Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Besta karla
Víkingur R.
19:15 0
0
Stjarnan
Besta karla
Valur
19:15 0
0
FH
Besta karla
Þór
74' 1
0
Fram
Besta karla
ÍBV
LL 2
6
KR
ÍBV
2
6
KR
0-1 Arnór Ingvi Traustason '5
0-2 Hrafn Tómasson '17
0-3 Aron Sigurðarson '29
0-4 Gabríel Hrannar Eyjólfsson '45
0-5 Aron Sigurðarson '59
0-6 Alexander Rafn Pálmason '62
Viggó Valgeirsson '65 1-6
Sesar Örn Harðarson '77 2-6
23.04.2026  -  13:00
Hásteinsvöllur
Besta karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: Skýjað, smá gola.
Maður leiksins: Aron Sigurðarson
Byrjunarlið:
1. Marcel Zapytowski (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon (f)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('76)
10. Viggó Valgeirsson
14. Arnar Breki Gunnarsson ('46)
23. Arnór Ingi Kristinsson ('70)
26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor ('46)
42. Pisco ('46)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
7. Sesar Örn Harðarson ('46)
9. Liam Daði Jeffs
11. Filip Stuparevic ('46)
16. Milan Jezdemirovic ('70)
22. Eiður Atli Rúnarsson ('46)
28. Heiðmar Þór Magnússon
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('76)

Liðsstjórn:
Óskar Elías Zoega Óskarsson (Þ)
Elías J Friðriksson
Alex Freyr Hilmarsson
Elías Árni Jónsson
Filipe Andre Alexandre Machado

Gul spjöld:
Pisco ('4)
Arnór Ingi Kristinsson ('51)
Eiður Atli Rúnarsson ('54)
Filip Stuparevic ('57)
Milan Tomic ('71)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær sigur KR Algjörir yfirburðir KR í þessum leik. Kláruðu leikinn í fyrri hálfleik og voru með tökin á leiknum í raun allan tímann.
91. mín
Arnór Yngvi með skottilraun fyrir utan teig en boltinn yfir.
89. mín
ÍBV fær aukaspyrnu úti hægra megin nálægt teignum.
85. mín Gult spjald: Ástbjörn Þórðarson (KR)
Braut á Eið Atla.
85. mín
Felix með aukaspyrnuna fyrir ÍBV en Halldór grípur boltann auðveldlega.
82. mín Gult spjald: Tristan Gauti Línberg Arnórsson (KR)
Rífur Milan niður og fær verðskuldað gult spjald.
77. mín MARK!
Sesar Örn Harðarson (ÍBV)
Stoðsending: Halldór Jón Sigurður Þórðarson
ÍBV minnkar muninn Halldór Jón með flotta þversendingu yfir á vinstri kantinn. Sesar tekur boltann fagmannlega með sér og er einn í gegn, gegn Halldóri og klárar færið sitt mjög vel. Staðan orðin 2-6.
76. mín
Inn:Tristan Gauti Línberg Arnórsson (KR) Út:Amin Cosic (KR)
76. mín
Inn:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (ÍBV) Út:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
75. mín
Ágætlega spilað hjá ÍBV. Bjarki Björn fær boltann töluvert fyrir utan teig og ætlar að smeygja honum í fjær en skotið er beint á Halldór Snæ.
71. mín Gult spjald: Milan Tomic (ÍBV)
Glæfraleg tækling á miðjum vellinum.
