Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
KR
LL
4
2
2
Valur

KR
4
2
Valur

Eiður Gauti Sæbjörnsson
'6
1-0
Finnur Tómas Pálmason
'20
2-0
Aron Sigurðarson
'46
3-0
3-1
Birkir Heimisson
'66
Aron Sigurðarson
'85
4-1
4-2
Bjarni Mark Duffield
'90
06.04.2026 - 17:00
Egilshöll
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Engar veðurviðvaranir inni í Egilshöll
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Egilshöll
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Engar veðurviðvaranir inni í Egilshöll
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
1. Arnar Freyr Ólafsson (m)
4. Michael Akoto
('86)
('86)
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
11. Aron Sigurðarson (f)
17. Luke Rae
('65)
('65)
19. Amin Cosic
('65)
('65)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
('75)
('75)
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Arnór Ingvi Traustason
26. Hrafn Tómasson
- Meðalaldur 27 ár
Varamenn:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
6. Alexander Helgi Sigurðarson
8. Stefán Árni Geirsson
10. Guðmundur Andri Tryggvason
('65)
('65)
14. Alexander Rafn Pálmason
18. Jón Ernir Ragnarsson
('86)
('86)
29. Aron Þórður Albertsson
45. Galdur Guðmundsson
('65)
('65)
77. Orri Hrafn Kjartansson
('75)
('75)
Liðsstjórn:
Jamie Paul Brassington (Þ)
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Hilmar Árni Halldórsson (Þ)
Guðjón Örn Ingólfsson
Björn Valdimarsson
Lúðvík Júlíus Jónsson
Magnus Börheim
Gul spjöld:
Amin Cosic ('63)
Orri Hrafn Kjartansson ('92)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
KR í 16-liða úrslit!
Ívar Orri flautar til leiksloka. Sigur KR er svo sannarlega verðskuldaður. Valsmenn fóru alla leið í úrslit í fyrra en hafa lokið þátttöku í Mjólkurbikarnum þetta árið.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
95. mín
Gult spjald: Ingimar Torbjörnsson Stöle (Valur)
Gult spjald: Ingimar Torbjörnsson Stöle (Valur)
Brýtur á Aroni Sig og fer í bókina góðu.
90. mín
MARK!
MARK!Bjarni Mark Duffield (Valur)
Valsmenn klóra í bakkann
Frábært vinstri fótar skot hjá Bjarna fyrir utan teig, Arnar Freyr kemur engum vörnum við í marki KR.
forréttindi að horfa á Aron Sig spila fótbolta og Amin
— Bogdan Bogdanovic (@bbogdanovic95) April 6, 2026
85. mín
MARK!
MARK!Aron Sigurðarson (KR)
Stoðsending: Finnur Tómas Pálmason
Stoðsending: Finnur Tómas Pálmason
Aron klárar þetta!
Finnur Tómas rennir boltanum á Aron Sig sem þræðir boltanum á milli fóta Harðar Inga og í fjærhornið.
KR-ingar svo gott sem komnir í 16-liða úrslitin.
KR-ingar svo gott sem komnir í 16-liða úrslitin.
83. mín
Aron Sig með aðra tilraun en að þessu sinni fer hún langt framhjá marki gestanna.
Gummi Hilmars hefði hent upp rauða spjaldinu á Arnar markvörð
Rautt spjald allan tímann. Glórulaust hjá Ívari dómara.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) April 6, 2026
82. mín
Aron Sig reynir að lyfta boltanum yfir Frederik Schram sem handsamar boltann auðveldlega.
79. mín
FREDERIK SCHRAM!
Guðmundur Andri með frábæran sprett og tekur fast skot sem Frederik ver vel, boltinn á Eið Gauta sem skýtur á markið en Frederik fljótur til og ver aftur frábærlega.
76. mín
„Getur ekki verið annað en rautt spjald“
Valsmenn koma með bolta í gegn. Arnar Freyr markvörður KR hátt uppi á vellinum og fer harkalega í Tryggva Hrafn.
