Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Besta deildin
Keflavík
LL 0
0
Breiðablik
Besta karla
ÍA
LL 1
1
KA
Keflavík
0
0
Breiðablik
22.04.2026  -  18:00
HS Orku völlurinn
Besta deildin
Aðstæður: Fyrsti grasleikur tímabilsins og völlurinn ekki spes
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
4. Nacho Heras
5. Davíð Helgi Aronsson
6. Sindri Snær Magnússon (f) ('79)
7. Dagur Ingi Valsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
13. Anton Kralj ('63)
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
30. Mirsad Basic (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson ('63)
9. Halid Alghoul
14. Marin Mudrazija
15. Arnór Atli Aðalbjörnsson
18. Ernir Bjarnason ('79)
20. Marin Brigic
28. Viktor Árni Traustason
47. Egill Valur Karlsson

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Frans Elvarsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Jónas Guðni Sævarsson
Guðmundur Árni Þórðarson
Lucija Roncevic

Gul spjöld:
Stefan Ljubicic ('44)
Muhamed Alghoul ('63)
Ásgeir Páll Magnússon ('71)
Nacho Heras ('72)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta var alls ekki gott Þá er þessum vonda fótboltaleik lokið. Bitlausir Blikar enn ósigraðir en hafa bara skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjunum og annað af mörkunum kom af vítapunktinum.

Keflavík nær í sitt fyrsta stig.
92. mín
Breiðablik fékk færi en Kristófer Ingi með lausan skalla beint á Ásgeir.
91. mín
+3 í uppbótartíma
90. mín
Kristinn Steindórsson með skot beint á Ásgeir Orra.
89. mín
Davíð Ingvars með hættulega hornspyrnu sem Ásgeir Orri nær að slá frá.
88. mín
Þetta er allt saman voða þungt og gæðalítið en Breiðablik að næla sér í nokkrar hornspyrnur á stuttum kafla.
83. mín
Valgeir Valgeirsson lætur vaða fyrir utan teig en hátt yfir.
83. mín
Ætlar einhver að setja á sig skikkju? Það er ekki seinna vænna.
79. mín
Inn:Ernir Bjarnason (Keflavík) Út:Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
Vélin mætir.
78. mín
Breiðablik er líklegra þessa stundina og það er stress að koma upp Keflavíkurmegin í stúkunni.
75. mín
Kristinn Steindórsson með lipur tilþrif, kemur boltanum út á Höskuld sem skýtur föstu skoti fyrir utan teig en varnarmaður kemst fyrir. Breiðablik er að ógna þessa stundina.
73. mín Gult spjald: Birkir Þorsteinsson (Breiðablik)
Spjöldunum farið að rigna. Birkir braut á Sindra.

Birkir er 16 ára gamall, lék sinn fyrsta leik í Bestu deildinni í fyrra.
72. mín Gult spjald: Nacho Heras (Keflavík)
Braut á Óla Val og Breiðablik fær aukaspyrnu á miðjum vallarjelmingi Keflavíkur.
71. mín Gult spjald: Ásgeir Páll Magnússon (Keflavík)
70. mín
Hættuleg sókn Blika eftir að heimamenn töpuðu boltanum, Óli Valur reyndi að senda á Kristófer sem var einn gegn markverði en sendingin aðeins of föst.
66. mín
Inn:Kristinn Steindórsson (Breiðablik) Út:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
66. mín
Inn:Birkir Þorsteinsson (Breiðablik) Út:Jónatan Guðni Arnarsson (Breiðablik)
65. mín
Arnar Laufdal samfélagsmiðlastjóri Breiðabliks er með myndavélina fyrir aftan annað markið og uppskar fagnaðarlæti úr stúkunni þegar hann tók á silkimjúkan hátt á móti boltanum eftir að hann flaug afturfyrir áðan. Ein bestu tilþrif leiksins, ég er því miður ekki að grínast með það!
63. mín Gult spjald: Muhamed Alghoul (Keflavík)
Fyrir brot.
63. mín
Inn:Axel Ingi Jóhannesson (Keflavík) Út:Anton Kralj (Keflavík)
62. mín
Andri Rafn Yeoman braut aftur af sér, kominn á hættusvæði.
59. mín Gult spjald: Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Stöðvaði sókn Keflvíkinga á miðjum vellinum.
58. mín
Sindri Snær skartar þessu glæsilega sárabindi um höfuðið eftir að hann fékk skurðinn áðan.
57. mín
HÖSKULDUR svo nálægt! Ívar Örn með marktilraun, Höskuldur teygir sig í boltann en nær ekki að stýra honum á rammann. Þetta var hætta.
55. mín
Þess má geta að umræðan í fréttamannastúkunni í fyrri hálfleik fór um tíma í að ræða vatnsrennibrautir á Íslandi, þar á meðal í Hveragerði. Það lýsir kannski vel hversu dautt og gæðalítið þetta hefur verið á löngum köflum.
54. mín
Blæður úr Sindra eftir að hann lenti í samstuði og verið að veita honum aðhlynningu. Keflvíkingar því einum færri þessa stundina.
53. mín
Sindri Snær með skottilraun fyrir utan teig en Anton Ari vandanum vaxinn og ver af öryggi.
51. mín
BESTA FÆRIÐ TIL ÞESSA! Breiðablik fær það. Höskuldur með stungusendingu á Óla Val Ómarsson sem hittir boltann ekki nægilega vel og nær ekki skoti á rammann.
50. mín
Keflavík fékk skyndisókn en Stefan Ljubicic gripinn í landhelgi, rangstaða.
49. mín
Óli Valur vinnur hornspyrnu. Boltinn af Nacho og afturfyrir.
47. mín
Skot rétt framhjá! Breiðablik með tilraun. Jónatan Guðni með skot en framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað! Vonandi fáum við meira fjör! Áhorfendurnir sem eru úti í kldanum að horfa á þetta eiga meira skilið!
46. mín
Inn:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik) Út:Arnór Gauti Jónsson (Breiðablik)
Arnór þurfti aðhlynningu í fyrri hálfleik og eitthvað er að hrjá hann.
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks Marktilraunir: 4-3
Á mark: 1-0
Með boltann: 51% - 49%
Sendingar: 215-226
(Frá Sýn Sport)
45. mín
XB