70. mín
Inn:Milan Jezdemirovic (ÍBV) Út:Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV)
69. mín
Arnór Ingi liggur eftir á vellinum og virkar þjáður. Lítur ekki vel út.
66. mín
Inn:Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (KR) Út: Luke Rae (KR)
66. mín
Inn:Stefán Árni Geirsson (KR) Út:Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
65. mín MARK!
Viggó Valgeirsson (ÍBV)
ÍBV klórar í bakkann Hræðileg mistök hjá Halldóri Snæ í markinu. Er töluvert langt frá marki sínu og gefur boltann beint á Viggó sem setur boltann nokkuð auðveldlega í autt markið.
65. mín
Sesar kemst í gegn vinstri megin á vellinum en endar á gefa boltann einfaldlega á KR-ing.
63. mín
Amin með flotta takta úti vinstri megin en gerir aðeins of mikið í staðin fyrir að skjóta og missir boltann.
62. mín MARK!
Alexander Rafn Pálmason (KR)
Alexander kemur KR í 0-6. Fær boltann eftir að Aron prjónaði sig í gegn og boltinn endaði hjá Alexander sem kláraði frábærlega niðri í hornið.
60. mín
ÍBV fær aukaspyrnu nokkuð nálægt teig KR.
59. mín MARK!
Aron Sigurðarson (KR)
Stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson
Aron kemur KR í 0-5 Frábærlega spilað hjá KR. Orri Hrafn með glæsilega sendingu inn á teig á Aron sem neglir boltanum í markið. KR eru að slátra Eyjamönnum hérna.
57. mín Gult spjald: Filip Stuparevic (ÍBV)
55. mín
Frábær sókn hjá KR. Luke Rae með sendingu fyrir markið þar sem Amin er mættur á fjær en setur boltann í hliðarnetið.
54. mín Gult spjald: Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV)
53. mín
Arnór Ingi fer fyrirgjöf frá hægri vængnum en Halldór grípur boltann.
51. mín Gult spjald: Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV)
50. mín
Felix með spyrnuna en KR setja boltann aftur fyrir og Eyjamenn fá horn.
49. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu fyrir utan teiginn.
48. mín
Felix með flotta fyrirgjöf inn á teig KR. Filip á misheppnaðan skalla og boltinn dettur fyrir Bjarka Björn en hann hittir ekki boltann.
46. mín
Inn:Orri Hrafn Kjartansson (KR) Út:Hrafn Tómasson (KR)
46. mín
Inn:Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV) Út:Vicente Valor (ÍBV)
ÍBV gerir þrefalda breytingu í hálfleik
46. mín
Inn:Filip Stuparevic (ÍBV) Út:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV)
ÍBV gerir þrefalda breytingu í hálfleik
46. mín
Inn:Sesar Örn Harðarson (ÍBV) Út:Pisco (ÍBV)
ÍBV gerir þrefalda breytingu í hálfleik
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn Leikurinn er farinn í gang aftur.
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks (af Sýn) Með boltann: 38,7% - 61,3%
Marktilraunir: 1-14
Skot á mark: 1-8
Hornspyrnur: 1-4
Rangstöður: 2-1
Sendingar: 178-273
45. mín
XB