Ívar Orri dæmir þó brot á Tryggva Hrafn og KR-ingar fá aukaspyrnu.
Höddi Magg situr við hliðina á mér, hann segir Arnar í órétti og heimtar rautt spjald í lýsingu sinni.
Ívar Orri dæmir þó brot á Tryggva Hrafn og KR-ingar fá aukaspyrnu.
Höddi Magg situr við hliðina á mér, hann segir Arnar í órétti og heimtar rautt spjald í lýsingu sinni.
75. mín
Inn:Orri Hrafn Kjartansson (KR)
Út:Gabríel Hrannar Eyjólfsson (KR)
Arnór Ingvi fer niður í hafsent og Finnur Tómas út í breiddina vinstra megin.
72. mín
KR-ingar leika sér að eldinum.
Ætla sér að spila út frá marki en Valsmenn komast inn í sendinguna. Boltinn berst þó beint á Arnar markmann og Vesturbæingar halda í boltann.
Ætla sér að spila út frá marki en Valsmenn komast inn í sendinguna. Boltinn berst þó beint á Arnar markmann og Vesturbæingar halda í boltann.
70. mín
Stórhætta!
Gabríel Hrannar með glórulausa sendingu sem Birkir Heimis kemst inn í.
Arnar Freyr ekki í markinu en Birkir áttar sig ekki á því að hann hefur nægan tíma og flýtir sér í skotið sem fer framhjá.
Valsmenn að sækja í sig veðrið!
Arnar Freyr ekki í markinu en Birkir áttar sig ekki á því að hann hefur nægan tíma og flýtir sér í skotið sem fer framhjá.
Valsmenn að sækja í sig veðrið!
66. mín
MARK!
MARK!Birkir Heimisson (Valur)
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
Líflína!
Jakob Franz gefur fyrir á fjær, Tryggvi Hrafn skallar boltann fyrir markið á Birki Heimis sem skallar boltann í netið af stuttu færi.
Tekst Valsmönnum að snúa taflinu við?
Tekst Valsmönnum að snúa taflinu við?
65. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (KR)
Út:Amin Cosic (KR)
Guðmundur Andri mætir sínu gamla liði.
63. mín
Gult spjald: Amin Cosic (KR)
Gult spjald: Amin Cosic (KR)
Fer seint í Bjarna Mark og fær gult spjald að launum.
60. mín
Hvað gerðist hérna?
Frederik Schram missir auðveldan bolta frá sér, boltinn fer í Eið Gauta sem kveikir ekki á mistökum markvarðarins og Schram handsamar boltann að lokum. Þetta hefði verið gjöf hefði Eiður verið klár.
Mjög furðuleg atburðarás.
Mjög furðuleg atburðarás.
59. mín
Inn:Myles A Veldman (Valur)
Út:Markus Lund Nakkim (Valur)
Markus Nakkim biður nú um skiptingu, slæm tíðindi fyrir Valsmenn. Nýi maðurinn Myles Veldman kemur inn í staðinn.
56. mín
KR-ingar hvergi nærri hættir!
Aron Sig með frábæra tilraun, ætlar sér að lyfta boltanum yfir Frederik sem kemur fingurgómunum í boltann. Því næst á Ástbjörn tilraun sem fer í varnarmann.
Þarna mátti engu muna!
Þarna mátti engu muna!
50. mín
Jónatan Ingi sárþjáður
Liggur niðri, lítur ekki vel út. Snýr á sér ökklann og biður samstundis um skiptingu.
Kom inn á fyrir fimm mínútum en neyðist til að fara af velli.
Kom inn á fyrir fimm mínútum en neyðist til að fara af velli.
46. mín
MARK!
MARK!Aron Sigurðarson (KR)
Eftir 49 sekúndur!
KR-ingar bæta við þegar 49 sekúndur eru liðnar af seinni hálfleik.
KR-ingar keyra upp í hraða sókn. Aron Sig lætur vaða, boltinn í varnarmann. Hann fær þó boltann aftur og lyftir honum snyrtilega yfir Frederik Schram og í fjærhornið.