Það er kominn hálfleikur og þá er tilvalið að kynna sér öflugan lista Framsóknar í Reykjanesbæ sem reynsluboltinn Halldóra Fríða leiðir.
Hér er áhugaverð grein eftir Halldóru um sterka fjárhagsstöðu sveitafélagsins.

Fjármál Reykjanesbæjar bera skýr merki árangurs og ábyrgrar stjórnunar
45. mín
Hálfleikur
Flautað Alls ekki skemmtilegur fyrri hálfleikur en seinni hálfleikurinn verður áhugaverður... ég trúi ekki öðru. Höldum í jákvæðnina.

Á heildina hafa Keflvíkingar verið talsvert betri en Blikar lifnuðu betur við undir lok hálfleiksins.
45. mín
Blikar að bíta aðeins frá sér hér í lok hálfleiksins! Davíð Ingvarsson með skot sem rennur framhjá fjærstönginni.
45. mín
Skyndilega hörkufæri! Kristófer Ingi með skot en rennur eitthvað þegar hann mundar skotfótinn og yfir fer boltinn.

+4 í uppbót.
44. mín Gult spjald: Stefan Ljubicic (Keflavík)
Sló létt frá sér í baráttu um boltann. Ívar Örn fær aðhlynningu.
41. mín
Afskaplega rólegt í stúkunni Það er ekki bara rólegt innan vallar heldur líka í stúkunni, sérstaklega Breiðabliksmegin. Heimamenn henda í Keflavík klapp klapp klapp af og til.
40. mín
Boltinn skappar á hættulegum stað við mark Breiðabliks og Ásgeir Páll teygir sig í boltann og skallar framhjá.
36. mín
Leikurinn stopp á meðan Davíð Helgi fær aðhlynningu, fékk smá högg í baráttunni.
35. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika úti til vinstri. Óli Valur tekur spyrnuna. Barátta í teignum en á endanum fer flaggið á loft. Rangstaða.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Keflavík fær hornspyrnu. Alghoul mætir til að taka hornið. Ágætis spyrna, Davíð Helgi skallar yfir. Möguleg snerting á öxlinni á Blika en Sigurður Hjörtur dæmir markspyrnu.
29. mín
Jæja loks kom marktilraun frá Breiðabliki Fyrsta marktilraun Breiðabliks í leiknum er komin! Kristófer Ingi Kristinsson með þéttingsfast skot rétt yfir. Flott tilraun.
27. mín
Eitthvað að hrjá Höskuld fyrirliða Breiðabliks og hann þarf aðhlynningu. Særún sjúkraþjálfari er mætt inná völlinn.
24. mín
Þarna átti hann að gera betur Eiður Orri kemst í fínt skotfæri en hittir boltann afleitlega og hann fer framhjá.
21. mín
Leikurinn hefur að langmestu leyti farið fram á vallarhelmingi Breiðabliks sem kemst lítt áleiðis.
19. mín
Ásgeir Helgi tekur Dag Inga Valsson niður og Keflavík fær aukaspyrnu á ljómandi fínum stað með fyrirgjafarmöguleika. Ágætis spyrna frá Alghoul en enginn nær að komast í boltann.
17. mín
Keflavík 67% með boltann hingað til Áhugaverð tölfræði.
16. mín
Arnór Gauti mættur aftur inná. Eiður Orri með lausan skalla sem Anton ver.
14. mín
Arnór Gauti þarf aðhlynningu eftir að hafa lent í samstuði við Davíð Helga í baráttunni um boltann við hliðarlínuna.
12. mín
Eiður Orri með skalla af nokkuð löngu færi, Anton Ari ekki í nokkrum vandræðum með að handsama þetta. Keflavík talsvert öflugri hér í byrjun og Breiðablik ekki fundið takt. Spilar væntanlega eitthvað inní að þeir séu að venjast vellinum.
8. mín
Keflavík að sækja þessar mínútur. Muhamed Alghoul með fyrigjöf sem skapaði nokkra hættu og Keflavík að ná fram fínu spili.
6. mín
Eiður Orri Ragnarsson reynir að koma sér í skotfæri en Valgeir Valgeirsson kemst í boltann og setur hann í hornspyrnu. Fyrsta horn Keflavíkur.
3. mín
Breiðablik skapar fyrstu hættuna í þessum leik, Kristófer Ingi með sendingu sem skapar usla og Keflavík bjargar í horn. Ekkert merkilegt kemur úr fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Blikar eru alhvítir í þessum leik í kvöld en Keflavík í sínum hefðbundnu búningum. Breiðablik hóf leik og leikur í átt að The Dubliner í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Oliver Sigurjónsson leysir af í þjálfarareymi Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þar sem Jón Guðni aðstoðarþjálfari er í banni er Oliver Sigurjónsson í þjálfarateymi Breiðabliks í dag. Oliver er annar af þjálfurum Augnabliks en hann lagði skóna á hilluna í vetur, lauk ferlinum með Aftureldingu.
Fyrir leik
Styttist í leik... Það er ansi napurt hér á vellinum en eftir létta skoðun eru flestir vallargestir búnir að klæða sig vel upp. Fólk er að gæða sér á vallarborgurum á pallinum. Jón Guðni Fjóluson fær sér kaffibolla, hann er í stúkunni í dag þar sem hann tekur út leikbann eftir einhver orðaskipti milli hans og Dean Martin, aðstoðarþjálfara ÍA, í síðasta leik. Báðir fengu rautt.
Fyrir leik
Byrjunarliðin


Fyrir leik
Ágúst Orri ekki með Breiðabliki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir tvær breytingar frá 1-0 sigrinum gegn ÍA í síðustu umferð. Arnór Gauti Jónsson og Jónatan Guðni Arnarsson koma inn. Andri Rafn Yeoman sest á bekkinn en Ágúst Orri Þorsteinsson er ekki í hóp. Væntanlega einhver meiðsli.
Fyrir leik
Góðar fréttir fyrir Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur gerir tvær breytingar frá 3-1 tapinu gegn Fram í síðustu umferð. Þorlákur Breki Baxter og Stefan Ljubicic koma inn í liðið en þeir voru meiddir í síðasta leik.

Stefan var valinn í lið umferðarinnar í tapinu nauma gegn KR í fyrstu umferð, þar sem hann skoraði tvö mörk. Breki Baxter átti þá einnig mjög flottan leik og gleðitíðindi fyrir heimamenn að þeir geti tekið þátt í kvöld.

Marin Mudrazija og Ernir Bjarnason fá sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Siggi Raggi spáir 1-2 Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari NSÍ í Runavík er spámaður umferðarinnar:

Keflavík 1 - 2 Breiðablik
Sumarið verður erfitt hjá Keflavík, þeir þurfa meiri styrkingu og það verður sigur fyrir þá að ná að halda sér uppi. Stefan Ljubicic mun þó skora fullt af mörkum fyrir þá. Þetta verður lokaður leikur og endar með sigri Breiðabliks.

   22.04.2026 10:30
Siggi Raggi spáir í 3. umferð Bestu deildarinnar
Fyrir leik
Formaðurinn skoðar aðstæður Ef myndin prentast vel má sjá bakhliðina á Þorvaldi Örlygssyni formanni KSÍ, og fyrrum þjálfara Keflavíkur, sem mætti út á völl til að rölta um og skoða aðstæður. Á meðan ómaði hljómsveitin Valdimar í græjunum, "Yfir borgina". Frábært lag.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Grasið tekur á móti okkur
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Ég er mættur til Keflavíkur og sendi útsendara síðunnar út á völl að skoða grasið. Það er ekki spes, sem er kannski mjög skiljanlegt enda hefur bara einu sinni farið fram grasleikur í efstu deild fyrr á árinu, FH - Stjarnan 2023 á Miðvellinum (Heimild Sverrir Örn Einarsson). Það má reyndar færa rök fyrir því að undirlagið í Hafnarfirðinum þá flokkist ekki sem gras. Hér í dag er græni liturinn allavega áberandi!

Miðvöllurinn góði:
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Keflavík þarf að laga varnarleikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er svekktur með frammistöðuna og úrslitin. Mér fannst við byrja leikinn nokkuð vel en við vorum klaufar, það var barnalegur varnarleikur í fyrsta markinu og við gefum þeim svolítið boltann," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 3-1 tap gegn Fram í síðustu umferð.

„Við þurfum klárlega að laga varnarleikinn hjá okkur, við erum búnir að spila tvo leiki í þessari deild og fá á okkur 6 mörk samtals. Það segir sig sjálft að það gengur ekki upp og við þurfum að byrja á því að geta varið markið okkar."

Nýliðar Keflavíkur eru án stiga en þeir töpuðu gegn KR í fyrstu umferð.
Fyrir leik
Stirður sóknarleikur Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppskera Breiðabliks í byrjun móts eru fjögur stig. Liðið vann ÍA í síðustu umferð þar sem Höskuldur Gunnlaugsson skoraði eina markið úr vítaspyrnu.

Það er óhætt að segja að sóknarleikur Blika hafi verið ansi takmarkaður í byrjun móts. Varnarleikurinn hefur verið helsta vopn liðsins í fyrstu umferðunum.

„Ánægður með að hafa unnið. Þetta var mjög erfiður leikur. Mér fannst við vera stýra leiknum ágætlega í fyrri hálfleik þó að við sköpuðum kannski ekki margar stöður sem við búum til færi úr. Í seinni hálfleik fannst mér við passívir og skrefinu á eftir. Kannski pínu heppnir að hafa náð að hanga á þessu. Það er jákvætt að taka þrjú stig og spila ekki eins vel og við getum," sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir sigurinn gegn ÍA.
Fyrir leik
Fyrsti grasleikur Bestu deildarinnar Þessi leikur er fyrsti leikur tímabilsins sem ekki fer fram á gervigrasi.

Það þykir nokkrum tíðindum sæta að HS Orkuvöllurinn sé tilbúinn að heita má svo snemma vors en undanfarin ár hefur hann verið seinn að ná sér eftir veturinn og oft verið í mun verra ástandi er mun lengra hefur verið liðið á vorið.

Sverrir Örn Einarsson fjallaði um vallarmál Keflavíkur:


   20.04.2026 13:46
Spilað á grasi í Keflavík - Búið að mála völlinn
Fyrir leik
Þriðja liðið kemur að norðan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmir leikinn hér í Keflavík. Patrik Feyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson eru aðstoðardómarar. Tríó að norðan. Þá er Elías Ingi Árnason með skiltið góða og Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður.

Gylfi var eftirlitsmaður á viðureign Arsenal og Sporting frá Lissabon í Meistaradeildinni á dögunum svo hann er að fá nóg af stórum verkefnum um þessar mundir!
Fyrir leik
Síðasti vetrardagur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heil og sæl og velkomin með okkur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Breiðabliks í 3. umferð Bestu deildarinnar. Sumardagurinn fyrsti er á morgun en að mínu mati er fyrsti sumardagurinn í raun upphafsdagur Bestu deildarinnar!

miðvikudagur 22. apríl
18:00 ÍA-KA (Akraneshöllin)
18:00 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)

fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
6. Arnór Gauti Jónsson ('46)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson ('66)
9. Óli Valur Ómarsson
17. Valgeir Valgeirsson
18. Davíð Ingvarsson
22. Jónatan Guðni Arnarsson ('66)
23. Kristófer Ingi Kristinsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m)
10. Kristinn Steindórsson ('66)
13. Anton Logi Lúðvíksson
21. Viktor Örn Margeirsson
29. Gabríel Snær Hallsson
30. Andri Rafn Yeoman ('46)
32. Kristinn Narfi Björgvinsson
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson
77. Birkir Þorsteinsson ('66)

Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Oliver Sigurjónsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason
Emil Pálsson

Gul spjöld:
Andri Rafn Yeoman ('59)
Birkir Þorsteinsson ('73)

Rauð spjöld: