Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Myndi borga mig inn 100-200 þúsund til að horfa á hann spila"
Sigurður Breki Kárason.
Sigurður Breki Kárason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Breki í leik gegn Val síðasta sumar.
Sigurður Breki í leik gegn Val síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Breki Kárason er leikmaður sem margir unnendur íslenska boltans eru mjög spenntir fyrir því að sjá í Bestu deildinni í sumar.

Þeir sem horfðu á leik KR og Val í fyrra, þeir gleyma því ekki þegar Sigurður Breki trítlaði inn á völlinn. Langminnsti leikmaður vallarins en hann gaf ekkert eftir og var frábær í leiknum.

Sigurður Breki verið stórkostlegur á undirbúningstímabilinu og kemur til með að taka stórt hlutverk í KR-liðinu í sumar þrátt fyrir ungan aldur, en hann er bara 16 ára gamall.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og var þar spurður út í Sigurð Breka sérstaklega.

„Hann er mikilvægur maður í liðinu okkar," sagði Óskar Hrafn. „Við erum með tvo unga menn, Alexander Rafn sem fer 1. júlí til Nordsjælland og Sigga Breka. Við erum í raun og veru pínu spilltir því þeir eru vandfundnir eins karakterar á þessum aldri. Þeir eru algjörlega lausir við kóngastæla og sýna hreint alveg ótrúlegan stöðugleika í gegnum allan veturinn. Þeir eru yndislegir drengir og frábærir fótboltamenn."

„Við erum búnir að selja Alexander og bindum miklar vonir við Sigga. Hann er frábær leikmaður. Draumurinn er að hann fari út, hvenær menn kveikja á honum verður að koma í ljós. Hingað til sýnist mér að hæðin hafi unnið gegn honum en ég trúi því að hann sé á góðri leið með að afsanna það að þú þurfir að vera 1,80 til að geta spilað í þessari deild ungur."

Svo gaman að horfa á hann
Sigurður Breki er einstakur leikmaður og Óskar hefur ótrúlega gaman að því að horfa á hann spila.

„Það er bara svo gaman að horfa á hann," sagði Óskar.

„Ég setti hann inn á móti Fjölni í Reykjavíkurmótinu í fyrra, 11. janúar og hann var nýorðinn 15 ára. Hann hefur stækkað töluvert síðan þá. Ég myndi borga mig inn 100-200 þúsund bara til að horfa á hann spila fótbolta. Svo er maður í þeirri forréttindastöðu að fá að horfa á hann á hverri einustu æfingu. Það er ótrúlega gaman að horfa á hann spila þennan leik."

Það mun eflaust koma áhugi erlendis frá á Sigurði Breka fyrr frekar en síðar, en Óskar segir að það verði bara tekið á því þegar þar að kemur.

„Auðvitað er það þannig að ef KR-liðið smellur og ef KR er í gírnum, þá tel ég engan vafa á því að hann spila mjög vel. Ef lið kveikja á honum erlendis þá verð ég fyrsti maðurin til að keyra hann út á Keflavíkurflugvöll," sagði Óskar léttur enda er Sigurður Breki ekki kominn með bílpróf.

Hægt er að hlusta á allan þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu
Slapp
banner
banner