KR með annan fótinn í 16-liða úrslitum!

Inn:Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
Út:Dagur Orri Garðarsson (Valur)
Jónatan Ingi kemur inn!
Dagur Orri tekinn af velli. Hann átti hættulegustu tilraun Valsmanna er hann átti skot í stöngina á 31. mínútu.
45. mín
Hálfleikur
KR leiðir sanngjarnt!
Ívar Orri dómari flautar til hálfleiks. KR-ingar með tveggja marka forystu.
Eins vel og KR-ingar líta út þá er útlitið ekki jafn bjart fyrir Hlíðarendafélagið, amk. ekki ef miðað er við þessar 45 mínútur.
Eins vel og KR-ingar líta út þá er útlitið ekki jafn bjart fyrir Hlíðarendafélagið, amk. ekki ef miðað er við þessar 45 mínútur.
43. mín
KR-ingar fá hornspyrnu. Boltinn fer manna á milli í teignum en Valsmenn koma hættunni að lokum.
40. mín
Arnór Ingvi með góða tilraun! Lætur vaða fyrir utan teig en Frederik Schram ver vel í marki gestanna.
33. mín
Aron Sig!
Lætur vaða úr aukaspyrnunni, Frederik nær að setja fingurgómana í boltann og ver vel.
32. mín
Gult spjald: Jakob Franz Pálsson (Valur)
Gult spjald: Jakob Franz Pálsson (Valur)
Brýtur á Amin Cosic við vítateigshornið og fer réttilega í bókina góðu.
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
STÖNGIN!
Dagur Orri nálægt því að minnka muninn. Fær sendingu frá Tryggva Hrafni og lætur vaða af stuttu færi en boltinn í stöngina.
29. mín
Góð sókn Vals
Adam Ægir byggir upp skemmtilega sókn, sem endar með því að hann gefur fyrir á Tryggva Hrafn sem á kraftlítinn skalla að marki.
26. mín
Tryggvi Hrafn búinn að sleppa í gegn tvívegis með stuttu millibili en í bæði skiptin verið flaggaður rangstæður.
25. mín
Gabríel Hrannar með skalla að marki gestanna en Frederik Schram handsamar boltann örugglega.
20. mín
MARK!
MARK!Finnur Tómas Pálmason (KR)
Stoðsending: Aron Sigurðarson
Stoðsending: Aron Sigurðarson
Finnur tvöfaldar forystuna!
KR-ingar fá hornspyrnu, Aron Sig tekur. Finnur Tómas rís manna hæst og stangar boltann að marki. Boltinn fer í Jakob Franz og þaðan í netið.
Brekkan verður brattari fyrir Valsmenn.
Brekkan verður brattari fyrir Valsmenn.
14. mín
Fyrsta ógn Valsmanna!
Hörður Ingi fær sendingu upp vinstri kantinn, hann kemur með hættulega sendingu fyrir markið en Tryggvi Hrafn nær ekki að reka stóru tána í boltann.
11. mín
Algjör einstefna!
Aron Sig með skot sem fer af varnarmanni og í utanverða stöngina.
10. mín
Óhætt að segja það að KR-ingar líta ansi vel út hérna fyrstu tíu mínúturnar. Valsmenn ekki komist yfir miðju.
8. mín
Gabríel Hrannar!
Gabríel Hrannar með þrumuskot utan af velli en Frederik Schram ver vel í marki Vals.
6. mín
MARK!
MARK!Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Stoðsending: Amin Cosic
Stoðsending: Amin Cosic
Draumabyrjun KR!
Eiður Gauti brýtur ísinn!
Amin Cosic með góða fyrirgjöf á Eið Gauta sem stangar boltann beint á Frederik Schram. Boltinn berst þó aftur á Eið sem setur boltann í autt netið af stuttu færi.
Þetta tók ekki langan tíma!
Amin Cosic með góða fyrirgjöf á Eið Gauta sem stangar boltann beint á Frederik Schram. Boltinn berst þó aftur á Eið sem setur boltann í autt netið af stuttu færi.
Þetta tók ekki langan tíma!
5. mín
KR-ingar halda betur í boltann. Þegar boltinn tapast pressa þeir stíft, eins og við mátti búast.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Dagur Orri Garðarsson á upphafsspark leiksins.
Fyrir leik
Sigurður Breki ekki með
Hinn 16 ára gamli Sigurður Breki Kárason fékk höfuðhögg í landsliðsverkefni og er ekki með KR-ingum í dag. Þetta kom fram í útsendingu RÚV. Strákur sem er gríðarlega spennandi.
05.04.2026 15:33
„Myndi borga mig inn 100-200 þúsund til að horfa á hann spila"
Fyrir leik
Leikmenn ganga til vallar, Heyr mína bæn í tækunum og liðin fá mikið lófatak úr stúkunni.
Fyrir leik
Fínasta stemning að myndast hérna í Egilshöllinni, Big Sexy í græjunum og fólk farið að tínast inn.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Þá er búið er að opinbera byrjunarliðin og má sjá þau í heild sinni hér til hliðar.
Annars er það helst að Óskar Hrafn byrjar áfram með Arnar Frey Ólafsson í markinu. Þeir Michael Akoto og Finnur Tómas eru þar fyrir framan í hafsentum.
Það vekur athygli að Hrafn Tómasson er í byrjunarliði KR en hann var á láni hjá Þrótti í vetur. Þeir Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason eru jafnframt báðir í byrjunarliði Vesturbæinga.
Hrafn Tómasson.
Hermann Hreiðarsson byrjar með Frederik Schram í markinu en hann hefur verið að glíma við meiðsli á undirbúningstímabilinu.
Þá byrjar Dagur Orri Garðarsson fremstur, en hann gekk til liðs við félagið frá HK í vetur. Jónatan Ingi Jónsson byrjar á bekknum en hann hefur einnig verið að glíma við meiðsli.
Hemmi og Dagur Orri á tali í leik með HK síðasta sumar.

Bendum fólki á sérstakan upphitunarþátt sem var á X977 og hægt er að nálgast á öllum hlaðvarpsveitum
Útvarpsþátturinn #Fotboltinet - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu https://t.co/5W94UUTSYk
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) April 4, 2026
Fyrir leik
Tvíhöfði í Egilshöll
Upprunalega átti leikurinn að fara fram á Meistaravöllum vestur í bæ en vegna veðurs var hann færður inn í Egilshöll.
Leiknum var jafnframt seinkað um klukkustund en það er vegna leiks HK og Fjölnis sem hefst klukkan 13:00. Sjálfur verð ég á báðum leikjum og hvet flesta til þess að gera slíkt hið sama!
Til þess má geta að allir leikir dagsins í Mjólkurbikarnum fara fram innanhúss.

18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Markus Lund Nakkim
('59)
('59)
6. Bjarni Mark Duffield
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
19. Dagur Orri Garðarsson
('46)
('46)
21. Jakob Franz Pálsson
22. Birkir Heimisson
('89)
('89)
23. Adam Ægir Pálsson
('89)
- Meðalaldur 27 ár
('89)
Varamenn:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
8. Jónatan Ingi Jónsson
('46)
('52)
('46)
('52)
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle
('89)
('89)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
14. Albin Skoglund
('52)
('52)
24. Myles A Veldman
('59)
('59)
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson
27. Pétur Eiríksson
('89)
('89)
33. Andi Hoti
Liðsstjórn:
Chris Brazell (Þ)
Vignir Snær Stefánsson (Þ)
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Emil Alexander Larsen (Þ)
Einar Óli Þorvarðarson
Örn Erlingsson
Kirian Elvira Acosta
Gul spjöld:
Jakob Franz Pálsson ('32)
Hermann Hreiðarsson ('76)
Ingimar Torbjörnsson Stöle ('95)
Rauð spjöld: