlegur og hefur verið með áhugaverðar hugmyndir um fótbolta. Jökull á enn eftir að sýna að hann geti unnið eitthvað með Stjörnunni og það er pressa á honum komandi inn í þetta sumar. Mögulega er hann sá þjálfari sem er í heitasta sætinu komandi inn í tímabilið.

Styrkleikar: Stjarnan er með einn af bestu leikmannahópunum í deildinni og breiddin er gríðarlega góð. Það á eftir að vera hausverkur fyrir Jökul og hans teymi að velja liðið í sumar. Þeir hafa styrkt sig vel í vetur og fengu einn besta leikmann deildarinnar, Birni Snæ Ingason, í sínar raðir. Birnir kemur til með að krydda vel upp á sóknarleikinn. Stjarnan er með sterka leikmenn í hverri einustu stöðu og samkeppnin í hópnum er góð. Í fyrra sýndu þeir á sér nýjar hliðar þegar þeir fóru mikið að harka sigra en það er jákvætt að þeir geti gert það líka í bland við það að spila góðan og aðlaðandi fótbolta. Þeir eru óútreiknanlegir og það getur verið styrkleiki. Í hópnum er góð blanda af yngri og reynslumeiri leikmönnum og það er kraftur á pöllunum líka þar sem Silfurskeiðin lætur vel í sér heyra.

Veikleikar: Það var svolítill óstöðugleiki í Stjörnunni síðasta sumar, þeir voru mikið upp og niður. Það er erfitt að ráða í Stjörnuna og of mikill hræringur gæti farið illa í hausinn á ungum mönnum. Þú þarft stöðugleika til að vinna titla og það er spurning hvort Stjörnumenn séu með það. Þeir eiga allavega eftir að sýna það og sanna. Það er mikil pressa á Stjörnunni komandi inn í tímabilið að fara að skila einhverju og það gæti verið erfitt að ráða við þá pressu. Í Garðabænum virðast menn skiptast í ákveðnar fylkingar um það hvort liðið sé á réttri leið og ekki allir sannfærðir. Varnarleikurinn var ekki nægilega góður á síðustu leiktíð og vantaði að menn myndu stíga upp á þeim enda vallarins. Menn í liðinu eiga eftir að sýna það og sanna að þeir séu sigurvegarar, að þeir geti skilað titlum í hús fyrir félagið í meistaraflokki.

Lykilmenn: Birnir Snær Ingason og Emil Atlason
Stjörnumenn lönduðu einum stærsta bitanum á markaðnum í vetur þegar Birnir Snær Ingason gekk í raðir félagsins. Birnir er 28 ára kantmaður sem kom öflugur inn í lið KA og hjálpaði liðinu úr erfiðri stöðu á síðasta tímabili. Tímabilið 2023 var Birnir besti leikmaður Íslandsmótsins og hann er einn af þeim sem er líklegastur í þá nafnbót í sumar. Emil er þá sóknarmaðurinn sem Birnir á að finna í teignum. Það er vonandi fyrir Stjörnuna að Emil haldist heill því ef það gerist þá aukast líkurnar á því að eitthvað gott gerist í Garðabænum í sumar.

Gaman að fylgjast með: Ibrahim Turay
Það er alltaf mikið um efnilega leikmenn í Garðabænum og einn þeirra er til dæmis Haukur Örn Brink sem hefur leikið fantavel á undirbúningstímabilinu. En við nefnum Ibrahim Turay hér sem leikmann til að fylgjast með en hann hefur einnig verið sterkur í vetur. Turay var kynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar undir lok félagaskiptagluggans síðasta sumar en spilaði ekki eftir það þar sem hann fékk ekki vegabréfsáritun. Turay á að baki landsleiki fyrir Síerra Leóne og er skemmtilegur leikmaður.

Spurningarnar: Getur Stjarnan tekið skrefið og orðið meistari? Verður Birnir Snær besti leikmaður deildarinnar? Finna þeir liðið sitt?

Völlurinn: Samsungvöllurinn er svo sannarlega ekki flottasti völlur deildarinnar þegar horft er á leiki í sjónvarpinu og það er yfirleitt frekar kalt þegar maður skellir sér á völlinn. En stemningin er góð og Silfurskeiðin lætur ávallt í sér heyra. Þá stendur Dúllubarinn alltaf fyrir sínu.

Komnir:
Birnir Snær Ingason frá KA
Darri Bergmann Gylfason frá Augnabliki
Gustav Kjeldsen frá Vestra
Sveinn Sigurður Jóhannesson frá Val

Farnir:
Adolf Daði Birgisson í FH
Steven Caulker hættur og farinn til Tyrklands
Þorlákur Breki Baxter til Keflavíkur (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson til Keflavíkur
Sigurður Gunnar Jónsson í HK (lán)
Andri Adolphsson hættur
Aron Dagur Birnuson í Þrótt R. (á láni)
Tristan Freyr Ingólfsson í Gróttu



Leikmannalisti:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
2. Heiðar Ægisson
3. Gustav Kjeldsen
4. Þorri Mar Þórisson
5. Guðmundur Kristjánsson
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Samúel Kári Friðjónsson
14. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
20. Alpha Conteh
21. Ibrahim Turay
22. Emil Atlason
23. Benedikt Warén
29. Alex Þór Hauksson
31. Damil Dankerlui
32. Örvar Logi Örvarsson
37. Haukur Örn Brink
39. Elvar Máni Guðmundsson
49. Aron Freyr Heimisson
78. Bjarki Hauksson
99. Andri Rúnar Bjarnason

Fyrstu fimm leikir Stjörnunnar:
12. apríl, KA - Stjarnan (Greifavöllurinn)
17. apríl, Stjarnan - FH (Samsungvöllurinn)
23. apríl, Víkingur R. - Stjarnan (Víkingsvöllur)
27. apríl, Stjarnan - Valur (Samsungvöllurinn)
3. maí, ÍA - Stjarnan (ELKEM völlurinn)

Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
banner