Í hálfleik skulum við minna okkur á þá staðreynd að þegar Framsóknarmaðurinn Einar Þorsteinsson var borgarstjóri þá var fjárfest í knatthúsi fyrir KR!
Framsókn í Reykjavík vill halda áfram nauðsynlegri og löngu tímabæri uppbyggingu íþróttamannvirkja í Reykjavík xB

Framsókn í Reykjavík
45. mín
Hálfleikur
Aðeins eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik Kr leiðir 0-4 í hálfleik. Mestu yfirburðir sem ég hef orðið vitni af í einunm háfleik í laaaangan tíma!!
45. mín MARK!
Gabríel Hrannar Eyjólfsson (KR)
Yfirburðirnir halda áfram Luke Rae með fyrirgjöf frá hægri. Eyjamenn hreinsa í burtu en beint fyrir Gabríel Hrannar sem klárar frábærlega fram hjá Marcel. Staðan orðin 0-4. Þvílíkir yfirburðir KR-inga.
45. mín
+3 i uppbótartíma.
45. mín
ÍBV nær ekki að gera sér mat úr aukaspyrnunni.
45. mín
ÍBV fær aukaspyrnu. Alexander brýtur á Vicente töluvert fyrir utan teig.
42. mín
Viggó liggur eftir, eftir samskipti við Ástbjörn. Eyjamenn vilja meina að um olnbogaskot að ræða.
41. mín
Arnar Breki missti boltann illa fyrir utan teig og úr verður gott færi fyrir Eið Gauta en hann setur boltann yfir.
39. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á vallarhelmingi KR. Vicente tekinn niður.
35. mín
KRingar bara liggja í sókn. Eyjamenn komast varla yfir miðju.
33. mín
Stuttu seinna átti Amin cosic svo skalla úr stuttu færi en Marcel varði frá honnum.
33. mín
Algjör einstefna á vellinum Luke Rar fer upp hægri kanntinn og gefur fyrir á Eið Gauta en Marcel ver frá honum.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Luke Rae með skot. Tékkkar inn á vinstri fótinn og setur boltann rétt fram hjá.
29. mín MARK!
Aron Sigurðarson (KR)
KR með öll völd Aron skorar fyrir utan teig með vinstri fæti. Kemst allof auðveldlega nálægt vítateig Eyjamanna. Engin pressa frá varnarmönnum ÍBV. Setti boltann út við stöng og kemur KR í 0-3.
29. mín
Marcel með skógarhlaup og fékk það næstum í bakið. Endar með skoti frá Arnóri Yngva en Marcel kominn aftur í markið og grípur boltann.
27. mín
KR fær annað horn. Basl í teig Eyjamanna að hreinsa frá í tvígang en það tekst í þriðju tilraun.
27. mín
Aron með sendingu fyrir og Sigurður Arnar hreinsar í horn.
26. mín
Frábærlega gert hjá Amir Cosic. Keyrir upp að endalínu og kemur með flottan bolta fyrir en enginn til að pota boltanum inn.
23. mín
Alexander Rafn með sendingu fyrir en Marcel grípur boltann örugglega.
21. mín
Felix með hornið. Leggur boltann út á Pisco sem kemur með fyrirgjöf á Arnar Breka en skallinn hans er slakur og ekkert verður úr þessu.
20. mín
Arnór Ingi með upphlaup hægra megin og kemur með sendingu fyrir en KR bjarga í horn.
19. mín
Aron með enn eitt skotið yfir markið. Keimlíkt hinum skotunum en þó töluvert lengra frá marki.
19. mín
FÆRI HJÁ ÍBV Vicence með frábæra sendingu inn á Viggó sem gerir vel og kemur sér í skotið. Halldór Snær gerir vel að loka á hann og KR vinnur boltann.
17. mín MARK!
Hrafn Tómasson (KR)
0-2 !!! F?ábærlega gert hjá Hrafni. Stórkostlegt skot utan af velli og hann smellhittir hann í hornið.
17. mín Gult spjald: Hrafn Tómasson (KR)
Fyrir peysutog á miðjum velli.
15. mín
Vel gert hjá Alexander Rafn. Brunar upp með boltann og fer auðvellega fram hjá Edeland. Endar á skoti en það er yfir markið.
14. mín
Ágætis spil hjá Eyjamönnum. Endar með að Felix kemur með boltann í gegn á Arnar Breka en hann en flaggið fer á loft.
13. mín
Aron með skot inn á teignum en það er hátt yfir.
13. mín
KR er með öll völd á vellinum á upphafsmínútunum.
12. mín
DAUÐAFÆRI hjá KR Hrafn með fyrirgjöf frá vinstri. Ásbjörn er einn og óvaldaður inn á markteig ÍBV en setur boltann framhjá
11. mín
KR fær fyrsta horn leiksins.
10. mín
Amin með fyrirgjöf frá vinstri en hún er yfir allan pakkann og fer aftur fyrir.
7. mín
Markvörður KR liggur eftir á vellinum þjáður eftir samstuð við Viggó en er staðinn upp.
5. mín MARK!
Arnór Ingvi Traustason (KR)
Stoðsending: Aron Sigurðarson
KRingar ekki lengi að þessu. Aron tekur spyrnuna og Ásbjörn nær skallanum en Marcel ver frá honum. Arnór Yngvi er réttur maður á réttum stað og kemur boltanum yfir línuna og kemur KR í 0-1.
4. mín Gult spjald: Pisco (ÍBV)
Fyrir peysutog. Amir við það að sleppa í gegn.
2. mín
KR byrja vel KR byrja af krafti. Amin Cosic keyrir upp vinstri vænginn og kemur boltanum á Aron sem tekur skotið inn á teig en það er yfir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. KR-ingar byrja með boltann með smá golu í bakið og leika í átt að Týssvelli.
Fyrir leik
Fyrir leik
Svona eru línurnar lagðar


Fyrir leik
Byrjunarliðin Arnar Breki Gunnarsson, Arnór Ingi Kristinsson, Vicente Valor og Pisco koma inn í lið ÍBV frá 2-1 tapi gegn Val í síðustu umferð. Alex Freyr Hilmarsson, Milan Jezdemirovic, Róbert Elís Hlynsson og Filip Stuparevic detta út. Alex Freyr og Róbert eru ekki í hópnum en Alex Freyr fór af velli vegna meiðsla gegn Val.

Aleksandar Linta tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Val. Óskar Elías Zoega Óskarsson er þjálfari ÍBV í dag.

Það er ein breyting á liði KR sem vann Þór 5-2 í síðustu umferð. Stefán Árni Geirsson sest á bekkinn og Alexander Rafn Pálmason kemur inn. Það vekur athygli að það eru aðeins sex af níu mögulegum á bekknum.
Fyrir leik
Hvað segir Siggi Raggi? Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrum leikmaður KR og fyrrum þjálfari ÍBV, spáir 1-3:
KR fær yfirleitt á sig mark eða mörk en skora líka yfirleitt mikið og hafa farið vel af stað. ÍBV mun eiga erfitt sumar og verða í fallbaráttu. KR tekur þennan leik nokkuð létt.

   22.04.2026 10:30
Siggi Raggi spáir í 3. umferð Bestu deildarinnar
Fyrir leik
Úr síðustu umferð: Valur 2-1 ÍBV
Fyrir leik
Úr síðustu umferð: KR 5-2 Þór
Fyrir leik
Linta í leikbanni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta þjálfari ÍBV fékk rautt spjald beint eftir 2-1 tap gegn Val á föstudag. Hann tekur út leikbann í dag. Aðstoðarmaður hans Óskar Elías Zoega Óskarsson stýrir því liðinu frá hliðarlínunni.

Linta tók við ÍBV í vetur þegar Þorlákur Árnason lét óvænt af störfum. Eyjamenn eru með eitt stig eftir tvær umferðir en þeir gerðu jafntefli við FH í fyrstu umferð.

   22.04.2026 08:13
Botna ekkert í pirringi Linta - „Verður þá meira upp í stúku en við hliðarlínuna“
Fyrir leik
KR hefur unnið báða leiki sína
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KR hefur unnið nýliðana í Keflavík og Þór í fyrstu tveimur umferðunum en liðið vann 5-2 sigur gegn Þórsurum í síðustu umferð.

„Mjög ánægður með sóknarleikinn, ég sagði það fyrir leikinn að okkar helsta verkefni í dag væri að taka þessa hlekki sem voru á okkur í Keflavíkurleiknum og brjóta þá af okkur," sagði Óskar Hrafn eftir leikinn.

„Síðasta tímabil sýndi okkur að við vorum búnir að labba berfættir á sjóðandi heitum kolum og það var búið að berja okkur með svipu."

   17.04.2026 20:02
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Fyrir leik
Twana með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Twana Khalid Ahmed dæmir leikinn. Kristján Már Ólafs og Ronnarong Wongmahadtai eru aðstoðardómarar og Guðmundur Páll Friðbertsson er fjórði dómari.
Fyrir leik
Blessaður Herjólfur Upphaflega átti þessi leikur að fara fram í gær en hann var færður vegna samgöngumála til og frá Vestmannaeyja. Ekki er mögulegt fyrir stuðningsmenn KR að fara í dagsferð á leikinn í Eyjum vegna siglingaáætlunar Herjólfs og er það leiðinlegt.

   17.04.2026 09:50
Siglingaáætlun til og frá Eyjum hefur mikil áhrif á Bestu deildina
Fyrir leik
Gleðilegt sumar!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gott og gleðilegt sumar. 3. umferð Bestu deildarinnar og fyrsti leikur dagsins verður hér í Vestmannaeyjum þar sem KR mætir í heimsókn á Hásteinsvöll.

fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson ('66)
11. Aron Sigurðarson (f)
14. Alexander Rafn Pálmason
17. Luke Rae ('66)
19. Amin Cosic ('76)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Arnór Ingvi Traustason
26. Hrafn Tómasson ('46)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
8. Stefán Árni Geirsson ('66)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('66)
20. Tristan Gauti Línberg Arnórsson ('76)
29. Aron Þórður Albertsson
77. Orri Hrafn Kjartansson ('46)

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Lúðvík Júlíus Jónsson
Hilmar Árni Halldórsson
Magnus Börheim

Gul spjöld:
Hrafn Tómasson ('17)
Tristan Gauti Línberg Arnórsson ('82)
Ástbjörn Þórðarson ('85)

Rauð spjöld: