Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 10:00
Sverrir Örn Einarsson
Sextán ára gömul framkvæmd gerir HS Orkuvöllinn leikhæfan
Keflavíkurvöllur í vikunni
Keflavíkurvöllur í vikunni
Mynd: Aðsend
Framkvæmdir við völlinn 2010
Framkvæmdir við völlinn 2010
Mynd: Jón Örvar Arason
Klæmint Olsen gleymir sennilega færinu í Keflavík seint
Klæmint Olsen gleymir sennilega færinu í Keflavík seint
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Keflavík tekur á móti Breiðabliki í fyrsta heimaleik sínum þetta sumarið á HS Orkuvellinum í dag, en flautað verður til leiks klukkan 18:00. Það þykir nokkrum tíðindum sæta að HS Orkuvöllurinn sé tilbúinn – að heita má – svo snemma vors, en undanfarin ár hefur hann verið seinn að ná sér eftir veturinn og oft verið í mun verra ástandi þegar mun lengra hefur verið liðið á vorið.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  0 Breiðablik



Ástæða þess að völlurinn telst í leikhæfu ástandi nú á sér nokkuð langan aðdraganda svo ekki sé fastar að orði kveðið. Haustið 2009 var völlurinn rifin upp og undirlag og gras endurnýjað. Við það tilefni var ákveðið að leggja hitalagnir í völlinn og var upprunalega hugmyndin sú að nýta affall sundmiðstöðvar Reykjanesbæjar sem stendur við hlið vallarins til þess að hita hann upp.

Að framkvæmdum loknum var þó fljótt ljóst að affallið dygði ekki til og að tengja yrði stofnlögn inn á hitakerfið til þess að gera það nothæft. Það gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig og lágu hitalagnir vallarins ónotaðar undir honum í alls 15 ár þar til stofnlögn var loks tengd inn á kerfið síðastliðinn vetur og var hita svo hleypt á völlinn er vora tók.

Það er því vonandi að völlurinn verði í töluvert betra ástandi nú en síðast þegar Breiðablik var fyrsta liðið til að heimsækja Keflavík á grasvöll sinn. Liðin mættust í 9. umferð Bestu deildarinnar þann 29. maí 2023 á grasi en fram að því hafði Keflavík leikið heimaleiki sína á gervigrasinu við Nettóhöllina.

Vallaraðstæður voru alls ekki boðlegar satt að segja en afar lítið gras var á vellinum eftir kalt vor og ekki bættu veðuraðstæður úr skák, haugarigning og rok. Leikurinn sem slíkur er því síður en svo eftirminnilegur og endaði með markalausu jafntefli. Eitt atvik úr leiknum er þó minnisstætt.

Á 79. mínútu leiksins hrökk boltinn til Klæmint Olsen í markteig Keflavíkur eftir harða sókn Blika. Klæmint hefur varla verið meira en 15-20 sentimetrum frá marki en tókst á einhvern ótrúlegan hátt að skófla boltanum yfir markið úr því ótrúlega færi. Lukkan sannarlega ekki með Blikum í liði þar og fátt annað rætt eftir leikinn en þetta ævintýralega klúður.

   29.05.2023 21:30
Klæmint Olsen með klúður tímabilsins - „Mögulega það svakalegasta sem ég hef séð“


Slapp
banner
banner
banner