Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
laugardagur 28. mars
Vináttulandsleikur
föstudagur 27. mars
Mjólkurbikar karla
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 27. mars
Frauen
Carl Zeiss Jena W - RB Leipzig W - 17:30
Vináttuleikur
Gínea 0 - 1 Togo
Kólumbía 1 - 2 Króatía
Benin 0 - 0 Palestine
Íran 1 - 2 Nígería
Jordan - Kosta Ríka - 17:30
Liberia 0 - 0 Máritanía
Libya - Niger - 19:00
Italy U-20 2 - 3 England U-20
Rússland - Nicaragua - 16:30
Austurríki - Gana - 17:00
Svartfjallaland - Andorra - 17:00
Suður-Afríka - Panama - 17:00
Sádí Arabía - Egyptaland - 17:30
Grikkland - Paragvæ - 19:00
Alsír - Guatemala - 19:30
England - Úrúgvæ - 19:45
Holland - Noregur - 19:45
Sviss - Þýskaland - 19:45
Spánn - Serbía - 20:00
Marokkó - Ekvador - 20:15
Argentína - Máritanía - 23:15
Thailand U-23 - Vietnam U-23 - 07:00
Japan U-21 0 - 2 USA U-21
Tunisia U-20 3 - 2 Mauritania U-20
Ekkert mark hefur verið skorað
Argentina U-20 0 - 3 USA U-20
Slovakia U-18 0 - 0 Serbia U-18
Mexico U-20 - Costa Rica U-20 - 16:30
Russia U-21 2 - 1 Uzbekistan U-23
Kyrgyzstan U-23 1 - 2 Jordan U-23
Cote dIvoire U-20 0 - 0 Tunisia U-23
China PR U-20 - Australia U-20 - 07:00
Algeria U-23 - DR Congo U-23 - 17:00
Benin 0 - 0 Liberia
United Arab Emirates U-23 - Oman U-23 - 16:00
HM umspil
New Caledonia 0 - 1 Jamaíka
fös 27.mar 2026 14:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 6. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Valur muni enda í 6. sæti í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Valur kemst í efri hlutann en endar þar neðst ef spáin rætist.

Valur fagnar marki á síðasta tímabili.
Valur fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Hreiðarsson er nýr þjálfari Vals.
Hermann Hreiðarsson er nýr þjálfari Vals.
Mynd/Valur
Frederik er frábær markvörður.
Frederik er frábær markvörður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrick Pedersen missir af fyrstu mánuðum tímabilsins.
Patrick Pedersen missir af fyrstu mánuðum tímabilsins.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmar Örn er mikilvægur í vörninni.
Hólmar Örn er mikilvægur í vörninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Orri gekk í raðir Vals í vetur.
Dagur Orri gekk í raðir Vals í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Torbjörnsson Stöle kom frá KA.
Ingimar Torbjörnsson Stöle kom frá KA.
Mynd/Valur
Bjarni Mark Antonsson og Andi Hoti.
Bjarni Mark Antonsson og Andi Hoti.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Hrafn er mikilvægur í sókninni.
Tryggvi Hrafn er mikilvægur í sókninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jónatan Ingi þarf að stíga upp.
Jónatan Ingi þarf að stíga upp.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir er einn skemmtilegasti karakter deildarinnar.
Adam Ægir er einn skemmtilegasti karakter deildarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markus Nakkim kom ágætlega inn í vörn Vals á síðasta tímabili.
Markus Nakkim kom ágætlega inn í vörn Vals á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gera Valsmenn á þessu tímabili?
Hvað gera Valsmenn á þessu tímabili?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Valur, 88 stig
7. KA, 74 stig
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig

Um liðið: Það gekk alveg nokkuð mikið á hjá Valsmönnum á síðasta tímabili þrátt fyrir að liðið hafi endað í öðru sæti og náð þannig að komast í Evrópukeppni. Fyrir tímabilið var Gylfi Þór Sigurðsson seldur til Víkinga og það litaði mikið umræðuna fyrir tímabilið. Svo þegar leið á tímabilið þá varð rosalega hávær umræða um að Srdjan Tufegdzic, Túfa, yrði ekki áfram þjálfari liðsins. Tímabilið var nokkuð flott framan af hjá Valsmönnum en eftir bikarúrsitaleikinn, þar sem þeirra besti maður Patrick Pedersen meiddist illa, þá fór allt einhvern veginn í skrúfuna. Liðið missti af Víkingum fram úr sér og að lokum varð titilbaráttan ekki mikið spennandi. Eftir tímabilið réðust Valsmenn í breytingar, bæði innan sem utan vallar. Núna á að yngja upp og horfa til framtíðar á Hlíðarenda.

Þjálfarinn: Hermann Hreiðarsson tók við sem þjálfari Vals af Túfa eftir síðasta tímabil. Það er komið alveg nýtt teymi á Hlíðarenda því Chris Brazell verður aðstoðarþjálfari og svo er Gareth Owen orðinn markvarðarþjálfari. Sumir hafa talað um breska innrás á bak við tjöldin hjá Val. Hermann kemur til Vals frá HK þar sem hann hafði verið í eitt ár. Hann endaði með HK í 4. sæti Lengjudeildarinnar, komst í úrslitaleik umspilsins um sæti í Bestu deildinni en þar tapaði liðið gegn Keflavík. Hermann er fyrrum landsliðs- og atvinnumaður sem hefur einnig stýrt ÍBV, karla- og kvennaliði Fylkis, Þrótti Vogum, verið aðstoðarmaður Sol Campbell hjá Southend og aðstoðarmaður David James hjá Kerala Blasters á sínum þjálfaraferli. Þetta er klárlega hans stærsta þjálfarastarf til þessa og verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar í því.

Styrkleikar: Það hefur ekkert breyst að leikmannahópur Vals er gríðarlega vel mannaður. Tryggvi Hrafn Haraldsson og Jónatan Ingi Jónsson eru tveir af bestu framherjum deildarinnar og þeir verða að taka enn stærra hlutverk á komandi tímabili. Þeir eru með einstaklingsgæði sem geta gert út um leiki. Svo eru þeir með besta markvörð deildarinnar í Frederik Schram en hann er markvörður sem ætti að geta unnið stig fyrir þá. Það hefur verið einkennismerki Hemma Hreiðars undanfarin ár að hann hefur náð upp mikilli stemningu í sínum liðum og það er eitthvað sem manni finnst hafa vantað hjá Val síðustu misseri. Það er vonandi fyrir Valsmenn að góð stemning og góður andi verði einkennismerki þeirra á komandi keppnistímabili.

Veikleikar: Patrick Pedersen, besti striker deildarinnar, er meiddur framan af móti og mun ekkert spila fyrstu mánuði þess. Það er högg fyrir Valsmenn og þó þeir séu með frábæra kantmenn, þá vantar þeim níu á meðan Patrick er meiddur. Þeir eru með unga stráka sem hafa ekkert sýnt í þessari deild í þeirri stöðu og það verður mikil ábyrgð lögð á herðar þeirra í upphafi móts. Valur hefur reynt að fá Kristófer Inga Kristinsson frá Breiðabliki en án árangurs. Undirbúningstímabilið hefur ekki verið neitt stórkostlegt hjá Valsmönnum og það er erfitt að ráða í það hvernig þeir munu mæta inn í mótið. Það er erfitt að færa rök fyrir því að leikmannahópurinn sé sterkari en hann var á síðasta tímabili en lítið hefur verið að frétta á markaðnum hjá Valsmönnum. Þeir eru til dæmis þunnskipaðir á miðsvæðinu. Valur ætlar að spila með þriggja hafsenta kerfi en fyrirfram man maður ekki eftir mörgum liðum í toppbaráttu á Íslandi sem hafa spilað það kerfi reglulega.

Lykilmenn: Frederik Schram og Patrick Pedersen
Eins og áður segir er Frederik Schram besti markvörður deildarinnar, hann var valinn það þegar síðasta tímabil var að klárast. Þegar hann er upp á sitt besta þá er hann markvörður sem getur unnið stig fyrir liðið. Patrick er sömuleiðis besta nía deildarinnar en hann hefði líklega bætt markametið ef hann hefði haldist heill. Svo er alveg hægt að færa rök fyrir því að Valur hefði getað orðið Íslandsmeistari ef hann hefði ekki meiðst. Ef og hefði, og allt það. Það er mikilvægt fyrir Val að danska markamaskínan snúi aftur á völlinn sem fyrst.

Gaman að fylgjast með: Dagur Orri Garðarsson
Á meðan Patrick er meiddur þá gæti Dagur Orri fengið tækifæri til að spila sem fremsti maður. Hemmi Hreiðars þekkir Dag Orra vel eftir að hann var með hann í HK á síðasta tímabili. Þar skoraði Dagur 12 mörk í 24 leikjum í Lengjudeildinni. Hann er sonur Garðars Jóhannssonar og er með framherjagengin í sér. Hann er núna að fara að stíga sín fyrstu skref í Bestu deildinni.

Spurningarnar: Hver skorar mörkin í fjarveru Patrick? Hvernig gengur hjá Hemma og Brazell? Hvaða ungu leikmenn munu grípa tækifærið?

Völlurinn: Það hafa margir titlar farið á loft að Hlíðarenda síðustu árin, bæði í karla- og kvennaboltanum og í öllum íþróttum. Það hefur þó aðeins verið að minnka. Þarna er góð stúka á fótboltavellinum og gaman að kíkja í Fjósið að fá sér einn drykk. Stemningin á Hlíðarenda gæti oft verið meiri en kannski mun hún koma ef árangurinn verður góður.

Komnir:
Ingimar Torbjörnsson Stöle frá KA
Dagur Orri Garðarsson frá HK
Kristófer Dagur Arnarsson frá Fjölni
Þórður Sveinn Einarsson frá Gróttu (var á láni)

Farnir:
Aron Jóhannsson
Sigurður Egill Lárusson í Þrótt R.
Daði Kárason í Víking Ó. (var á láni hjá Selfossi)
Marius Lundemo til Noregs
Stefán Gísli Stefánsson í Njarðvík á láni
Sveinn Sigurður Jóhannesson í Stjörnuna



Leikmannalisti:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Markus Lund Nakkim
5. Birkir Heimisson
6. Bjarni Mark Antonsson
7. Ingimar Torbjörnsson Stöle
8. Jónatan Ingi Jónsson
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
13. Kristján Oddur Kristjánsson
14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson
17. Lukas Logi Heimisson
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Jakob Franz Pálsson
24. Flóki Skjaldarson
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson
30. Matthías Kjeld
33. Andi Hoti
45. Þórður Sveinn Einarsson
66. Ólafur Flóki Stephensen
97. Birkir Jakob Jónsson
Dagur Orri Garðarsson
Kristófer Dagur Arnarsson

Fyrstu fimm leikir Vals:
12. apríl, Valur - Þór (N1 völlurinn Hlíðarenda)
17. apríl, Valur - ÍBV (N1 völlurinn Hlíðarenda)
22. apríl, FH - Valur (Kaplakrikavöllur)
27. apríl, Stjarnan - Valur (Samsungvöllurinn)
2. maí, Valur - KR (N1 völlurinn Hlíðarenda)

Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
Athugasemdir
banner